Læknaneminn - 01.10.1989, Blaðsíða 24
Tölvunotkun í læknakennslu
Pórdís Jóna Hrafnkelsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson
Dagana 5.-6. desember 1988 var haldin í
Gautaborg ráðstefna um tölvunotkun við læknakennslu.
Ráðstefnan var haldin á vegum NFMU (Nordisk
Federation för Medicinsk Undervisning), og
þátttakendur voru kennarar og nemendur frá flestum
læknaskólum á Norðurlöndum, auk gestafyrirlesara
frá Pittsburgh (Pennsylvania). Fléðan fóru tveir
læknanemar(undirrit.) auk dósents í geðlæknisfræði.
Ráðstefnan fór fram bæði á fyrirlestraformi og
með sýnikennslu. Sýnd voru helstu leikföng þeirra
Svíanna á þessu sviði(auk bandarískra nýjunga), en í
Gautaborg hefur verið ígangi undanfarin ár uppbygging
ákerfi sem þeirkalla MEDNET sem verðurfjallað um
nánar hér á eftir.
MEDNET
Tölvuþróunin hófst við læknadeildina í
Gautaborg veturinn '83-'84. Þá voruþaðstúdentarþar
í bæ sem vöktu máls á þeirri þróun sem hlyti að eiga
sér stað innan fárra ára, líkt og þegar hafði gerst í öðrum
greinum. Þeir fengu fjárveitingu til að hefja
undirbúningsvinnu að uppsetningu tölvukerfis sem
nota mætti við læknanám, þannig að haustið ’85 var
hægt að byrja að semja forrit og taka tölvuver í notkun.
í fyrstu voru þetta aðallega forrit ætluð til að þjálfa
læknanema í greiningu sjúkdóma út frá gefnum
forsendum. Síðar voru hönnuð flóknari kennsluforrit
sem verður sagt frá síðar. A árunum’85-’88 varsvo
MEDNET þróað. Þetta er kerfi sem samanstendur af
móðurtölvu, staðsettri í tækniháskóla, með mest 300
skjáum víðvegar um borgina og í nágrenni hennar.
Utstöðvar móðurtölvunnar eru f.o.f. á sjúkrahúsum ,
rannsóknastofum tengdum þeim og í tölvuveri
læknadeildarinnar.
Kerfinu er ætlað tvíþætt hlutverk, annars vegar
upplýsingageymsla og miðlun og hins vegar
kennsluhlutverk. Undirfyrriliðinnfellurm.a.geymsla
á rannsóknaniðurstöðum, upplýsingar um sjúklinga
og jafnvel sjúkraskrár. Kennsluhlutinn af MEDNET
hefur að geyma margskonar forrit sem eiga að létta
læknanemanum námið. Flér á eftir segjum við frá
nokkrum þessara forrita.
KENNSLUFORRITIN
Smíði stórsameinda (Molecular
modelling).
Með þessu forriti er hægt að skoða
þrívíddarmyndir sameinda frá ýmsum sjónarhomum.
ýmist á strika formi þ.s. aðeins eru sýnd tengi og
kjarnar eða svigrúmamyndir(space filling models) .
Tölvan geymir í minni myndir af 50 þúsund lífrænum
sameindum, þaraf350 prótein. Hægterað notaforritið
til að teikna sameindir stórar og smáar, auk þess sem
það er sérlega gagnlegt til að gera sér grein fyrir
sambandi virkni og gerðar. Forritið hefur m.a. verið
notað til að hanna lyfjasameindir með tilliti til gerðar
viðtaka. Einnig hefur það verið notað til rannsókna á
fosfólípösum, blóðflokka-mótefnavökum og
bindisetum örvera á frumuhimnum. Með þessu fær
nemandinn tækifæri til að öðlast tilfinningu fyrir
sambandi útlits og eiginleika sameinda.
Kennsluforrit í líffærafræði.
I hönnun er forrit til kennslu í anatomiu.
Neuroanatomiu hluti þess forrits er þegar langt kominn
og sýndu Svíarnir okkur afraksturinn fram til þessa.
Forritið er þannig uppbyggt að teknar eru myndir af
líffærum, í þremur stefnum(horizontal, sagittal og
frontal) með ákveðinni þykkt á sneiðunum. Tölvan
getur svo sýnt myndimar í röð á fyrirfram ákveðnum
hraða eða eina og eina í einu. Einnig er hægt að fá
stækkanir á ákveðnum svæðum, biðja um ákveðið
svæði í öðm sniði eðabiðja um nafn á líffæri, líffærahluta
22
LÆKNANEMINN l-^ta>-42. árg.