Læknaneminn - 01.10.1989, Qupperneq 7
Nýtt íslenskt sérlyf
KARBAZÍN
(Carbamazepin)
Krampastillandi lyf
Örugg og árangursrík meðferð.
R, 100 TÖFLUR; N 03 A X 01
Hver tafla inniheldur: Carbamazepinum INN 200 mj
Eiginleikar: Karbamazepín er krampastillandi lyf.
sem er efnafræöilega skylt þríhringlaga geðdeyföar-
lyfjum. Verkunarháttur er óþekktur. Lyfið frásogast
hægt frá meltingarfærum og nær blóðþéttnin há-
marki 4—24 klst. eftir inntöku. Helmingunartími
lyfsins í blóði er 20—40 klst. Lyfið brotnar um í
Iifur og skilst út með galli og þvagi. Hæfileg blóð-
þéttni er 5—10 míkróg/ml (20—40 míkrómól/1).
Ábendingar: Flogaveiki, sérstaklega grand mal,
psykomotorisk eða temporal. Trigeminus neuralgia.
Diabetes insipidus. Fráhvarfseinkenni drykkjusýki.
Taugaskemmdir vegna sykursýki (diabetic neuro-
pathy). Mania eða fvrirbyggjandi meðferð við
manio-depressiv sjúkdómi.
Frábendingar: Fyrstu 3 mánuðir meðgöngu
Atrioventricular blokk.
Aukaverkanir: Syfja, algeng í byrjun meðferðar.
Meltingaróþægindi. Húðútbrot. Svimi og ataxia og
sjóntruflanir vegna sjónstillingarlömunar. Fækkun
hvítra blóðkorna kemur fyrir. Tvísýni (diplopia),
leiðslutruflanir í hjarta, prótein í þvagi og sega-
myndun. Hefur valdið lifrarbólgu. Getur valdið
lækkun á natrium í sermi vegna ADH-Iíkrar verkun-
ar lyfsins.
Milliverkanir: Má alls ekki gefa með MAO-hemj-
andi lyfjum. Minnkar áfengisþol. Styttir helming-
unartíma segavarnalyfja og getnaðarvarnalyfja.
Varúð: Lyfið getur minnkað viðbragðsflýti og
vegna sjónstillingarlömunar skal vara sjúklinga við
stjórnun vélknúinna ökutækja eftir töku lyfsins.
Eigi skal hætta lyfjagjöf skyndilega hjá flogaveiki-
sjúklingum vegna aukinnar hættu á krömpum. Ef
nauðsynlegt er að hætta skyndilega meðferð með
lyfinu og skipta yfir á annað flogaveikilyf, ætti að
gefa díazepam samhliða. í rottum, sem hafa verið
meðhöndlaðar með karbamazepíni í 2 ár, hefur sést
aukin tíðni lifrarkrabbameins.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Vidfloga-
veiki: í byrjun /2 — 1 tafla á dag, og er skammtur
aukinn smám saman f allt að 2 töflur 2—3 sinnum
á dag. Viö trigeminus neuralgia: Byrjunarskammt-
ur er 1—2 töflur á dag, sem aukinn er smám sam-
an, þar til einkenni hverfa (venjulega 1 tafla 3—4
sinnum á dag). Við diabetes insipidus. Venjulcgur
skammtur er 1 tafla 2—3 sinnum á dag. Viöfrá-
hvarfseinkennum drykkjusýki: 1 tafla 3 sinnum á
dag. í erfiðum tilfellum má auka skammt fyrstu
dagana í 2 töflur 3 sinnum á dag. Hugsanlega þarf
að gefa lyfið í allt aö 10—14 daga. Mania eöa fyr-
irhyggjandi viö manio-depressiv sjúkdómi: Venju-
legur skammtur er 1 tafla 2—3 sinnum á dag.
Stundum þarf að gefa mun stærri skammta, allt að
8 töflur (1600 mg) á dag.
Skammtastærðir handa börnum:
Viö flogaveiki: Börn 0—1 árs: V2—I tafla á dag.
Börn 1—5 ára. 1—2 töflur á dag.
Börn 5—10 ára. 2—3 töflur á dag.
Börn 11—15 ára: 3—5 töflur á dag
Pakkningar: 50 stk.; 100 stk.; 250 stk.
A
LYFJAVERSLUN RÍKISINS
BORGARTÚN 6, 105 REYKJAVÍK, ® 623900