Læknaneminn - 01.10.1989, Page 14

Læknaneminn - 01.10.1989, Page 14
MYND 11: a) Lágþéttnisvæði (leifar eftir gamalt áfall) í hægra úthýði(um 4X1 cm.). Smá lágþéttnieyður á svæði vinstra innhýðis(um 8 mm. í þvermál) og vægur bjúgurí vinstra hvirfilblaði. b) Þrem árum síðar. Lágþéttnisvæði á svæði vinstra innhýðis(um 4 X 1,5 cm.). Smáblæðing í vinstra hvirfilblað. Allstór blæðing í hægra hvirfil- hnakkablað ásamt nokkrum bjúg. Tengivatnshaus(hydrocephalus communicans) MYND 12: a) Stór blæðing í hægra innhýði ásamt bjúg. Blóð sést í útþöndum afturhornum. b) Einum mánuði síðar. Blæðing hefur minnkað. Heilahólf víkkuð og misvísun á miðlínu til vinstri. krampakast og við skoðun sama dag var hann með s vefnhöfga og framsagnarstol (anarthriskur) og gat illa kyngt, hreyfði ekki tungu. Iljarteikn Babinskis báðum megin. Neðankjálkakirtlar (gl. submandibulares) voru teknir vegna of mikillar munnvatnsmyndunar þegar sjúklingur var 32 ára . Við skoðun ári síðar var hann með vinstri helftarlömun og framsagnarstol (anarthriu) en skildi allt sem sagt er við hann og gat tjáð sig með því að skrifa orð á þar til gert tæki. Þurfti hjálp til alls. Við skoðun skömmu fyrir andlát (34 ára) hafði hann stjarfalömun í öllum útlimum (spastiska tetraplegi), gat ekkert tjáð sig. Sjúklingur Nr. 5. (Ætt C, mynd 9) Allt frá tvítugs aldri hafði sjúklingur haft slæm höfuðverkjaköst, sem talin voru mígreni. Er hann var 25 ára versnuðu köstin. Þegar sjúklingur var 28 ára fékk hann skyndilega tvísýni, sem gekk alveg til baka á nokkrum dögum. Tölvusneiðmynd sýndi merki um drep í úthýði (capsula extema). Þrem mánuðum síðar hægri helftarlömun með málstoli. Náði sérnæstum alvegánokkrum mánuðum. Tölvusneiðmynd sýndi stærðar blæðingu í vinstra innhýði (capsula interna). Fékk magnleysi og dofa í vinstri hendi 29 ára. Engargeðrænarbreytingarnémálstol.Tölvusneiðmynd sýndi merki gamallar blæðingar og heiladreps. Nokkrum mánuðum síðar innlagður til frekari rannsókna. Við skoðun þvöglumælgi, væg helftarlömun og aukin sinaviðbrögð vinstra megin. Cystatin C í mænuvökva 3.8 mg./l. Við skoðun 30 ára, vaxandi minnisskerðing, depurð og kvíði. Hann var þvöglumæltur, hafði lömun hægra megin í andliti og minnkaða krafta í hægri ganglim. Auk þess voru ósjálfráðar hreyfingar í vinstri útlimum (fettubrettusýki). Skyn minnkað í vinstri hendi. Heilarit voru mjög óeðlileg. Nokkrum mánuðum síðar innlagður meðvitundarlaus og hann lést 31 árs, vegna enn nýrrar blæðingar, án þess að komast til meðvitundar. Rannsóknir Blóð: Almennar blóðrannsóknireruallarinnan 12 LÆKNANEMINN l-M98»-42. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.