Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 34

Læknaneminn - 01.10.1989, Síða 34
gangrene. Af öðrum æðasjúkdómum má nefna Reynauds disease og thrombangitis obliterans. -Æðablóðrek (æðaemboliur); T.d. mesenterial thrombosur. -Secale eitranir -Áverkar (Posttraumatiskar orsakir); Eftir ýmis konar meiðsli geta komið drep í mjúkvefi og bein (avascular necrosis), sem fyrr eða síðar breytist í gangrene. -Blóðrennslishindrun vegna ytri þrýstings eða klemmu eins og t.d. við sjálfhelduhaul (strangulations- herniur). -Aðrar ytri orsakir; T. d. bruni, kal, bruni eftir geislavirk efni og rafmagnsbrunar. Áður fyrr komu fyrir vefjadrep eftir sótthreinsandi efni eins og t.d. lysol (carbonic acid). -Infectionir; Streptococcasýkingar (netjubólga) leiða stundum til íludreps, en alvarlegustu tilvikin eru þó sýkingar með clostridiae (gas- gangrenesýkingar), sem oft eru banvænar. Gangrene er kallað primært, þegar vefjadrep stafar af sýkingu eða bacteriueitri og er að öðru jöfnu miklu hættulegra en secundært gangrene, sem stafar af minnkuðu blóðflæði eða blóðþurrð. Þá er ennfremur talað um vott og þurrt gangrene. Þurrt íludrep er algengast þegar vaxandi æðaþrengsli hafa verið að minnka blóðflæði langan tíma og vefjadauðinn þannig átt langan aðdraganda. Vefurinn þomar þá smám saman upp, fær í byrjun á sig rauðbrúnan lit, sem dökknar svo og verður svartur. Getur vefurinn þannig þornað upp og minnkað að fyrirferð á nokkrum tíma, án þess að augljós rotnun komi til og er þá talað um, að vefurinn mummifierist. Vott gangrene er einkennandi fyrir primært gangrene og fylgja blöðru- myndanir, sem í byrjun eru fylltar með vatnskenndum vökva, sem dökknar fljótt og færá sig blóðlitaða áferð. Vott gangrene kemur líka fyrir, þegar subcutis er fyrirferðarmikið eða mikill bjúgur ívefnum, eins og ofter við hjartabilun. Við vott gangrene verða mörkin milli lifandi og deyjandi vefs ógreinileg, þar sem demarcatationin er mjög skýr þegar um þurrt gangrene er að ræða. Gasdrep (gasgangrene) Clostridia eru gram-positivir, loftfælnir sporamyndandi stafir, sem lifa íjarðvegi, semblandaður er húsdýraáburði og öðrum lífrænum efnum. Þeir lifa líka í þörmum manna og dýra og virðast ekki gera þar mein (cl. Welchii). í þessum flokki bacteriaeru þekktir yfir 90 stofnar og eru aðeins fáir þeirra pathogen manninum. Þekktastir eru cl. tetanii og cl. botulinum og flokkur sýkla, sem einu nafni eru nefndar gasgangrene-sýklar, cl. perfringens, cl.septicum og cl. Novii. Þessar sóttkveikjur mynda mjög kröftugt toxin, en einna þýðingarmest er s.n. Alfa-toxin, sem er lecitinase, en það leysir upp frumuhimnur og veldur drepi í vöðvum. Loftmyndun verður samfara þessum sýkingum við gerjun á kolvetnasamböndum og á hún sinn þátt í að hindra eðlilega blóðrás vegna aukins þrýstings, sem af þessu leiðir í vefjunum. Toxinin sjálf framkalla líka bjúgbólgu, sem á sinn þátt í lélegri blóðrás. Loftsæknar sóttkveikjur svo sem Esc. coli, eru oft samfara þessum loftfælnu sýkingum, eyða súrefni úr vefjunum og veikja þannig enn meira viðnám þeirra. Clostridial vöðvadrep, öðru nafni gasgangrene, verður helzt til við eftir farandi tilvik: - Við háorkuslys með útbreiddum sáráverkum, sem valda eyðileggingu á vefjum og þó sérstaklega í vöðvum eins og við skotsár, sár eftir sprengjubrot og við opin beinbrot. - Þar sem hætta er á vefjadrepi af öðrum orsökum, eins og t.d. vegna lélegrar blóðrásar. Má þar nefna of þéttar umbúðir, compartment-syndrome og æðaslys. - Sár, sem ötuð eru mold og húsdýraáburði. -Sár, semóhreinkastafþarmainnihaldi sjúklings. - Þegar hreinsun á sárum dregst meira en góðu hófi gegnir, af einhverjum ástæðum. Einkenni Mismunandi langur tími getur liðið frá slysi þar til einkenni koma fram og fer það eftir útbreiðslu áverkans og óhreindum í sári og getur dregizt frá 6-48 klst. Eittfyrsta og þýðingarmesta einkennið eru verkir, sem komafljóttog stafam.a. af þrýstingi íhinum sýkta vef, loftmyndun og bjúgbólgu. Hraður, veiklaður púls tilheyrir sjúkdómsmyndinni og er áberandi hraðari en svarar til hitahækkunar, sem getur verið óveruleg. Blóðþrýstingur er eðlilegur í byrjun, en fellur þegar frá líður þannig að um shock-ástand verður að ræða. Hitahækkun er óáreiðanlegur mælikvarði um ástand og alvarleika sjúkleikans. 32 LÆKNANEMINN 1-^Í9s9-42. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.