Læknaneminn - 01.10.1989, Page 37

Læknaneminn - 01.10.1989, Page 37
yfir thenar og hypothenarvöðvum. Frammi á fingrunum er þessu svipað farið. Volar fascian er hér líka bundin við húðina, en hins vegar við beygisinaslíður fingranna, einkum undir fingurliðafellingunum. Gómhlutinn er líka vel afmörkuð eining, sem takmarkast við fjærkjúkuliðinn, en þar bindur bandvefsfell húðina við lið- pokann. Fjölmargir bandvefsstrengir ganga frá húðinni niður á kjúkuna og hafa þann tilgang að draga úr hreyfingu húðarinnar yfir kjúkunni og gera á þanna hátt átak gómsins styrkara. Beygisinamar eru lokaðar í óeftirgefandlegu sinaslíðri, sem nær frá ytri lófafellingunni fram að fremsta kjúkulið. Bak við beygisinar lófans eru tvö aðskilin hólf (thenar-glufan og miðpalmar-glufan), sem eru aðskilin með bandvefsstreng yfir III.miðhandarbeini,enerusjálfmjöglítiðeftirgefanleg. Á handarbakinu er húðin laust bundin yfir sinum og beinhimnu og því lítil hætta á blóðrásartruflunum hér. Þessi lausi bandvefur á sinn þátt í því, að bólgur, sem eiga upptök sín lófamegin á hönd og fingrum, verða oft meira áberandi handarbaksmegin, en lófamegin. Flestar sýkingar í höndum stafa af staph. aur. og afmarkast vel, mynda fljótt ígerðir, en vilja þó fremur leita í djúpið en opnast á yfirborðið. Sýkingar af str.pyogen. eru sjaldgæfari, en hafa meiri tilhneigingu til að dreifast, framkalla djúpa netjubólgu og því að öðru jöfnu hættulegri. Bráðar sýkingar með sogæðabólgu, háum hita og almennum sjúkleikaeinkennum, stafa oftast af strept. pyogen.sýkingum. Blandaðar sýkingar koma helzt fyrir í sambandi við bitsár. ígerð við neglur Igerð við neglur (paraungual -subungual infection) er ein algengasta sýking i höndum og á upptök sín við naglband eftir áverka, oft mjög óverulegan. Sýkingir, dreifist með nagljaðrinum og leitar fljótt undir naglröndina og oftar kemur viðkomandi ekki til læknis fyrr en hér er komið sögu. Sýkingin getur haldið áfram í vefinn til hliðar við nöglina, en leitar þó fyrst og fremst undir nöglina, skemmir naglbeðinn og nær fljótt niður að kjúkubeini ogerþáosteitisánæstaleiti,efekkerteraðgerð. Mikill sársauki fylgir þessari sýkingu. Meðferð: Nauðsynlegt er að taka burtu efsta hluta naglarinnar, eða þann hluta, sem sýking er undir. Ekki þarf alltaf að taka alla nöglina. Stundum er nauðsynlegt að skera í subcutan ígerð gegnum naglfalsið. Heppilegt er að ræsa út bilið milli naglbeðs og naglbands með vaselingrisju. Subungual sýking, sem er sjaldgæfari, er svonefndur apical abscess, og situr sýkingin fremst í gómnum á mótum naglar og góms og er þannig líka intracutan sýking. Oftast nægir að klippa smá bita af nöglinni fremst yfir sýkingunni og opna henni þannig Ieið út. "Hundshland" “Hundshland” er intradermal eða intraepidermal sýking, sem lýsir sér í blöðrumyndunum og líkist brunablöðrum. I þeim er vatnsþunn vilsa, en sjaldan þykkur gröftur og er oftast um streptococcasýkingu að ræða. Meðferðin er fólgin í því að klippa upp blöðrur, en meðhöndla sýkinguna annars staðabundið með sýklalyfjum. Fyrir kemur þó, að bak við þessar blöðru- myndanir liggja dýpri ígerðir, sem greinilega koma í ljós, þegar blöðrurnar eru klipptar upp. Herpessýking Herpessýkingar koma fyrir á fingrum, einna helzt kringum neglur eða á fingur- gómum. Algengast er þetta hjá tannlæknum eða öðrum þeim, er vinna við sjúkdóma í munni eða koki. Furunclar og carbunclar Furunclar og carbunclar koma fyrir á handarbaki eða dorsalt á fingrum. Talsverð bjúgbólga fylgir oft þessum sýkingum, sem annars hegða sér svipað og annarstaðar á líkamanum og eru meðhöndluð á sama hátt. Sjaldgæfar sýkingar á handarbaki eru svonefndar sub-aponeurotiskar ígerðir, sem eru staðsettir milli metacarpal beina og réttisina. LÆKNANEMINN 1-Vi989-42. árg. 35

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.