Læknaneminn - 01.10.1989, Page 66
gerð skoðanakannana á gæði kennslu. Einnig var haft
samband við aðila í stúdentaráði og öðrum félögum
þegar þess þurfti við.
Deildarráðsfundir
Fundir deildarráðs læknadeildar voru haldnir
tvisvar í mánuði. Eru þar mál læknadeildar allrar tekin
fyrir. Kom það nokkuð á óvart hve margslungin
starfsemi deildarinnar er og má segja að umfjöllun um
málefni stúdenta hafi ekki mikið rými þar.
Kennslunefnd læknadeildar sinnir að mestu þeim
málaflokki, en ýmist er að þar koma mál fyrst til
umræðu eða er vísað þangað frá deildarráði. Endanleg
afgreiðsla er í höndum deildarráðs og því nauðsynlegt
að fylgja eftir málum þar, þó að mikla áherslu beri að
leggja á starf kennslumálanefndar F.L.
Deildarfundir
Tvisvar á ári koma saman fastráðnir kennarar við
deildina og eiga læknanemar rétt á ákveðnum fjölda
fulltrúa þar. Andrúmsloftið er oft spennu hlaðið en á
þessari samkundu eru allar stærstu ákvarðanir um
starfsemi deildarinnar teknar. Þar geta stúdentar komið
að athugasemdum og kynnt sérstök málefni, auk þess
sem þeir hafa atkvæðisrétt í öllum málum fyrir utan
ráðningar í kennslustöður.
Læknafélag íslands
Nokkur samskipti höfum við átt við L.I., fyrst og
fremst vegna launamála læknanema. Upp úr þeirri
umræðu vaknaði sú spuring hjá formanni L.I. sl. vor
hvort að F.L. ætti að gerast aðili að þeim samtökum.
Um það þarf að fjalla meðal læknanema og athuga á
hvaða forsendum það væri best ef af yrði.
Kynningarfundur með 1. ári
Varhaldinn íbyrjunoktober, 1. ársnemarboðnir
velkomnir í deildina, starfsem félagsins.kynnt, 2. árs
nemar miðluðu af reynslu sinni og sóst eftir
embættismönnum fyrir félagið. Allt gekk þetta vel.
Lesaðstaða læknanema
Eins og öllum læknanemum er kunnugt eru
lestraraðstöðumál læknanema í hinum mesa ólestri.
Við reyndum ítrekað að fá haldbærar upplýsingar
um þessi mál frá ýmsum aðilum, bæði innan
læknadeildar og Háskóla íslands. Var yfirleitt lítið um
svör, þau þá óljós eða bar ekki saman. Stutt samantekt
er nauðsynleg til að menn átti sig á þeim breytingum
sem hafa átt sér stað.
Húsnæði læknadeildar að Ármúla 30
Þar höfðu læknanemar u.þ.b. 40 lesborð, sem
þeir misstu strax sl. haust, áður en skólastarf hófst, er
Lyfja- og eiturefnafræði fékk það til afnota.
Lesstofa læknanema að Tjarnargötu 39
Þar hefur fjöldi læknanema grúft sig yfir bókum
í gegnum árin. Allt frá árinu '86 stóð til af hendi
háskólans að selja húsnæðið og tókst það loksins
haustið '88. Þar glötuðust 40 lesborð. Gerðist þetta
áður en komið hafði verið upp aðstöðu fyrir nemendur
íLæknagarði. Skapaðist mikil spenna og óvissa meðal
nemenda hvar skyldi lesa fyrir þau próf er gengu í garð
í desember sama ár.
Læknanemar hafa því misst 80 lespláss á einu
ári. Sú orrusta var töpuð áður en núverandi stjórn tók
við.
Læknagarður (Bygging 7)
Eina lesaðstaðan sem læknanemum var úthlutað
og ætluð þeim einum var bráðabirgðalesaðstaða, með
um 40 borðunr, sem komið var upp á 2. hæð Læknagarðs.
Reyndarflúðu svo nemendurþennan stað vegnahávaða
sem fylgdi framkvæmdum í húsinu.
Það var ekki fyrr en nú í vor að við fengum
upplýsingar um að til stæði að innrétta nýja lesaðstöðu
á 3. hæð, með 30 borðum, og yrði hún tilbúin í haust.
Var áætlað að við mundum einnig halda aðstöðunni á
2. hæð, sem er í raun ætluð tannlæknanemum í
framtíðinni, þar sem að þeir hafa aðstöðu í kjallara
hússins sem læknadeild á hluta af. Þetta varð þó ekki
raunin því tannlæknanemar hafa hreiðrað um sig í
lesstofunni á 2. hæð nú þegar, og læknanemar sitja uppi
með einungis 30 lesborð.
Læknanemar hafa lengi litið á Læknagarð sem
sitt framtíðarhúsnæði og fræðasetur og haft miklar
væntingarum þáaðstöðu sem myndi skapastvið tilkomu
þess húss.
Stjórnarmeðlimir urðu því að vonum nokkuð
undrandi þegar í ljós kom að við hönnun hússins hafði
aldrei verið gert ráð fyrir að þar yrðu uppfylltar þarfir
læknadeildar fyrir leshúsnæði og lesstofurými í
Læknagarði sé fyrst og fremst ætlað þeim nemendum
64
LÆKNANEMINN 1-^989-42. árg.