Læknaneminn - 01.10.1989, Page 75
varnarlausirgagnvartutanaðkomandiáreitum. Tilvera
þeirra er friðlaus. Sífellt dynja á þeim boð utan frá,
sem kryfja þarf til mergjar. Meðvitundin hrœrist í
mörgumheimum. Ogslíkterofvaxiðmeðalbúðarkonu.
Guðmundur hvers föðumafn er ónefnt.
Ljóst var að Guðmundur hvers föðumafn er ónefnt
var andlegt svampdýr. Aldrei gat hann skilið heim
kvenna, hvað þá karla. En hvemig gat hann vitað að
hann ætti eftir að verða ástfanginn af bakteríu?
Gummi sá framtíð sína speglast í augum
fæðingarlæknisins jafnskjótt og hann kom í heiminn.
Frá þeirri stundu þóttist hann vita hvert ferð sinni í
gegnum dagana var heitið. Hann vissi að eyru hans
voru sköpuð til að bera hlustunarpípu, augun til að rýna
í öll heimsins skóp, tungan til að varpa fram spurningum
- því umfram allt vildi Gummi læra, hann var einn
alsherjar nemi. Gríðarlegur viðtaki með óendanlegt
geymslurými. Faðir hans var húsasmíðameistari en
kemur þessu máli annars ekkert við. Talið er að
erfiðleikar Gumma í æsku hafi átt rætur að rekja til þess
að hann hafði aldrei átt móður. Hinsvegar átti hann
síhlægjandi vitsnauðan móðurbróður sem sífellt sneri
hann niður með eymartaki hvenær sem færi gafst.
Guðmundur hvers föðumafn er ónefnt keypti sér
magaspeglunartæki á unglingsárum eftir að hafa safnað
567 þúsund kókglerjum fyrir utan Röðul og
magaspeglaði gegn vægu gjaldi alla þá sem stóðu
sífrostnir í biðskýli SVK við Lönguhlíð. Nítján ára
fékk Gummi CT-tæki frá Félagi miðaldra S VK farþega
og hóf þá þegar umsvifamikla leit að æðavaríant
nokkrumáa. cerebri magnasem Sir ArthurLymphbahn
lýsti á þingi velskra námuverkamanna í York árið
1702. Áhugi hans á læknisfræði óx stöðugt.
Guðmundurhversföðurnafnerónefnt hélt íframhaldi
af þessum rannsóknum í læknadeild að nema hin
göfugu fræði. Þá þegar bar á miklum fídónskrafti hans,
sem sást best á því að hann greip þéttingsfast í alla
hurðarhúna háskólasvæðisins, svipti upp hurðum, sté
inn og mælti hinn fleygu orð af mikilli raust: „Hér er
ég”.
Enginn maður er til frásagnar um hvað eftir fór.
Eitt er þó VÍSt að Guðmundur hvers föðurnafn er ónefnt
umtumaðist í háttum og tók að brosa í sífellu tvíræðu
brosi og muldra torkennilega í hálfum hljóðum. Þeir
einu sem voru meðvitaðir um málavexti voru íbúar
kólóníunnar Sameinuðu Sýkladæmin, þar sem örlög
Gumma voru á allra vitorði. Einum kólóníubúa segist
svo frá (sem var af öllum talinn hinn ábyggilegasti
heimildarmaður);
„Á þriðjaári læknanáms síns þegarGuðmundur
hvers föðurnafn er ónefnt var að athuga þyrpingu
bakteríukólónía á McConkey agarskál barst honum til
eyrna seyðandi rödd undurblíðs og tælandi
umsjónarmanns þáttarins „McConkey síðdegis”, sem
útvarpSMITsendirúteinusinniáviku. Hinundurblíða
og einhleypa baktería töfraði hann þá þegar og náði
senn fullkomnu valdi áöllum hansgerðum. Tilhugalífið
var ástríðuþrungið og uppistóð af saltagaráti og
broðdrykkju yfir gaslampa. I hita augnarbliksins fékk
hún hina grandalausu sál til að hleypa sér inn undir húð
kviðveggjarins og veita sér eilífan unað.”
Heimildarmaður okkar tekur sér nú hvíld frá
frásögninni og gæðir sér á djúpsteiktum keratínósít og
tuttugu ára gamalli Baktec lausn. Svo heldur hann
áfram:
„Svo sannaðist hið fomkveðna, að oft er flagð
undir fagurri kapsúlu. Ekki leið á löngu þar til
útvarpsstirnið kynntist gerspilltri og afvegaleiddri E.
Kólí-bakteríu af miður góðum þarmaættum - og brátt
varð úr hið mesta svínarí með taumlausu framhjáhaldi
og fúkyrðum...bakteríurnar fjölguðu sér svo ekki varð
rönd við reist.”
Heimildarmaður okkar fellir nú snarlega talið
og er ófáanlegur til frekari útlistunar og hverfur á braut.
I sjúkraskýrslu Guðmundar hvers föðumafnerónefnt
stendur að hann hafi verið leiksoppur miskunnarlausra
örlaga, enda var bros hans stirnað þegar sást á eftir
honum sökkva hægt ofan í súkkulaðiagarinn á mótum
lífs og dauða, enda ferjumaðurinn á mála hjá Utvarpi
SMIT.
Blómasölukonur og grasafrœðingar eru
dásamlegt fólk. Eg nefni þetta hér samtíðarmönnum
mínum til glöggvunar enda ávallt betra að átta sig á
grundvallaratriðum áður en haldið er út ísmáatriðin.
Hins vegar er einn hópur þó dásamlegri en
blómasölukonur og grasafrœðingar (og er þá langt til
jafnað) og það eru geimverur. Þœr eru allt um kring
og horfa á okkur handan hins ósýnilega veggjar. Þœr
hafa með mörgu móti áhrif á líf okkar án þess við
verðum þess vör. En að öðrum geimverum ólöstuðum
LÆKNANEMINN 1-^1989-42. árg.
73