Læknaneminn - 01.04.1990, Blaðsíða 14
Mynd 7. Hlutdeild RF í ónæmisstýringu.
A. Stýring á mótefnaframleiðslu. Væki eða ónæmisfléttur ræsa B-frumur til IgG myndunar. IgG getur með því
að tengjast Fc viðtökum áB-frumum bælt IgG myndun. Bindist IgG á Fc viðtaka áT-frumum losna IBF, sem hafa
bælandi áhrif á B-frumur. Örvaðar B-frumur framleiðabæliþáttinn SBF, sem bælir ósértækt B-frumur sem ekki
hafa Fc viðtaka.
B. Áhrif RF á IgG myndun. Ef RF er til staðar í upphafi ónæmissvars geta þeir hindrað bindingu IgG á Fc viðtaka
B-fruma, og stuðlað þannig að áframhaldandi IgG myndun. Á sama hátt geta RF nreð því að hindra bindingu IgG
á T-frumur haft áhrif á framleiðslu IBF. Loks er mögulegt að RF bindist beint á himnubundið IgG á B-frumum
og bæli á þann hátt mótefnaframleiðsluna.
sjúkdómsins. Það er þó ekki fullnægjandi skýring þar
sem finna má RF hækkanir mörgum árum áður en
sjúkdómurinn gerir vart við sig í nokkrunr hluta
sjúklinga að minnsta kosti (31,32,33).
Þannig er ólíklegt að mótefnamyndun sé afleiðing af
sjúkdómi, sem ekki er kominn í ljós. Hitt er þó ljóst
að RF geta með myndun á ónæmisfléttum og með
konrplimentræsingu magnað ónæmissvör, sem kom-
in eru af stað.
Mynd 8 sýnir hvernig talið hefur verið að RF geti
stuðlað að myndun á ónænrisfléttum og viðhaldið
þannig bólguvítahring, jafnvel eftir að hinunr
upprunalega orsakavaldi hefur verið útrýmt.
Jákvætt Waaler-Roseprófílráum titerbendirsterklega
til sjúkdómsins RA. Sama á við um hækkun á IgM
RF og IgA RF, sérstaklega ef hækkunin nær til beggja
flokka. Hins vegar er ekki ljóst hvað einangruð
hækkun á IgG RF segir um sjúkdómsgreiningu eða
horfur í liðagigt. Rannsóknir hafa sýnt að jákvætt
kekkjunarpróf í upphafi bendi til verri sjúkdóms-
gangs í liðagigt en neikvætt próf (34,35).
Menn hafa komist að því að RF magn getur
endurspeglað sjúkdómsvirknina í liðagigt á hverjum
tíma. Niðurstöður er hins vegar ósamhljóða unr það
hvaða RF flokkar endurspegla þetta best. Flestir hafa
þó fundið að magn IgA RF og IgG RF hafi betri tengsl
við sjúkdómsvirkni en IgM RF. Tafla 2 er samantekt
á nokkrum slíkum rannsóknum (36-43). Magn RF í
12
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.