Læknaneminn - 01.04.1990, Page 67
Mynd 2. Áhrif mismunandi styrkleika sermis á
opsoniseringu og frumuát pneumokokka af gerð 8
og 9. Myndin sýnir phagocytosis fyrir(a) og eftir(-)
bóluselningu hjá einstakling sem svaraði bólusetn-
ingu vel og phagocytosis fyrir(o) og eftir(*)
bólusetningu hjá einstakling sem svaraði bólusetn-
ingu frekar illa.
lysine-snauðu æti sem í var bætt geislavirku lysine og
þær þannig geislamerktar.
Til frumuáts voru notuð fleygkjarna hvít blóðkorn
sem einangruð voru úr heilblóði.
Sértæk pneumokokka mótefni, heildar IgG og
undirflokka IgG voru mæld með ákveðinni útgáfu af
ELISU (mynd I).
Frumuát var mælt með því að blanda saman
geislamerktum pneumokokkum og átfrumum í lausn
með mismunandi þéttni serntis (5-40%) sem fengið
var fyrir og eftir bólusetningu (mynd 2) Til að
tryggja að bakteríur yrðu ekki takmarkandi þáttur var
hlutfall baktería miðað við fleygkjarna blóðkorn 20:1.
Undirúningsrannsóknir fóru fram á sermi frá tveim
einstaklingum sem höfðu svarað bólusetningu annars
vegar vel og hins vegar illa. Notaðir voru þeir serum
styrkleikar sem sýndu mestan mun á frumuáti fyrir
og eftir bólusetningu því að sernti virtist verða
takmarkandi fyrir frumuát þegar þéttni þess komst
upp fyrir ákveðin mörk (mynd 3).
NIÐURSTÖÐUR
Töluverð og almenn aukning varð á IgG mótefnum,
af öllum undirflokkum eflir bólusetningu (mynd 4).
Þannig jukust mótefni gegn pneumokokkum hjá
flestum einstaklinganna þótt talsverður munur virtist
vera á svörun milli einstaklinga. Enginn undirflokkur
skar sig úr hvað varðaði mótefnasvörun sem er í
mótsögn við margar fyrri rannsóknir sem telja
mótefnasvörun gegn pneumokokkum fyrst og fremst
takmarkaða við IgG2.
Fylgni var greinileg milli frumuáts og mótefna og
var best fyrir heildar IgG , IgGl og IgG4. Fyrir
bólusetningu var frumuát alls staðar mjög lítið þegar
notuð var lítil þéttni sermis en i'hærri styrkleika serrnis
mældist e-ð frumuát. Eftir bólusetningu er frumát
alltaf töluvert nteira en fyrir bólusetningu og munurinn
var greinilegri og meiri í lægri styrkleika sermis.
Einnig var fylgni mótefna og frumáts best þegar
notaður var lægsti styrkleiki sermis en venjulega verri
í hærri styrkleikum. Skortur á fylgni milli frumuáts
og mótefna úrfyrri rannsóknum getur mögulega verið
vegna notkunar á aðeins einum styrkleika sermis eða
lágu hlutfalli baktería/átfruma.
SAMANTEKT
Athuguð var mótefnasvörun undirflokka IgG við
bólusetningu með 23 gildu Pneumovaxi og borið
saman við breytingar á frumuáti á 3 gerðum
pneumokokka (8,9 og 19). 10 heilbrigðireinstaklingar
voru bólusettir og serrni safnað fyrir og 30 d. eftir
bólusetningu. Sértæk heildar IgG og IgGl,IgG2,
IgG3 og IgG4 voru mæld nteð ELISA aðferð. Frumuát
var mælt með því að blanda saman geislamerktum
pneumokokkunt og PMN-frumum (20:1) í lausn með
ntism. þéttni sermis (5-40%) sem fengið var fyrir og
eftirbólusetningu. Töluverð aukning mótefna, heildar
IgG og allra undirflokka kom fram hjá flestum
einstaklinganna eftir bólusetningu og mikill
einstaklingsmunur var í mótefnasvörun.
Pneumokokkar af gerð 8 virtust vekja bestu
mótefnasvörunina en gerð 19 verstu. Enginn
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
65