Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 89

Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 89
vera dæmi um umbreytingu þar sem fruman annað hvort örvar vöxt sjálfrar sín (autocrine), og/eða hlið- lægra fruma (paracrine). Sum oncogen skrá fyrir viðtökum ýmissa vaxtarþátta. Hægt er að fá fram svipuð áhrif og rætt er um hér að ofan með því að valda stökkbreytingu í við- taka fyrir vaxtarþátt þannig að hann sé stöðugt í virkjuðu ástandi án þess að nokkur ligand komi nærri. Viðtakinn fyrir “epidermal growth factor” er glycoprótein með kínasa virkni. Þegar EGF sest á hann virkjasl kínasinn og phósphórýlerar viðtakann og önnur frumuprótein hratt. ErbB oncogenið sem fannst fyrst í Avian erythroblastosis veiru (AEV), er líklega það sem gerir AEV kleift að innleiða erytroleukemiu í hænsnum og að umbreyta bæði erythroblöstum og fibro- blöstum in vitro. Þegar genið sem skráir fyrir EGF viðtakanum var borið saman við erbB oncogenið, koin í ljós að þau voru analogar. EGF viðtakinn hefur a.m.k. 3 virk domain. Eitt utanfruma sem bindur EGF, annað í cytoplasma sem hefur bæði kínasa virkni og tyrosine sem það phosphórýlerar sjálft, auk transmembrane domains sem tengir þessi tvö saman.Hinn stökk- breytti EGF viðtaki sem erbB í AEV myndar hefur misst utanfrumu domainið og einnig ákveðna hömlun þannig að það örvar frumuna til skiptingar í fjarveru EGF. Ras genin skrá fyrir guanine bindipróteinum. Prótein sem ras skrá fyrir, bæði frá veiru og frumu, binda GTP sértækt sterkum tengjum svo og önnur guanosine nukleótíð. Einnig hefur verið sýnt fram á það að c-ras kóduð prótein hafi GTPasa. Þessi GTPasa virkni er aftur á móti mikið minnkuð í pró- teinum mynduðum frá v-ras. Þegar proto-oncogenið í eðlilegum frumum er borið saman við v-ras kemur í Ijós að eini munurinn á þeim er einn breyttur basi sem leiðir til þess að á einum stað í próteinunum sem genin mynda eru mismunandi amínósýrur. Þessi ákveðna point mutation virðist breyta virkni próteinsins þannig að það hefur minnkaða GTPasa virkni. Önnur frumuprótein sem bindast guanine nukleótíðum og eru GTPasar eru t.d. G prótein sem stjórna virkni adenýl cyclasa. Prótein þessi eru virk þegar þau eru bundin GTP en óvirk ef GTPasinn hefur klofið GTP í GDP. Minnkuð virkni GTPasans myndi þá leiða til þess að adenýl cyclasinn væri stöðugt örvaður. Það má því hugsa sér að þessi guanine bindiprótein sem ras skráir fyrir hafi ákveðna virkni eins og G próteinin og að þau séu stöðugt í örvuðu ástandi þar sem GTPasa virknin er minnkuð. Mætti þá hugsa sér að þessi ofvirkni gæti, beint eða óbeint leitttil umbreytingar á frumum í krabbameinsfrumur. Afurð myc oncogensin er kjarnaprótein. Myc oncogenið er oncogen ýmissa gallaðara avian retroveira. Það er talið innleiða myelocytoma, sarcoma og carcinoma auk þess sem það getur um- breytt hænsna fibroblöstum, myeloidfrumum og þekjufrumum in vitro. Prótein það er myc skráir fyrir finnst í kjarna fruma en ekki er vitað hvað það gerir þar. Hugsanlegt er að þetta sé eins konar bindiprótein sem hafi áhrif á stjórn mítósu. Frumu myc oncogenið hefur áreiðanlega mikilvægu hlutverki að gegna í skiptingu fruma og er tjáð þegar eðlilegar frumur skipta sér og einnig í æxlisfrumum. I frumum sem skipta sér ekki er myc mRNA greinilega lækkað. Ef þær eru örvaðar með mítógenum (s.s. PDGF ef um l'ibroblasta er að ræða), kemur myc mRNA fram innan tveggja stunda. Frumu myc er samsett úr 3 exonum. Fyrsta exonið er ekki þýtt í próteinum. Sú hugmynd hefur komið fram að þetta exon hafi stjórnunarhlutverki að gegna í sambandi við tjáningu á c-myc. v-myc hefur tapað þessu fyrsta exoni og einnig lent undir stjórn LTR. Ekki er ólíklegt að þessar tvær breytingar í stjórnun á tjáningu gensins gætu breytt c-myc í virkt oncogen. Hingað til hafa ekki fundist önnur gen eins og myc í retroveiru en önnur svipuð gen s.s. L-myc og N- myc eru mikið tjáð í sumum æxlum. T.d. er N-myc LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg. 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.