Læknaneminn - 01.04.1990, Síða 95
formaður félagsins fór á stúfana var honum sagt að nú
væri um sparnaðarráðstöfun að ræða.
Það er í hæsta máti óeðlilegt að kennslusjúkrahús
útiloki hluta af þeim nemum, sem stundar þar nám, úr
matsal. Má í því tilviki benda á 9. lið 7. greinar
samnings Háskólans við Borgarspítalann annars vegar
og Landakot hinsvegar, en þar stendur: Læknanemar
sem sækja kennslustundir á sjúkrahúsinu eða stofnun
í tengslum við það skulu hafa rétt til að kaupa mat í
matsal sjúkrahúsins á sama verði og starfsfólk.
Formaður hefur rætt við forstjóra og
framkvæmdastjóra tæknisviðs Ríkisspítalanna og hafa
nú Ríkispítalar loks samþykkt að læknanemar sem
komnir eru a.m.k. á þriðja ár fái að kaupa fæði í
matsal Landspítala á sama verði og starfsfólk. Þurfa
þó þeir 3. og 4. árs nemar sem eru í bóklegu námi á
Landspítalanum og ekki eiga einkenniskort að sýna
félagskort FL þar til ákveðið verður nánar hvernig
framkvæmdin verður.
Kcnnslukannanir. Formaður kennslumálanefndar
greinir frá þessum málum í sinni skýrslu, en mikil
vinna er framundan hjá kennslumálanefnd við að
ákveða hvernig kennslukönnun hæfi best fyrir
Læknadeild. Sjálfsagt er að læknanemar fari fram
á að hafa allar niðurstöður aðgengilegar og standi
fast á sínu ! Erfitt er að skilja af hverju niðurstöðurnar
ættu að vera leyndarmál.
Hepatitis B. Nokkur tími er nú liðinn síðan farið var
að bólusetja valda hópa starfsfólks á spítölum gegn
lifrarbólguveiai B. Almennt hefur læknanemum ekki
staðið til boða slík bólusetning. Einstaka læknanemar
hafa hins vegar óskað eftir slíkri bólusetningu og
jafnan verið vel tekið.
Félag læknanema taldi það tímabært í vetur að allir
læknanemar ættu þess kost að vera bólusettir, enda
hljóta þeir að teljast útsettir fyrir smiti í námi sínu.
Væri þessi bólusetning um Ieið kjörið tækifæri til að
kanna bólusetningastatus sérhvers læknanema og bæta
úr þar sem á skortir. Ritari FL sendi deildarforseta
bréf þar sem farið var fram á bólusetningu læknanema
áður en þeir fara út í klíníska vinnu. Nú liggur bréfið
hjá Sigurði B. Þorsteinssyni dósent og sérfræðingi í
smitsjúkdómalækningum, en hann er formaður
Sýkingavarnanefndar Ríkisspítala. Það sem stendur í
vegi fyrir þessari framkvæmd er spurningin um hver
bera skuli kostnað af slíkum bólusetningum. í því
sambandi beinast spjótin þó helst að Ríkisspítölunum.
Hagsmunanefnd. Ýmsar hræringar eru nú í málum
aðstoðarlækna. Færri kandidatar útskrifast en áður
og þar af leiðandi fækkar aðstoðarlæknum. Uppi eru
hugmyndir um breytingar á aðstöðu og aðbúnaði
aðstoðarlækna og almennt er talin nauðsyn á því að
skilgreina starf þeirra betur. Tillögur eru um
framhaldsmenntun og heyrst hafa raddir um
héraðsskyldu !
Nauðsynlegt er fyrir læknanema að fylgjast grannt
með þróun þessara mála. I þessu sambandi er það
tillaga stjómar að stofnuð verði hagsmunanefnd sem
hefur það hlutverk að annast tengsl við FÚL (Félag
ungra lækna) og miðla upplýsingum til læknanema
af þeim vettvangi.
Kynningarmynd læknadeildar. Fyrir tveimur árum
var Háskólinn að vinna að gerð heimildarmyndar um
allar deildir skólans. Var þá hafist handa við gerð
kynningarmyndar um Læknadeildina og unnu fjórir
læknanemar ásamt Sigurði Sigurjónssyni að handriti
um sumarið 1988. Síðan gerðist ekkert meir. í vor
hafði síðan Stöð 2 samband við Iæknanema og tilkynnti
að myndin yrði á dagskrá 24. maí og því best að drífa
í þessu. Framleiðendur og Ieikarar myndarinnar voru
þá í prófum og má vera að hún beri vissan keim af
því. Myndin mun vera í léttara lagi en okkur var sagt
að kynna deildina frá okkar sjónarhorni. Þess ber að
geta að myndin var ekki unnin í samráði við
Læknadeild og ber hún því enga ábyrgð á gerð hennar.
Hægt er að fá lánuð eintök til skemmtunar eða fróðleiks
hjá stjómarmönnum.
Opiðhús. I mars 1990 var haldin í Þjóðarbókhlöðunni
kynning á ýmsum deildum Háskólans og öðrum
sérskólum. Páll Matthíasson tók sér það fórnfúsa starf
fyrir hendur að vera fulltrúi okkar læknanema í
undirbúningnum. Síðan skiptust hann og Ágúst
Sverrisson, ritari Félags læknanema, á að sitja í bás
og lokka að fríðar stúlkur og jafnframt kynna
Læknadeild.
LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg.
93