Læknaneminn - 01.04.1990, Page 101

Læknaneminn - 01.04.1990, Page 101
Lagabreytingartillögur til stuðnigs slíkri nefnd verða lagðar fyrir á aðalfundi nú í okt. Þá er jafnframt ætlunin að bæta enn um betur og bjóða tveimur 1. árs nemum til liðs við nefndina. Sem sagt, væntanlega verður stúdentaskiptanefndin skipuð átta fulltrúum í vetur. Ætlar þetta fólk síðan að snúast um sjálft sig? Ég er nú hrædd um ekki. Ásókn erlendra læknanema hingað er með ólíkindum og fyrir s.l. sumar telst mér til að alls hafi um 50 umsóknir borist. Höfðu 28 af þeim erindi sem erfiði og sáum við framan í 25 þeirra nú í sumar. Með slíkan fjölda urðu töluverð vandkvæði með húsnæðismál en allt bjargaðist að lokum. Frá ísl. læknanemum bárust alls 25 umsóknir en 10 þeirra sýndu viljannn í verki, sóttu helst í sól, sumar og fjarlæga menningu, til Spánar, Grikklands, Tyrklands og Egyptalands. Stúdentaskiptastjórar leituðu líka út fyrir landsteinana og fóru á tvær ráðstefnur. I mars var ráðstefna í Tyrklandi þar sem fram fóru skipti á umsóknum. í ágúst í sumar var svo farið á “allsherjarþing” IFMSA sem fram fór í Tékkó, voru þeirri ráðstefnu gerð góð skil í Meinvörpum. Margt gott var þar á ferð og þess virði að fylgjast vel með. Hvað varðar fjármögnun stúdentaskiptanna ber fyrst að nefna styrk frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og kunnum við þeim kærar þakkir fyrir. Sömuleiðis erum við styrkt af Stúdentaskiptasjóði Stúdenta í H.I. Ráðargerðir eru uppi urn að fara að rukka hærra gjald fyrir umsóknareyðublöðin en dæmi eru fyrir og veitir víst ekki af fjármagninu, meiri fréttir um það seinna. Ymsar breytingar eru viðbúnar á nýju starfsári og ættu að stefna okkur fram um mörg skref. Um leið og ég kveð stúdentaskiptin óska ég væntanlegri stúdentaskiptanefnd góðs gengis og minni ykkur á að starfsemin er ykkur öllum opin. Nanna S. Kristinsdóttir SKÝRSLA HÓPSLYSANEFNDAR Hópslysanefnd stóð fyrir árlegu námskeiði í skyndihjálp síðastliðið vor. Að þessu sinni var námskeiðið með nokkuð öðru sniði en undanfarin ár og fyrst og fremst ætlað 4. og 5. árs nemum. í stað hefðbundins námskeiðs í grundvallaratriðum skyndihjálpar voru fengnir tveir fyrirlesarar. Annars vegar fjallaði Bjami Hannesson, heila- og tauga- skurðlæknir, um höfuð- og mænuáverka og hvemig standa á að fyrstu meðferð og flutningi sjúklinga með slíka áverka. Hins vegar ræddi Guðmundur Þor- geirsson hjartalæknir um endurlífgun og lagði sérstaka áherslu á lyfja- og rafstuðsmeðferð í hjartastoppi. Báðum fyrirlesurum var vel tekið en u.þ.b. sextíu nemendur mættu á fundinn. Óhætt er að fullyrða að slíkir fundir fyrir eldri nemendur eiga fullan rétt á sér, ekki síst þar sem skipulögð kennsla í endurlífgun hefur verið í ólestri innan deildarinnar. Er það miður en stendur vonandi til bóta í nýju kennslufyrirkomulagi Læknadeildar. I haust stóð til að halda námskeið ætlað 1. og 2. árs nemum í grundvallaratriðum skyndihjálpar en því miður gat það ekki orðið og bíður það verkefni næstu hópslysanefndar. Tómas Guðbjartsson SKÝRSLA LÆKNANEMANS Starf ritnefndar Læknanemans hefur verið hvort tveggja, skemmtilegt og notalegt það sem af er. Útgáfa næsta tölublaðs er í deiglunni og mun það líta dagsins ljós í jólamánuðinum. Er það von okkar að menn finni þar bæði fróðlegt og forvitnilegt efni. Sigurður Böðvarsson SKÝRSLA FULLTRÚARÁÐS VISINDAFERÐ var farin til Vestmannaeyja helgina 28.-29.okt.’89. 52 læknanemar fylktu liði í eftirminnilega ferð. JÓLABALL var haldið í Norðurljósum, Þórscafé. Mæting mjög góð. ÁRSHÁTÍÐ var haldin hinn 8. febrúar 1990 í Súlna- sal Hótel Sögu. Matargestir voru 212. Heiðursgestir voru Próf. Snorri Páll Snorrason og frú. KYNNINGARBALL hinn 21. október 1989 í Vetrarbrautinni, Þórscafé. Til leiks mættu 169 manns -sannkölluð metaðsókn. Auður Smith LÆKNANEMINN 1 1990 43. árg. 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.