Læknaneminn - 01.04.1990, Side 104
STEFAN THORAR ENSEN
BRAUTRYÐJANDI
LYFJASÖLU
Á í S L A N D I
í sjö áratugi hafa fyrirtæki Stefáns Thorarensen verið einn traustasti bak-
hjarl íslenskrar heilbrigðisþjónustu.
Saga þess hófst, þegar Stefán Thorarensen varð apótekari í Laugavegs-
apóteki árið 1919. Þetta var árið eftir spönsku veikina og ísland nýorðið
frjálst og fullvalda ríki. Bjartsýni var ríkjandi, Islendingar eignuðust fyrstu
flugvélina, Halldór Laxness gaf út fyrstu bók sína, Saga Borgarættarinnar
var kvikmynduð og erlent knattspyrnulið keppti í fyrsta sinn á Islandi.
Stefán Thorarensen hóf þegar innflutning á lyfjum og efnum til lyfjagerðar,
en jafnframt stóð hann fyrir framleiöslu á ýmsum lyfjum og Iyfjaformum.
Frá upphafi seldi Stefán ýmsar vörur, sem tíðkaðist að selja í apótekum, en
lyfjaframleiðslan óx hröðum skrefum og var í stöðugri framþróun. Stefán
keypti þá fyrstu vélknúnu töflusláttuvélina hingað til lands og einnig fyrstu
fjölstimplavéina. Svo vel dafnaði starfsemin, að umsvif þess urðu fljótlega
meiri en hægt var að sinna í Laugavegsapóteki.
Stefán fékk sérstakt leyfi til lyfjaheildsölu, hið fyrsta sem veitt var á íslandi.
Næsti áfangi var stofnun heildsölunnar Stefán Thorarensen hf. árið 1943 og
yfirtók hún alla heildsölu á lyfjum og hjúkrunargögnum, sem Laugavegs-
apótek hafði annast. Frá upphafi hefur heildsalan miðað rekstur sinn nær
eingöngu við þarfir apóteka, héraðslækna, sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva. I dag er Stefán Thorarensen hf. nútímaleg heildverslun, sem byggir
á faglegri þekkingu og langri reynslu.
Ný þjónustudeild selur háþróuö rannsóknatæki og rekstrar- og fylgivörur
með þeim.
— Slefán Thorarensen hf. sameinar gamla og nýja tíma, verslar með smávöru
o
a og flókinn tæknibúnað — og fyrirtækið stendur í blóma.
Stefán Thorarensen
19 4 0
^.Stefan
Thorarensen
Síðumúla 32.