Bændablaðið - 20.07.2023, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
FRÉTTIR
Borun er hafin við Reyki fyrir hita-
veitu Blönduóss og Skagastrandar.
Byrjað var að bora fyrstu af fjórum
rannsóknarholum við Reyki laust
fyrir síðustu mánaðamót, að því er
kemur fram á vef RARIK.
Er farið í verkefnið til að finna
meira heitt vatn fyrir hitaveitu
Blönduóss og Skagastrandar þar
sem afkastageta núverandi svæðis er
um það bil fullnýtt. Segir að ætlunin
sé að bora fjórar rannsóknarholur,
allt að 500 m djúpar, og út frá þeim
gögnum sem fást úr holunum verði
ný vinnsluhola staðsett.
Að tillögu ÍSOR er borað austan
og vestan við núverandi vinnslu-
svæði og er ætlunin að leggja mat á
stærð svæðisins, athuga hvort líkur
séu á að finna heitt vatn utan við
núverandi nýtingarsvæði og sem fyrr
segir að finna hentuga staðsetningu
fyrir vinnsluholuna sjálfa.
„Verktaki við borunina er Finnur
ehf. á Akureyri en það fyrirtæki
hefur nýlega flutt inn nýjan öflugan
beltabor sem hentar vel í umrætt
verk,“ segir í tilkynningu RARIK.
„Ummerki á landi ættu því að vera
í lágmarki, auk þess sem nauðsynleg
loftpressa er höfð á vörubíl sem getur
í þessu verkefni staðið á vegslóðum
sem þegar eru til staðar og þaðan
lagðar loftslöngur að bornum.“ /sá
Vantar nýja vinnsluholu
Borun við Reyki fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar. Mynd / RARIK
Nýjar tvíbreiðar brýr voru
nýlega vígðar austan Kirkju-
bæjarklausturs.
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri
Vegagerðarinnar, og Sigurður Ingi
Jóhannsson innviðaráðherra mættu
ásamt gestum í Skaftafellssýsluna
til að klippa þar á borða vegna
vígslu nýrra tvíbreiðra brúa yfir
Núpsvötn og Hverfisfljót austan
Kirkjubæjarklausturs. Með til-
komu þessara brúa fækkar ein-
breiðum brúm og verða því 29 á
hringveginum.
Umferðaröryggi eykst til muna
með nýju, tvíbreiðu brúnum og þær
stuðla að greiðari samgöngum.
Áður var brúin yfir Núpsvötn sú
brú þar sem flest slys hafa orðið við
einbreiða brú á hringveginum. /mhh
Einbreiðum brúm fækkar
Loftmynd af nýju brúnni og gömlu brúnni yfir Núpsvötn.
Fjöldi íslenskra geita fer hægt
vaxandi og eru nú skráðar 1.886
geitur í landinu. Þeim fjölgar að
meðaltali um 8% á ári um þessar
mundir.
Samkvæmt mælaborði land-
búnaðarins stækkaði íslenski geita-
stofninn um 214 geitur milli áranna
2021 og 2022, að sögn Brynjars Þórs
Vigfússonar, formanns Geitfjár-
ræktarfélags Íslands. Segir hann þar
væntanlega um sjálfbæra stækkun
stofnsins að ræða. Frá 2002 hefur
stofninn stækkað reglulega ár hvert.
„Líklega má helst þakka stækkun
stofnsins óeigingjörnu framlagi
geitabænda í að viðhalda honum,“
segir Brynjar. „Ef vel á að vera
þarf stofninn að komast upp í um
4.800–7.200 kvendýr til að forðast
útrýmingu. Við eigum töluvert eftir
í land þar. En verði áfram sú fjölgun
sem hefur verið getur þess ekki verið
langt að bíða.“
Ná þarf afurðum á markað
Til þess að stofninn nái almennilegri
fótfestu segir hann búum með 50 eða
fleiri geitum þurfa að fjölga. „Svo
það geti orðið að veruleika þarf að ná
að koma afurðum á markað þannig
að góð afkoma verði af ræktuninni.
Þar hefur mikið og gott starf verið
unnið af frumkvöðlum víðs vegar um
landið. Mögulega þurfa að koma á
sviðið aðilar sem kaupa afurðir af
bændum og koma þeim á markað. Nú
eru flestar, ef ekki allar, geitaafurðir á
markaði vegna einstaklingsframtaks
sem bæði hefur sín tækifæri og
takmörk.“
Geitin gefur af sér þrenns konar
afurðir: kjöt, mjólk og fiðu. Allt eru
þetta afurðir sem eru verðmætar.
Brynjar segir mögulega þurfa að
auka aðgengi að styrkjum fyrir
geitabændur, bæði fyrir frumkvöðla
og rannsóknir á afurðum og ræktun.
„Þróunarfé fyrir geitur og fagráð
geitfjárræktar á fullan rétt á sér, líkt
og í öðrum greinum. Þar þarf lítið
annað en viljann að vopni og hann
skortir ekki hjá geitabændum. Allt
getur þetta hjálpað til við að stækka
stofninn og efla ræktun og komið
honum á góðan stað.“
Hækkun áskriftar letjandi
Formaðurinn telur að greinin hafi
orðið fyrir miklu bakslagi þegar
gjaldskrá hækkaði hjá Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins, RML,
varðandi skýrsluhaldsforritið Heið-
rúnu. Þar hafi gjaldskrá hækkað á
bilinu 130–400% á einu bretti fyrir
bændur.
„Árlegur kostnaður fór úr um
1.000 kr. í 4.700 kr. að meðaltali á
skýrslufærða geit miðað við þau gögn
sem ég hef. Ég held því miður að þar
muni einhverjir hugsa sig vandlega
um þegar kemur að endurnýjun
áskriftar. Er það er mjög miður þar
sem skýrsluhald er mikilvægt, sér í
lagi þegar kemur að því að lágmarka
skyldleikarækt og halda utan um
lítinn stofn.
Eftir samtal við RML tel ég að
þessu verði ekki breytt, þótt ágóðinn
af þessari hækkun sé mögulega ekki
marktækur í bókhaldi RML. En þetta
er þungt fyrir geitabændur ofan á allar
aðrar hækkanir,“ segir Brynjar.
/sá
Geitur:
Um 8% fjölgun milli ára
Íslenski geitastofninn stækkar frekar hægt en örugglega þó.
Mynd / Jón Eiríksson
Laugardaginn 24. júní síðastliðinn var fyrsta
skóflustungan tekin að byggingu nýs parhúss
á Kópaskeri.
Ekki hefur verið byggt nýtt hús á Kópaskeri
í áratugi og því um sögulegan viðburð að ræða.
Húsið verður við Drafnargötu 4 og er byggt fyrir
Leigufélagið Bríet, óhagnaðardrifið leigufélag.
Markmið félagsins er að vera hluti af
uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar, sem
stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með
sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi
við sveitarfélögin í landinu.
„Það hefur verið unnið að þessu verkefni frá
árinu 2020 og því stór stund að loksins sé búið að
taka fyrstu skóflustunguna. Það hefur líka verið
vöntun á húsnæði á staðnum í nokkur ár og það
hefur staðið atvinnulífinu og vexti staðarins fyrir
þrifum,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri
Norðurþings.
Ríflega 120 manns búa á Kópaskeri. Reiknað
er með að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar
á vordögum árið 2024. /mhh
Kópasker:
Fyrsta skóflustungan í áratugi
Fv. Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, Marinó
Eggertsson, Eggert Marinósson byggingarverktaki, Charlotta
Englund, atvinnu- og samfélagsfulltrúi Öxarfjarðarhéraðs og
Elvar Árni Lund, sviðsstjóri hjá Norðurþingi. Marinó, faðir
Eggerts, byggði síðasta íbúðarhúsið sem reist var á Kópaskeri
á níunda áratug síðustu aldar. Mynd / Haukur Snorrason
Hampsteypa fellur ekki undir
samhæfðan staðal um byggingar-
vörur sem innleiddar eru af Staðla-
ráði Íslands.
Nauðsynlegt er að gera frekari
rannsóknir og leggja mat á notkunar-
hæfni hampsteypu við íslenskar
aðstæður til að nota hana í auknum
mæli. Þetta er meðal þess sem kemur
fram í svari innviðaráðherra við
fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar
um hampsteypu á Alþingi.
Hampsteypa er ekki nothæf sem
berandi byggingarefni en er í flestum
tilvikum notuð sem einangrunarefni
eða sem innveggjahleðslur, mest þá
sem forsteyptir hleðslusteinar. Mat
Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
(HMS) á efniseiginleikum hamp-
steypu er að hljóðísog sé gott,
hún hafi nokkuð lága rúmþyngd
og ágæta einangrunarhæfni. Efnið
sé mjög gufuopið og rakadrægt,
hafi góða varmarýmd og ágæta
efniseiginleika til að geyma raka
og sleppa honum aftur til baka í
umhverfið.
„Rannsóknir hafa sýnt að hamp-
steypa er viðkvæm fyrir hita-
breytingum í þornunarferli, sem hefur
áhrif á eiginleika hennar, og þar er
kuldi einna helst áhrifaþáttur,“ segir
jafnframt í svari innviðaráðherra.
Framleiðsla við stýrðar aðstæður er
einn besti kosturinn til að hámarka
gæði hennar.
Segir í svarinu að telja verði að
staðsteypa eða önnur hrávinnsla á
verkstað sé vandasöm við íslenskar
aðstæður ef tryggja eigi gæði hamp-
steypunnar.
„Efnið hefur langan útþornunar-
tíma og gæti haft í för með sér lengri
framkvæmdatíma. Rannsóknir á
hentugri efnisblöndu fyrir íslenskt
veðurfar hafa ekki verið gerðar enn
sem komið er, svo vitað sé.“
Í Bændablaðinu í apríl sl. kemur
fram að byggja eigi tilraunahús með
hampsteypu á sumarbústaðalandi
í Grímsnesi. HMS fylgist með
rannsókninni og fær niðurstöður
hennar til rýni og til að meta frekari
rannsóknarþörf. /ghp
Innviðaráðuneyti:
Rannsókna þörf á hampsteypu