Bændablaðið - 20.07.2023, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
FRÉTTIR
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Nokkrar umsagnir hafa borist
velferðarnefnd Alþingis um þings-
ályktunartillögu um ræktun lyfja-
hamps og notkun kannabisefna í
lækningaskyni sem lögð var fram
á vorþingi.
Í umsögn Bændasamtaka Íslands
kemur fram að samtökin „styðja það
meginefni þingsályktunartillögunnar
að setja á laggirnar starfshóp til
að kanna breytingar á regluverki,
sem gera eigi það kleift að
hefja rannsóknir á möguleikum
til notkunar og hagkvæmni
ræktunar slíkra plantna á Íslandi í
lækningaskyni“. Í tillögunni fólst
að settur yrði á fót starfshópur
sem hefði „það hlutverk að útbúa
frumvarp sem heimili fyrirtækjum að
sækja um leyfi fyrir ræktun lyfja-
hamps til kannabisræktunar og
fyrir framleiðslu og dreifingu á
kannabislyfjum í lækningaskyni.
Um verði að ræða fjögurra ára
tilraunaverkefni sem hefjist 1. janúar
2024. Heilbrigðisráðherra leggi
fram frumvarp þessa efnis fyrir 31.
desember 2023.“
Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga mælir ekki með stofnun
slíks starfshóps og vísar m.a. til
rannsókna, þróunar og íslenskra
lyfjalaga og -reglugerða um
framleiðslu lyfja. Þá sé vísindalega
sannaður ávinningur af notkun
kannabis í læknisfræðilegum
tilgangi veikur. Hampfélagið fagnar
hins vegar þingsályktunartillögunni
en gerir þær breytingatillögur
að vinnsla lyfjahamps sé ekki
einskorðuð við Cannabis Sativa,
sem hafi lágt THC-gildi, því þar
með takmarkist þau yrki sem hægt
sé að nota í framleiðsluna. Jafnframt
segir að áríðandi sé að leyfi til að
nota lyfjahamp sé ekki takmarkað
við ákveðna sjúkdóma.
Í greinargerð með tillögunni er
vísað til fyrirkomulags hjá Dönum
en ræktun lyfjahamps þar er háð
leyfi dönsku lyfjastofnunarinnar og
landbúnaðarstofnunin umsagnaraðili
varðandi landbúnaðarhliðina. Ríkis-
lögreglan leggi mat á umsækjendur
vegna ræktunarleyfa. Á fimmta
tug landa hafa lögleitt kannabis til
lækninga að hluta eða fullu.
Frestur til að skila umsögnum
rann út í maílok en málinu var vísað
til velferðarnefndar hálfum mánuði
áður. Um er að ræða endurtekna
þingsályktunartillögu frá 2022 en
svipuð tillaga kom fyrst fyrir þingið
2017. /sá
Bændasamtökin styðja
frekari athugun
Ýmsir vilja að skoðaðir verði möguleikar á Íslandi til notkunar lyfjahamps í
lækningaskyni. Mynd / Hayley Zacha
Ýruskjótt folald með
einkennilega blesu
Ýruskjóttur blesóttur kallast
litasamsetning þessa fallega
folalds.
„Hann er eini hesturinn með
þessa samsetningu á Íslandi eða brún
ýruskjóttur og varblesóttur,“ segir
Bríet Auður Baldursdóttir á Akurey
2 í Rangárþingi eystra, einn eigenda
folaldsins Prins, sem er með þessa
einstöku litasamsetningu. Prins
fæddist þann 18. júní síðastliðinn.
Litaafbrigðið ýruskjótt kemur frá afa
hans, Ellert ifrá Baldurshaga, sem
var fyrsti hesturinn sem skilgreindur
var ýruskjóttur. Foreldrar Prins eru
Ófeigur frá Baldurshaga, móálóttur
ýruskjóttur með vagl í auga, og
móðir er Ekkja frá Nesi, sótrauð,
breiðblesótt, leistótt með grásprengt
fax og tagl. Auk Bríetar eru María
Brá og Ronja Bella Baldursdætur
eigendur Prins.
Blesa Prins þykir sérstaklega
athyglisverð en þekkist í erlendum
hestakynjum og nefnist þar „Badger
face“ en hefur ekki sést áður á
Íslandi. /mhh Prins með móður sinni, Ekkju, úti í haga í Akurey 2 en hann er með einstaklega
fallega litasamsetningu. Mynd / Aðsend
Hænur í fangelsi
Í fangelsinu á Sogni í Ölfusi eru
nokkrar hænur, sem fangar og
fangaverðir sjá um.
Nýlega auglýsti fangelsið eftir
nokkrum hænum til viðbótar og
viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Margir buðu hænur og fór svo að
fimm hænur bættust við. „Við heitum
nýju hænunum góðum félagsskap
og góðu atlæti frá þessum tíu eldri
hænum sem við erum með,” segir
Baldur Gauti Tryggvason, varðstjóri
á Sogni. /mhh
Það gefur föngunum á Sogni mikið
að fá að sjá um hænurnar og fá
góðan félagsskap frá þeim.
Hrunamannahreppur:
Burt með allan njóla og kerfil
Njóli og kerfill voru til
umræðu í umhverfisnefnd
Hrunamannahrepps á dögunum.
Nefndin hefur með sérstakri
bókun hvatt íbúa sveitarfélagsins,
lóða- og landeigendur til að hreinsa
dauðan og illa farinn gróður af lóðum
og fjarlægja ágengar gróðurtegundir
eins og kerfil og njóla, til að sporna
við útbreiðslu.
„Fólk er því miður frekar rólegt í
að ráðast í þá vinnu að eyða þessum
tegundum. Auðvitað eru nokkrir sem
eru mjög duglegir og við mættum
öll taka þau okkur til fyrirmyndar,
t.d. hafa bræðurnir Guðmundur og
Sigurður Magnússynir verið ansi
duglegir að vinna að því að reyna
að uppræta þessar tegundir og þá
sérstaklega kerfilinn. Þeir hafa gefið
sér tíma til að stoppa hvar sem þeir
eru á ferðinni og moka upp brúska
með vegum. Það hafa því fleiri en
við Hrunamenn fengið að njóta
þeirra verka. Nauðsynlegt er að
fara í sameiginlegt átak í eyðingu
og svo að vinna jafnt og þétt að því
að halda þessum tegundum niðri.
Við verðum að gera þetta saman,
annars tekst þetta ekki,“ segir
Halldóra Hjörleifsdóttir, formaður
nefndarinnar.
Halldóru þykir slæmt þegar njóli
nær að dreifa sér eins mikið og hann
er að gera í Hrunamannahreppi,
það sé ekki til mikillar prýði fyrir
samfélagið.
„Kerfillinn er ansi skæður
þar sem hann dreifir sér hratt og
yfirtekur jarðveginn og skemmir
fyrir öðrum gróðri í kringum sig.
Njólinn er ekki eins slæmur með
það, en það er með hann eins og
kerfilinn að hann er fljótur að dreifa
sér og það er mjög slæmt að fá hann
í tún og grænmetisgarða því hvorki
menn né skepnur vilja éta hann. Best
væri auðvitað að finna eitthvert gagn
af þessum tegundum og nýta þær.
Slæmt er að þurfa að eyða tíma
í að útrýma þessum gróðri sem
virðist dafna sama hversu leiðinlegt
veðurfarið er hjá okkur.“
/MHH
Halldóra Hjörleifsdóttir.
Landsvirkjun leitar nú að nýjum
höfuðstöðvum eftir að mygla
greindist í skrifstofuhúsnæði
fyrirtækisins.
Stjórn Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga (SASS) vill að
höfuðstöðvarnar verði fluttar
á Suðurland. „Stór hluti
raforkuframleiðslu landsins fer
fram á Suðurlandi og er það ein af
niðurstöðum orkunýtingarstefnu
sveitarfélaga á starfssvæði SASS
2017-2030 að eðlilegt sé að
höfuðstöðvar Landsvirkjunar séu
staðsettar þar sem orkuframleiðslan
fer fram. Í ljósi þeirrar aðstöðu
sem Landsvirkjun er í vegna
myglu í höfuðstöðvunum þykir
stjórninni ástæða til að vekja athygli
fyrirtækisins á þeim augljósa kosti
að nýta tækifærið og byggja upp
nýjar höfuðstöðvar á Suðurlandi,“
segir Ásgerður K. Gylfadóttir,
formaður stjórnar SASS.
Flutningur Landsvirkjunar
myndi efla atvinnulíf á Suðurlandi
og skapa tekjur fyrir sveitarfélagið
þar sem uppbyggingin ætti sér
stað. Eftirsóknarverð störf myndu
flytjast inn á svæðið, auk þess sem
starfsemin yrði meira í tengslum við
uppsprettu orkunnar.
„Ég er bjartsýn á að stjórn og
forsvarsmenn Landsvirkjunar
sjái þá möguleika sem felast í
frekari uppbyggingu á starfsemi
fyrirtækisins á Suðurlandi. Mikil
gróska og uppbygging hefur átt
sér stað í landshlutanum á síðustu
árum sem gerir það að enn betri
kosti bæði til reksturs og búsetu.
Þetta yrðu um 180 störf ef öll
starfsemin flytti en samkvæmt
auglýsingu Landsvirkjunar þurfa
nýjar höfuðstöðvar að vera um 5–6
þúsund fermetrar á 2–4 hæðum og
þær þurfa að geta mætt breytilegum
þörfum fyrirtækisins til lengri og
skemmri tíma,“ segir Ásgerður.
Bjóða Hellu fram
Byggðaráð Rangárþings ytra hefur
samþykkt að beina því til stjórnar
Landsvirkjunar að skoðað verði að
höfuðstöðvar fyrirtækisins verði
fluttar á Hellu að hluta eða öllu leyti.
Fyrirtækið sé í eigu þjóðarinnar
allrar og það eigi ekki að vera
náttúrulögmál að höfuðstöðvar
fyrirtækisins séu í Reykjavík.
/mhh
Innviðir:
Sunnlendingar vilja höfuðstöðvar
Landsvirkjunar til sín
Ásgerður K. Gylfadóttir.