Bændablaðið - 20.07.2023, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
FRÉTTASKÝRING
Deilt um framtíð lausagöngu
– Breytir álit umboðsmanns Alþingis stöðu sauðfjárbeitar?
Þann 11. október síðastliðinn
skilaði umboðsmaður Alþingis
af sér áliti, eftir að landeigandi á
Snæfellsnesi hafði sent inn kvörtun
eftir að ráðuneyti sveitarstjórnarmála
hafði stutt ákvörðun Snæfellsbæjar
um að neita að smala ágangsfé af
jörðinni.
Þeir sem vilja lesa álitið í heild
sinni geta flett upp máli 11167/2021
á heimasíðu umboðsmanns Alþingis.
Það er þó líklegt að hjá flestum vakni
fleiri spurningar en svör, enda álitið
tyrfið og með vísunum í hin og
þessi lög og þróun þeirra. Hér fyrir
neðan eru viðtöl við nokkra af þeim
aðilum sem þekkja málið best, en
túlkun þeirra á mikilvægi og áhrifum
álitsins er ekki alltaf sú sama.
Talsverður aðdragandi
Kristínu Magnúsdóttur er málið
kunnugt. Hún var ósátt við mikinn
ágang búfjár á jörð hennar á
Snæfellsnesi og eru hún og maðurinn
hennar landeigendurnir sem sendu
umboðsmanni Alþingis kvörtun.
Kristín, sem er lögfræðimenntuð
og hefur oft skrifað um málið í
fjölmiðlum, segir álit umboðsmanns
breyta öllu. Hún vonar að þetta
sé upphafið að þeim breytingum
að ágangsbeit í heimalandi hætti.
Jafnframt vonast hún eftir að
búfjáreigendur taki ábyrgð á sínum
rekstri og dýrum.
Kristín tekur sérstaklega fram
að nú séu búfjáreigendur og
Snæfellsbær með aðgerðir í gangi til
að varna ágangi. Ástandið sé orðið
miklu betra og vill hún hrósa öllum
hlutaðeigandi aðilum.
Forsaga málsins er sú að Kristín
og eiginmaður hennar sendu
Snæfellsbæ beiðni um að smala
ágangsfé á jörð þeirra. Þau töldu
sveitarfélagið bera skyldu til þess
samkvæmt lögum um afréttarmál,
fjallskil o.fl. frá 1986. Í 33. grein
þeirra laga segir meðal annars:
„Stafi ágangur [...] af búfé, sem
heimilt er að hafa í heimahögum,
ber sveitarstjórn að láta smala
ágangsfénaði og reka þangað, sem
hann á að vera, á kostnað eiganda ...“
Yngri lögin framar
Sveitarstjórnin taldi hins vegar að
henni bæri ekki að smala og báru
fyrir sig 8. og 9. grein laga um
búfjárhald frá 2013. Þar er sagt að
landeigendum sé heimilt að friða
land sitt fyrir umgangi og beit
búfjár að undangengnum ákveðnum
skilyrðum. Lagagreinina er hægt að
túlka með svokallaðri gagnályktun,
sem segir að allt land sé ófriðað,
nema annað sé tekið fram.
Þar sem land Kristínar var ekki
friðað samkvæmt nauðsynlegum
skilyrðum, væri ekkert sem
sveitarstjórnin gæti gert. Enn fremur
fengu þau þær leiðbeiningar að þau
mættu ekki reka féð sjálf, þó það
væri komið inn fyrir girðingar.
Kristín kvartaði undan
þessari ákvörðun til ráðuneytis
sveitarstjórnarmála árið 2020.
Árið 2021 komu leiðbeiningar
frá ráðuneytinu, sem studdu
framkvæmd sveitarstjórnarinnar.
Ráðuneytið vísaði meðal annars í
þá meginreglu lögfræðinnar að þegar
tvö lög skarast, eigi yngra ákvæðið
að gilda – svokallað „lex posterior“.
Lagagreinarnar úr lögunum frá
2013 höfðu sem sagt forgang á
lagagreinarnar úr lögunum frá 1986.
Þetta töldu hjónin brjóta gegn 72.
grein stjórnarskrárinnar sem segir
meðal annars: „Eignarrétturinn er
friðhelgur. Engan má skylda til
að láta af hendi eign sína nema
almenningsþörf krefji. Þarf til þess
lagafyrirmæli og komi fullt verð
fyrir.“
Umboðsmaður
breytir fyrri túlkun
Kristín og leitaði því til umboðsmanns
Alþingis sumarið 2021, sem
skilaði áliti í málinu síðastliðið
haust. Í álitinu segir að hefði ætlun
löggjafans með lagasetningunni
verið að takmarka eignarrétt
landeigenda, þannig að hann þyrfti
að þola ágang búfjár og gæti ekki
leitað til yfirvalda til að láta smala
burt ágangsfé, hefði það þurft að
koma skýrt fram í lögunum. Einnig
með hvaða hætti slíkt samræmdist
öðrum lögum og eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar.
Kristín segir að umboðsmaður
sé í raun að segja að landeigendur
megi friða land sitt og ganga í
gegnum allar þær kvaðir sem eru
í lagagreinum 8 og 9 í lögum um
búfjárhald frá 2013. „En ef þú gerir
það ekki, þá hefur þú samt allan rétt
samkvæmt lögum um afréttarmál
frá 1986,“ segir Kristín. Ekki sé
hægt að beita gagnályktun og túlka
lögin þannig að beit sé heimil á öllu
landi sem hefur ekki verið friðað.
„Að segja það að álit umboðsmanns
sem kollvarpar þessum furðulegu
lagaákvæðum, hafi lítil áhrif, er
auðvitað galið,“ segir Kristín.
Í áliti umboðsmanns Alþingis
segir að lagaákvæðin í lögum
um afréttarmál, fjallskil o.fl.
frá 1986 séu í samræmi við
„stjórnarskrárverndaða friðhelgi
eignarréttarins“. Jafnframt séu
þau í samræmi við „þá aldagömlu
grunnreglu að búfjáreigendum sé
óheimilt að beita fé sínu leyfislaust
á annars manns land“.
Saga laganna
Kristín telur mikilvægt að skilja
forsögu laganna til að hrekja þær
fullyrðingar að lausaganga byggi á
aldagamalli hefð. Hún nefnir að fram
til ársins 1969 var notast við mjög
forn lög um afréttarmál, fjallskil
og fleira. Þá voru samþykkt lög á
Alþingi sem voru mikið til unnin af
nefnd sem fór vel í gegnum þann rétt
sem hafði verið um aldir. Þessi lög
Suzuki á Íslandi
Skeifunni 17
Sími 568 5100
www.suzuki.is
LÁTTU EKKERT STOPPA ÞIG!
Suzuki fjórhjól eru með power stýri og 100% driflæsingu.
Þau eru létt, lipur og meðfærilegTraust, ódýr í rekstri
og þægileg í notkun.
SUZUK I FJÓRHJÓL
KINGQUAD 750AXI 4X4
VERÐ KR. 2.590.000
Undanfarin misseri hefur verið mikil umræða um lausagöngu sauðfjár,
eftir álit umboðsmanns Alþingis síðasta haust. Túlkun álitsins er allt frá
því að það breyti engu, yfir í endalok sauðfjárbeitar utan girtra svæða.
Sveitarfélögum hefur borist fjöldi beiðna um smölun á ágangsfé, en þau
eru hikandi í viðbrögðum, þar sem vafamálin eru margvísleg. Hvað er
það sem breyttist?
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Umboðsmaður Alþingis hefur bent sveitarfélögum landsins á að styðjast við aðrar lagagreinar en áður, til að ákveða hvort hreppnum beri að smala ágangsfé. Þau lög sem umboðsmaður vill
að séu notuð eru stuttorð og opin, sem hefur orðið til þess að hagsmunaaðilar hafa túlkað þau á misjafna vísu. Mynd úr Fnjóskadal. Mynd / Áskell Þórisson
Kristín Magnúsdóttir. Mynd / ÁL
Að segja að
álit umboðsmanns
sem kollvarpar
þessum furðulegu
lagaákvæðum,
hafi lítil áhrif, er
auðvitað galið.“