Bændablaðið - 20.07.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Krossgátur þekkja allir. Upphaf-
lega komnar af því sem kallast
orðaferningur, samkvæmt alda-
gömlum heimildum sem má m.a.
finna í íslenskum handritum.
Gengur lausnin út á að fylla
ferning af orðum eftir gefnum
vísbendingum en hafði eiginlegur
skapari krossgátunnar, Arthur
nokkur Wynne frá Bretlandi, kynnst
þessum leik sem barn. Samdi hann
fyrstu krossgátuna sem gefin var
út þann 21. desember árið 1913.
Eina fyrstu íslensku krossgátuna
má finna í Morgunblaðinu frá árinu
1927, samheitakrossgátu svokallaða
þar sem lausnarorðið er samheiti
vísbendingarinnar. Innihélt þessi
fyrsta íslenska gáta tvö dönsk orð
og er því talið að fyrirmyndin hafi
komið frá Danmörku.
Hérlendis líkt og annars staðar
um heiminn hefur krossgátan
haldið velli og vinsældum þó
ekki séu þeir margir höfundarnir.
Bragi Halldórsson er einn fárra
krossgátuhöfunda hérlendis, enda
mikill íslenskumaður og grúskari
að eðlisfari. Auk krossgátugerðar
heldur hann úti vefsíðu með íslensku
almanaki með yfirliti yfir alla
íslenska frí- og tyllidaga. Sjá má
stuttar upplýsingar um hvern dag,
en ef ýtt er á slóð hleðst inn frekari
skýring. Geta áhugasamir hlaðið
almanakinu inn í tölvuna hjá sér
með leiðbeiningum á síðunni www.
islensktalmanak.is
„Ég á upphaf ferilsins að þakka,
ef svo má að orði komast, honum
Gunnari Smára Egilssyni, einum
stofnenda Fréttablaðsins.
Ég var viðloðandi Fréttablaðið
frá upphafi og hafði samið þar
næstum því 5.000 krossgátur þegar
yfir lauk. Ég var hálffúll að hafa ekki
náð heilum 5.000, þetta voru 4.800
og eitthvað. Blaðið hefði þurft að
lifa í ár til viðbótar, þá hefði ég náð
því,“ segir Bragi.
Þjálfun í knöppu formi
Um krossgátu Fréttablaðsins sá
upphaflega eldri maður sem hafði
ákveðið að sínum eftirlaunaárum skyldi
varið í að setja saman krossgátur fyrir
aðra. Hress og kátur karl sem límdi saman
og handteiknaði gátur upp á gamla
mátann. Krossgátuferill Braga hófst
á þann hátt að hann tók við af þessum
herramanni og setti sitt handbragð á
verkið. Lit- og eða ljósmyndir tóku
að birtast með gátunum og þótti Bragi
laginn við verkið.
„Það er samt þannig með mig að
ég hef alltaf verið vinnufær, en er
hins vegar óvinnustaðafær. Get helst
bara sinnt sérverkefnum og tek ekki
við skipunum. Enda hefur það fylgt
mér í lífinu að vera þrjóskur, kannski
um of á köflum. Ég sem um mitt og
þá við yfirmenn á borð við ritstjóra
eða forstjóra. Á sama tíma set ég
engin skilyrði heldur er jafnræðis gætt
í samningum.
Þegar ég tók við krossgátugerðinni
var það samkvæmt beiðni Gunnars
Smára, sem var nú ekki ritstjóri, en
bað mig um alls kyns furðulegustu
hluti. Ég átti semsagt að setja upp
myndskreytta krossgátu í knöppu
formi – og er í raun ekki hægt að
segja að ég hafi fengið vel borgað
fyrir! Ég er nefnilega þannig gerður
að ég legg svo mikið í útlit og nostur
við verkið að stundum tekur það
mun lengri tíma en þyrfti að gera.
Svona fyrir utan það að ég er bæði
les- og skrifblindur og afrita því og
lími orðin. Útkoman yrði sjálfsagt
stórhættuleg ef ég skrifaði staf,“ segir
Bragi kíminn.
Auk Fréttablaðsins hefur Bragi
víða stigið niður sem hönnuður
krossgátna, til að mynda fyrir
Fréttatímann á árunum 2010–2017.
Vegna þess að ekki var pláss fyrir
birtingu lausna í því blaði bauð Bragi
upp á vefsíðuna www.krossgatur.
gatur.net þar sem hægt var að finna
bæði lausnirnar og krossgáturnar. Í
dag hýsir því vefslóðin fjölda ókeypis
gátna og lausna, sem fólk sækir sér
enn til gamans þótt nýtt efni hafi ekki
komið inn í nokkur ár.
Brennandi áhugi gegnum árin
Hérlendis eru þeir teljandi á fingrum
annarrar handar sem í dag semja
krossgátur og telur Bragi sig vera
með þeim yngri. Er hann undir mikilli
eftirspurn enda afar vinsæll í starfi.
„Ég hef nánast verið í fullri vinnu
við krossgátugerð undanfarin tíu ár,“
segir hann. „Þetta er ástríða mín að
mörgu leyti. Verst er að geta ekki
ráðið gáturnar sjálfur vegna blindu
minnar en ég get samið þær því ég lít á
krossgátu sem uppsett stærðfræðidæmi
ef hægt er að útskýra það þannig.
Ég hef alla tíð haft brennandi áhuga
á íslensku, alinn upp hjá ömmu minni
og afa með annan fótinn. Á því heimili
var mikið af gestum, ljóðskáldum og
öðrum áhugasömum um íslenska
tungu auk þess sem afi starfaði að
nokkru sem íslenskukennari. Stóð
mig vel í skóla, ef ég nennti. Þarna
kom þrjóskan inn í, fékk annaðhvort
tíu eða núll, þá hreif íslenskan mig
sérstaklega. Sjálfur hef ég skrifað
og gefið út nokkrar bækur með
miklum pælingum um texta og orð
enda íslenskan svo merkilegt og
ríkt mál auk óþrjótandi möguleika
til þess að smíða nýyrði. Sem dæmi
má nefna orðið tölvu sem ég tel einu
mestu snilldina; þá „tölur og völva“.
Í öðrum löndum hefur fólk í fleiri
tilvikum en fáum frekar kosið að
taka orðið computer og aðlaga það
að sínu tungumáli. Svona er íslenskan
skemmtileg,“ lýkur Bragi máli sínu
glaðlega.
Bragi, sem var einn fyrstu
vefhönnuða landsins, minnist í
kjölfarið ársins 1984, þegar fyrsta
MacIntosh-tölvan kom til Íslands, en
hún var öll á íslensku. „Sá sem þýddi
stýrikerfið – sú þýðing á orðum hafa
nær öll fest í tungumálinu. Ástæða
þess er að með tölvunni fylgdi
pínulítið margmiðlunarforrit þar sem
útskýrt var fyrir hvað ensku orðin
stæðu og því auðvelt að yfirfæra það
yfir á okkar ástkæra ylhýra. Reyndar,
þótt orðin að vista (save) hafi fest og
afrita (copy) hafi haldið velli hefur
„klippa-líma“ (cut-paste) aldrei gert
það,“ segir hann íhugull.
Áfram gakk
Bragi hefur alla tíð verið óþrjótandi
brunnur pælinga þegar kemur að upp-
byggingu orða og merkingu þeirra.
Gaman er að heimsækja vefsíðu
almanaksins, (islensktalmanak.
wordpress.com) en þar má finna
hugrenningar hans um jólasveinana
þar sem hann hefur velt fyrir sér
hvernig hægt sé, í stað þess að
persónugera þá – kannast við heiti
þeirra sem veðurbrigði eða annað.
Ef tekinn er sem dæmi
Hurðaskellir, einnig þekktur undir
nafninu Faldafeykir, má sjá að um
ræðir einhvern eða eitthvað sem
skellir hurðum, feykir upp pilsum og
þar fram eftir götunum – og hver er
líklegri til þess en vindurinn sjálfur?
Bragi glímir í dag við óútskýrðan
sjúkdóm sem veldur því að hann
heldur engu niðri nema rjómablandi
og er því ekki samur og áður. Hann
berst þó ótrauður áfram og ætlar að
vinna bug á þessu ósýnilega meini
enda ekki við öðru að búast af manni
sem er vanur að bera höfuðið hátt
undir byr þrjósku. /SP
LÍF&STARF
Leikur að orðum
– Krossgátuhöfundurinn Bragi Halldórsson tekinn tali
Bragi Halldórsson er einn fremsti krossgátuhöfundurinn hérlendis. Mynd / Una Theodór Braga.
Hér geta áhugasamir ráðið eina fyrstu krossgátu sem birtist í blöðum hérlendis.
Mynd / timarit.is/ Lesbók Morgunblaðsins árið 1927.