Bændablaðið - 20.07.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
STEINHELLA 4, HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 837 7750 INFO@BILXTRA.IS
kr425,000
KERRUR Á HAGSTÆÐUM VERÐUM!
BILXTRA.IS
kr950,000
kr,000
kr1,450,000
jafngildir um 27 milljarða íslenskra
króna. Í dómskjölum kemur fram að
Cody sé haldinn alvarlegri spilafíkn.
Hann fann sig elta uppi tapið sitt í
markaðsbraskinu þar sem hann
sannfærði sjálfan sig um að það væri
í lagi að „taka lán“ hjá Tyson.
Hann hefði kannski getað komist
upp með þetta lengur ef ákveðinn
heimsfaraldur hefði ekki skorist í
leikinn.
Covid felldi svikamyllu Codys
Heimsfaraldur Covid kom hörmu-
lega niður á íbúum Bandaríkjanna
en tala látinna þar er komin yfir
milljón manns.
Eitt af fyrstu stóru hópsmitum
landsins var rakið til kjötpökkunar-
stöðvar Tyson. Hafði það veruleg
áhrif á framleiðslukeðjuna alveg
niður til frumframleiðenda. Því þegar
kálfur fæðist er þegar ákveðið hvaða
dag honum verður slátrað. Ferlið
er líkt og færiband sem gengur
eins og klukka, sem er hönnuð
svo kjötvinnslan geti unnið stöðug
allt árið við fulla framleiðslugetu.
Tyson fékk undanþágur til að halda
áfram framleiðslu sinni þegar flest
önnur fyrirtæki þurftu að hægja á
í heimsfaraldri. En uppi varð fótur
og fit vegna hópsmits og þá þurftu
stjórnendur að skoða birgðahaldið
sitt í aðfangakeðjunni. Haustið
2020 skoðuðu þeir hversu margir
nautgripir væru í bókunum á búgarði
Cody Easterday. Verðmætin voru
skráð um 300 milljón dollara af
nautgripum. Það var mun stærri
hjörð en þeir bjuggust við.
Því var maður sendur á vettvang
til að athuga með gripina en sá
greip í tómt. Miðað við fjölda rétta
sem hjarðir voru geymdar í var
engin leið til að stemma fjöldann
af. Að kvöldi mánudagsins 30.
nóvember 2020 hringdi útsendarinn
í framkvæmdastjóra Tyson.
Hvernig getur svo stór aðili,
sem framleiðir 2% af kjöti fyrir
Tyson, einnig verið að svindla
stórfellt á viðskiptavini sínum?
Tyson og Easterday voru bundnir
viðskiptaböndum. Tyson vildi
stöðugt framboð af nautakjöti og
Easterday útvegaði það. En nú var
viðskiptasambandið í uppnámi.
Tyson-menn flugu drónum yfir
landareign Codys og töldu nautgripi
í þeirra uppeldi. Reyndin var að
265.000 skepnur sem þeir voru að
greiða Easterday fyrir voru ekki
sjáanlegar.
Cody játaði um leið og upp
komst um svikin. Stuldurinn nam
244.031.132 dollurum og ljóst að
fjölskylduveldið færi í gjaldþrot.
Cody Easterday var dæmdur í ellefu
ára fangelsi í október síðastliðnum
og situr nú bak við lás og slá.
Frjór jarðvegur
í heilagar hendur
Þessi merkilega frásögn Anne King
um draugahjörð Easterday dregur
einnig fram afar athyglisverða
vinkla er varðar jarðnæði. Með
falli fjölskylduveldisins misstu þau
einnig tangarhaldið af verðmætu
ræktunarlandi.
Í Ghost Herd er fjallað um
eignarhald á landbúnaðarsvæðum
Bandaríkjanna. Kemur þar m.a.
fram að 40% landbúnaðarlands sé
í eigu fólks sem er yfir 65 ára að
aldri og talið er að um þriðjungur
ræktarlands Bandaríkjanna muni
skipta um eigendur á næstu 15 árum.
Easterday var skipað að selja
9.000 hektara land á hinu gjöfula
svæði Columbia basin. Svæðið
var ekki eingöngu verðmæt eign
vegna jarðgæða, heldur einnig
vegna vatns. Jörðinni fylgdu
nefnilega forgangsvatnshlunnindi.
„Vatnsréttindi stjórna vestrænum
heimi. Ef þú átt þau, þá græðir þú,“
segir Anne m.a. í þáttunum.
Verðmæti landbúnaðarlands mun
eingöngu aukast næstu árin, sér
í lagi land með aðgangi að vatni,
og þetta hafa eignamiklir aðilar
skilning á. Þannig er Bill Gates, einn
af ríkustu mönnum jarðar, stærsti
einstaki eigandi landbúnaðarlands
í Bandaríkjunum, en hann á um
100.000 hektara um víða veröld.
En milljarðamæringar á borð
við Bill eru ekki einir um hituna.
Kynnt er til sögunnar Kirkja Jesú
Krists hinna Síðari daga heilögu.
Trúarstofnunin reynist vera ein af
fimm stærstu einstöku eigendum
landbúnaðarlands í Bandaríkjunum.
Staðhæft er að kirkjan eigi 2% af
Flórídaríki.
Og viti menn, kirkja bauð hæst
í uppboði á landi Easterdays og er
nú eigandi þess verðmæta lands á
svæði sem kallað hefur verið eitt af
matarkistum heimsins. /ghp
Bændablaðið kemur næst út
24. ágúst
„Vinkona mín hafði kynnst SMOOTHER SKIN
& HAIR frá Eylíf og var ég spennt að prófa
vöruna. Eftir að hafa tekið inn ráðlagðan
dagskammt í nokkrar vikur fór ég að sjá og
finna verulegan mun á hárinu mínu.
Hárið er orðið mjúkt og meðfærilegt og ný hár
að stinga upp kollinum hér og þar um kollinn
minn. Ég get því sannarlega mælt með vörunni,
SMOOTHER SKIN & HAIR frá Eylíf.“
Ragnhildur Sigurðardóttir
PGA golfkennari
Hrein íslensk hráefni
Framleitt á Grenivík