Bændablaðið - 20.07.2023, Side 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Ein mest ljóslifandi æskuminning
mín er þegar fjölskylda mín ákvað
dag einn að halda út í skóginn í
nágrenni við gamla bóndabæinn
okkar í Bretagne að leita sveppa.
Raki hékk
í loftinu niður
við jörðu en
sólargeislar brutu
sér leið í gegnum
laufþakið og
þótt við værum
í stígvélum og
regnjökkum var
sem sumarið væri
ekki alveg á enda.
Við tíndum hvern sveppinn á eftir
öðrum í körfuna okkar þar til búið
var að fylla hana og þá var haldið
heim á leið.
Þegar heim var komið vigtuðum
við afrakstur leiðangurs okkar
og komumst að því að tveggja
klukkustunda ganga um skóginn
launaði okkur með 3,5 kg af
kóngssvepp (Botulis edulis), sem er
mikið hnossgæti fyrir bragðlaukana.
Að sjálfsögðu höfðum við sveppi
með veislumat kvöldsins, en
við elduðum líka, verkuðum og
geymdum sveppi á alla mögulega
vegu fyrir komandi vetur.
Uppvaxandi skógar Íslands
eru orðnir vinsælir staðir til
sveppatínslu á haustin, frá miðjum
ágúst fram í miðjan október. Eftir
því sem flatarmál skóganna eykst
og vistkerfi þeirra verður ríkulegra
fjölgar þeim sem leita til skóganna
með fæðu, sérstaklega íbúum ættaða
frá Austur-Evrópu. Sveppatínsla er
orðin vinsæl útivist hérlendis sem
ýtir undir fjölbreyttara mataræði
með staðbundnum og hollari mat.
Meðal vinsælla sveppategunda
sem tíndir eru til matar má nefna
kúalubba (Leccinum scabrum)
sem vex í birkiskógum, furusúlung
(Suillus luteus) sem hallast að
furutrjám og lerkisvepp (Suillus
grevillei) sem finnst víða í N-
og A-Evrópu, þar sem lerkitré
þrífast best.
Sveppir eru ein fárra grænmetis-
tegunda sem framleiddar eru á
Íslandi sem stendur og er þar
algengastur hvíti sveppurinn
matkempa (Agaricus bisporus).
Samkvæmt ÍSGEM, íslenska
matvælagagnagrunninum, hafa 100
g af þessum svepp orkugildi upp á 96
KJ, eða 22 hitaeiningar (kílókalóríur)
og innihalda 40% prótín, 11% fitu og
33% kolvetni. Hvað með sveppi sem
vaxa í villtri náttúru? Hvaða orku-
og hitaeiningagildi geta þeir lagt til
mataræðis okkar? Hvaða gagn getum
við haft af þeim? Neysla villtra
ætisveppa getur aukið fjölbreytni
daglegs mataræðis, einkum aukið
prótínneyslu. En þeir skipta líka
máli í að skapa sterkari tengsl við
íslenskar matvörur, eitthvað sem
matreiðsluheimurinn hefur þegar
skilið. Það má t.d. smakka hina
frægu og ljúffengu lerkisveppasúpu
á Skriðuklaustri á Fljótsdalshéraði.
Einnig er hægt að kaupa þurrkaða
sveppi frá Holti og heiðum í
Hallormsstaðaskógi, sem leggur
áherslu á aðrar afurðir skógarins en
timbur. Auk þess er vitað að fólk tínir
víða sveppi í töluverðu magni til að
selja til veitingastaða. Áhugavert
er að engar tölur eru til um hversu
mikið af sveppum eru tíndir hér á
landi eða fjárhagslegt gildi þeirra.
Skógartölur fyrir Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO),
sem Skógræktarfélag Íslands og
Skógræktin safna saman árlega,
gera ekki greinarmun á sveppa- og
berjatínslu skv. kröfum FAO, þar sem
það fellur undir sama flokk. Tölurnar
gefa hins vegar til kynna að verðmæti
þessa flokks er tæpar 10,7 milljónir
króna frá árinu 2014, fyrir þá fáu aðila
sem skilað hafa inn tölum í gegnum
árin. Tölur FAO miðast við verðmæti
fersks hráefnis og ef hráefnið er
unnið er söluverð þess mun hærra
og heildartekjurnar að sama skapi
hærri. Þessar viðbótartekjur eru nú
mest tengdar berjatínslu, sem er mjög
vinsæl á Íslandi. Þessi tala er þó samt
sem áður mikilvæg, því hún sýnir að
matvæli úr skóglendum, þar á meðal
villtir ætisveppir, hafa ekki bara
áhugavert næringar- og orkugildi;
þau hafa líka fjárhagslegt gildi.
Þegar ég hugsa til eftirminnilegs
sveppaleiðangurs æsku minnar fer ég
að velta fyrir mér hvað fjölskyldan
mín hefði getað haft upp úr krafsinu
með því að selja sveppina. Gefum
okkur að við séum stödd í lok október
árið 2002. Samkvæmt fréttaveitu
Bændamarkaðsfrétta Frakklands
(Franceagrimer.fr) seldust franskir
kóngssveppir á 20€/kg á þeim tíma
í Rungis, stærsta bændamarkaði
Frakklands með landbúnaðarafurðir.
Fyrir 3,5 kg sem safnað var á tveimur
tímum hefði fjölskylda mín grætt
70€, eða um 10.500 kr. Í nóvember
í fyrra var verðið hins vegar 27€/
kg og þar með hefðum við fengið
95€ eða um 14.200 kr. Líklega hefðu
sveppirnir selst á meiri pening á
Íslandi.
Ef þið eruð með skóg á jörðinni
ykkar eða skammt frá heimili ykkar
ættuð þið að hafa augun opin, því það
eru miklar líkur á því að þið finnið
sveppi á haustin. Finnið upp á nýjum
leiðum til að matreiða þá, eigið þá
sjálf til góða, gefið vinum ykkar
eða fjölskyldu, eða seljið á næsta
veitingastað; þegar allt kemur til alls
gera sveppir fólk hamingjusamara.
Elisabeth Bernard
mannfræðingur hjá
Skógræktarfélagi Íslands
Fyrir pólska kokkinn og jurta-
fræðinginn, Wioletta Tarasek,
sem stóð með mér fyrir vinnustofu
um matvæli úr skógum í SÓNÓ
Matseljur haustið 2022, átti blandan
af kúalubba og furusúlung sem við
tíndum í Heiðmörk í ágúst skilið það
besta. Helmingurinn var frystur og
notaður síðar sem fylling í pierogi,
hefðbundna pólska soðköku. Hinn
helmingur sveppanna var gerjaður í
krukku með ilmandi kryddjurtum og
borðaðir tveimur mánuðum síðar sem
pæklaðir sveppir.
Ætir villisveppir:
Bragðgóð búbót
Elisabeth
Bernard.
LÍF&STARF
Fischersetri fagnað
Fischersetrið á Selfossi varð tíu
ára þann 9. júlí síðastliðinn.
Af því tilefni lögðu þeir Friðrik
Ólafsson, fyrsti stórmeistari okkar
Íslendinga, og Guðmundur G.
Þórarinsson, fyrrverandi forseti
Skáksambands Íslands, blómsveig
að gröf Bobby Fischers í kirkjugarði
Laugardæla. Eins og flestir ef
ekki allir vita þá varð Fischer
heimsmeistari í skák í Reykjavík
sumarið 1972 þegar hann lagði að
velli ríkjandi heimsmeistara, Boris
Spassky, frá Sovétríkjunum. Einvígi
þeirra er alla jafna kallað einvígi
aldarinnar. Bobby Fischer lést 17.
janúar 2008, 64 ára að aldri. Hann
var jarðsettur í nokkur hundruð
metra fjarlægð frá Fischersetrinu.
/mhh
Aldís Sigfúsdóttir, sem á heiðurinn af Fischersetrinu á Selfossi, Friðrik
Ólafsson, stórmeistari og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, eru hér
við gröf Fischers í Laugardælakirkjugarði. Fjöldi fólks, ekki síst erlendir
ferðamenn, koma að gröfinni á hverju ári. Myndir / MHH
Sæmundur Pálsson, eða Sæmi rokk eins og hann er alltaf kallaður, var mikill
vinur Fischers en hér er hann að segja frá vináttu þeirra félaga í athöfninni
í Laugardælakirkju. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson fylgist spenntur með.
Hópurinn sem mætti til minningarathafnar í Laugardælakirkju.