Bændablaðið - 20.07.2023, Side 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Lyftu á
gæðum
LÍFRÆNT ÍSLAND
Lífræna geiranum
gefinn meiri gaumur
Meðal markmiða framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins til
ársins 2030, sem snúa að lífrænni
ræktun, eru meðal annars
áhersluatriði um að að minnsta
kosti 25 prósent af ræktuðu landi
innan sambandsins verði að vera
lífrænt ræktað, draga þurfi úr
varnarefnanotkun og minnka
næringarefnaleka um helming
ásamt því að draga þurfi úr
áburðarnotkun um 20 prósent.
Ljóst er að
lífræna geir-
anum er gefinn
mun meiri
gaumur en áður
í Evrópu en í
matvælastefnu
Evrópusam-
bandsins er
heilum 49
milljónum evra meðal annars
varið til kynningarefnis líf-
rænna vara ásamt samþættingu
vara í lágmarks-skylduviðmiðum
fyrir græn opinber innkaup. Þar
að auki mun um 30 prósent
af fjármagni úr Horizon
Europe-sjóðnum verða veitt
til þekkingarframfara á líf-
rænum matvælakerfum næstu
fjögur árin.
Eitt skref í átt að aukinni
vitundarvakningu almennings í
Evrópu var að halda hátíðlegan
lífræna daginn, 23. september
2021, sem jafnframt var fagnað
í fyrra og vonandi um ókomin
ár. Aðilar sem tengjast lífrænni
framleiðslu á Norðurlöndunum
fylgjast grannt með hverju skrefi
sem tekið er innan raða Evrópu-
sambandsins þegar kemur að
þessum málaflokki og er ljóst
að Íslendingar geta sannarlega
fylgt löndum Evrópu fast
eftir séu réttar forsendur
til staðar.
Svíþjóð er eitt af leiðandi
löndum heims þegar kemur að
lífrænni framleiðslu og neyslu.
Þegar kemur að hlutdeild
lífræns ræktunarlands, hlutdeild
lífrænna matvæla hjá hinu
opinbera og einkaneyslu á
lífrænum matvælum eru Svíar
ofarlega þegar litið er til annarra
landa heimsins. Árið 2022 jókst
sala lífrænna matvæla í Svíþjóð
um 2,5 prósent en sala beint frá
bónda í þessum vöruflokki jókst
um 5,9 prósent á sama tímabili.
Sömu þróun má sjá í
Finnlandi þar sem framleiðsla á
lífrænum matvælum eykst hægt
og rólega. Ræktun lífrænna vara
eykst um nær tvö prósent árlega
en í Evrópu er sú tala helmingi
hærri. Svíar standa betur að
vígi en Finnar þegar kemur að
framleiðslu lífrænna matvæla
en vegna þess búast Finnar
við mun meiri eftirspurn eftir
slíkum vörum á næstu árum og
áratugum í sínu heimalandi. Yfir
tíu prósent af ræktunarsvæði í
Finnlandi er nú nýtt til lífrænnar
framleiðslu en tæplega 4.500
býli stunda nú lífrænan búskap.
Heildarlandsvæði í Noregi
sem er vottað lífrænt er 4,3%
af heildarlandbúnaðarlandi
landsins. Heildarfjöldi bænda
í lífrænni ræktun í Noregi eru
tæplega tvö þúsund talsins. Í
Noregi eru nokkur áhugaverð
verkefni sem tengjast lífræna
geiranum og eitt þeirra kallast
Hvetjandi bændur þar sem
áhugasamir og rótgrónir lífrænir
bændur vinna að því að hvetja
starfsbræður sína og nýliða í
greininni til að fjárfesta í lífrænni
framleiðslu. Hlutverk þeirra er
einnig að hvetja matvörukeðjur,
verslanir og neytendur, þar
á meðal stóreldhús, til að
forgangsraða lífrænum vörum
sem framleiddar eru í Noregi.
Í dag eru hvetjandi bændur
orðnir 40 talsins um allt land og
hvetjandi verslanir hafa einnig
bæst við verkefnið.
Danir fullyrða að þeir séu
með þeim fremstu í heimi þegar
kemur að lífrænni framleiðslu
og sölu á lífrænum vörum og
sýna tölur að sú er raunin en um
80 prósent Dana kaupa lífrænar
vörur. Árið 2021 voru Danir með
hæstu lífrænu markaðshlutdeild
í heimi, eða 13 prósent.
Helmingur íbúa Danmerkur
kaupa lífrænar vörur í hverri
viku. Það er kannski ekki svo
skrýtið þar sem Danir voru fyrsta
landið til að koma á reglum fyrir
lífræna framleiðslu, ríkiseftirliti
með lífrænni framleiðslu og
fyrsta landið til að innleiða
lífræna merkið Ø ásamt því að
vera fyrstir í heiminum til að
kynna þjóðarmarkmið um að
60 prósent matvæla ættu að vera
lífræn í opinberum eldhúsum.
Það er því ljóst að í Evrópu
og á Norðurlöndunum er
lífræna hreyfingin á fleygiferð
í átt að mörgum jákvæðum
skrefum. Því má síðan bæta við
í lokin að forsvarsmenn lífræna
geirans á Norðurlöndunum
hafa allir hafið undirbúning
fyrir stærstu sýningu lífrænna
matvæla á Norðurlöndunum,
Nordic Organic Food Fair, sem
haldin verður dagana 15. og
16. nóvember næstkomandi í
Malmö í Svíþjóð. Það væri því
ekki úr vegi fyrir aðila hérlendis,
sem tengjast ræktun lífrænna
matvæla, að bera saman bækur
við starfsbræður sína í Malmö.
Erla Hjördís Gunnarsdóttir,
verkefnastjóri Lífrænt Ísland
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir.
Yfir tíu prósent
af ræktunarsvæði
í Finnlandi er nú nýtt til
lífrænnar framleiðslu.“
Í