Bændablaðið - 20.07.2023, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Pseudotsuga er lítil ættkvísl
a.m.k. sex tegunda sígrænna
barrtrjáa af þallarætt
(Pinaceae).
Fjórar tegundir eru í Austur-
Asíu, allar sjaldgæfar, og tvær í
vestanverðri Norður-Ameríku.
Önnur þeirra síðarnefndu hefur
nokkuð verið reynd hérlendis og
gæti verið framtíðartré í skógrækt
á Íslandi með hlýnandi loftslagi.
Nafnaóreiða
Nokkuð hefur verið á reiki hvað
kalla skuli þessa tegund á íslensku,
degli, döglingsvið eða douglas-
greni. Því síðasttalda er auðvelt
að hafna því grenitegund er þetta
ekki. Vísun í konungsheitið
döglingur úr fornkvæðunum
væri aftur á móti til sóma þvílíkri
eðaltrjátegund. Þó virðist sem
tillaga Axels Kristinssonar, degli,
sé helst að festast í málinu. Það er
þjált, stutt og laggott heiti.
En víðar er nafnaóreiða á degli
en hérlendis. Í fyrsta lagi kemur
ættkvíslarheitið Pseudotsuga
spánskt fyrir sjónir því það
þýðir eiginlega „gerviþöll“.
Við sjáum líka erlend heiti á
degli sem vísa ýmist til grenis,
þallar, furu eða þins – en þó
ekki til lerkis, einhverra hluta
vegna. Það er nokkuð kostulegt
því þróunarfræðilega er það
lerkiættkvíslin sem er skyldust
degliættkvíslinni af öllum
ættkvíslum þallarættarinnar.
Margt er skrýtið í kýrhausnum.
Heitið degli vísar beint og
óbeint til grasafræðingsins skoska,
Davids Douglas, sem fæddur var
1799. Douglas er sagður hafa
komið fyrstur með deglifræ til
Evrópu og vakið á tegundinni
athygli. Uppruna latneska
tegundarheitisins menziesii má
hins vegar rekja til annars skosks
grasafræðings sem hét Archibald
Menzies og var fæddur hálfri öld
fyrr, 1754. Hann lýsti tegundinni
fyrstur og kom með sýni af henni
vestan um haf. Af þeim sýnum
var tegundin ranglega greind
sem fura. Og þótt degli minni lítt
á furu lifir furutengingin góðu
lífi því timbrið úr degli er kallað
Oregon pine sem þýðir „fura frá
Oregon“. En svo við drögum þetta
saman er degli sérstök ættkvísl
innan þallarættar. Þar með er það
skylt furu , greni , þallar , þin- og
lerkitegundum, þróunarfræðilega
skyldast lerkinu sem fyrr segir.
Með hæstu trjám
Degli er einstofna tré með
keilulaga krónu og getur vaxið
hratt við góðar aðstæður. Þetta
er mjög stórvaxin trjátegund
sem mun örugglega ná 30 metra
hæð hérlendis og vafalaust
miklu meira en það. Degli hefur
nú þegar náð yfir 20 m hæð í
Hallormsstaðaskógi og tegundina
má finna í skógum víða um land
þótt hvergi myndi hún skóg. Í
upprunalegum heimkynnum
sínum í miðhluta vesturstrandar
Norður-Ameríku er talið að fyrrum
hafi staðið deglitré sem náð höfðu
yfir 120 metra hæð. Mögulega
voru það hæstu tré í heiminum
þá. Hæsta deglitréð sem nú er
þekkt er um eitt hundrað metra
hátt. Í nokkrum Evrópulöndum
standa deglitré sem gróðursett
voru á nítjándu öld og nálgast
nú 70 metra. Hérlendis hefur
degli þroskað fræ og hraustar
sjálfsánar degliplöntur má finna
í Stálpastaðaskógi í Skorradal –
alíslenskt degli.
Framtíðartré
Degliviður er mjög eftirsóttur
þegar krafist er stöðugs efniviðar
sem haggast lítið við hita-
og rakabreytingar, svo sem
í gluggasmíði. Stór deglitré
gefa mikinn kvistalausan við
sem er mjög verðmætur. Á
meginlandi Evrópu er litið til
deglis sem framtíðartegundar
í skógrækt, ekki síst eftir því
sem loftslagsröskun sverfur að.
Tegundin er hins vegar viðkvæm
í æsku, bæði fyrir næðingi og
haustfrostum. Hana verður því að
rækta upp í skjóli eldri trjáa. Af
því að degli getur nýtt sér samlífi
við sömu svepprótartegundir og
lerki getur verið mjög álitlegur
kostur fyrir okkur að rækta það
undir eldri lerkitrjám þar sem
það getur notið bæði skjóls og
frjósemi. Vel má sjá fyrir sér að
á komandi árum verði degli víða
látið taka við af lerki í íslenskum
skógum, sérstaklega í innsveitum.
Lerkireitir með illa aðlöguðum
lerkikvæmum verða e.t.v. best
nýttir með því að láta þá fóstra
deglitré í uppvexti. Lerkitrén víkja
þá í fyllingu tímans þegar deglið
hefur harðnað og getur bjargað sér
á eigin spýtur. Degli gæti þannig
komið að góðu gagni á Íslandi
við auka fjölbreytni og þar með
mótstöðuafl skóganna, ekki síður
en á meginlandi Evrópu.
Degli er falleg trjátegund og
gefur mjög verðmætt timbur en
hentar líka mjög vel sem jólatré.
Pétur Halldórsson
Degli (Pseudotsuga menziesii)
Barr á degli er fremur mjúkt. Hér sést grein með nývexti í júní.
Myndir / Pétur Halldórsson.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Jarðvegsefnagreiningar gefa
upplýsingar um sýrustig (pH)
jarðvegs og magn auðleystra
plöntunæringarefna sem svo eru
nýttar til að áætla áburðarþarfir
ræktunarspildna og til að meta
þörf á kölkun.
Plöntunæringarefnin sem mæld
eru í jarðvegsefnagreiningum hér á
landi eru aðalnæringarefnin fosfór
(P), kalíum (K), kalsíum (Ca) og
magnesíum (Mg) og á síðustu árum
var snefilefnunum mangan (Mn),
sink (Zn) og kopar (Cu) bætt við.
Einnig er rúmþyngd jarðvegsins
mæld. Köfnunarefni (N) hefur
aldrei verið hluti af stöðluðum
jarðvegsefnagreiningum hér á landi
þar sem nokkuð dýra tækni þarf til
þess að mæla N í jarðvegi og því um
nokkuð dýra greiningu að ræða.
Á tímum þar sem kolefni (C) í lofti
og láði er allsráðandi í umræðunni
um hlýnun jarðar er ljóst að mikill
kostur væri að hafa einhverskonar
mælingar á C í ræktarlandi. Nokkuð
hefur því verið rætt hvort ekki væri
mikilvægt að bæta við aðferð, í
staðlaðar jarðvegsefnagreiningar á
jarðvegssýnum bænda, sem mælir
hlutfall lífræns efnis í jarðvegi. Til er
aðferð sem nefnist glæðitap (e. Loss-
on-ignition) sem er einföld mæling,
auðveld í framkvæmd og þarfnast
mjög einfalds tækjabúnaðar. Í öllum
lífrænum efnasamböndum er kolefni
og getur glæðitap því nýst sem óbein
mæling á kolefni (C) í jarðvegi. Auk
þess er mjög náið samband á milli C
og N í jarðvegi og því getur mæling á
lífrænu efni líka nýst til þess að meta
köfnunarefni í jarðvegi (sjá mynd 1).
Lífrænt efni í jarðvegi –
mikilvægur þáttur
En hvað er lífrænt efni eiginlega? Jú
það er, ásamt steinefnum, það efni
sem myndar hinn fasta hluta jarðvegs.
Lífrænt efni í jarðvegi samanstendur
af ummynduðum leyfum plantna
og dýra og getur verið mjög
breytilegt að gerð og samsetningu.
Lífræni hluti jarðvegs gegnir
ýmsum mikilvægum hlutverkum í
jarðvegi og tengist í stórum dráttum
hringrás næringarefna, frjósemi
jarðvegs og heilbrigði jarðvegs auk
kolefnisbindingar.
Hringrás næringarefna: Lífrænt
efni gegnir því mikilvæga hlutverki að
miðla næringarefnum sem berast með
því í jarðveginn. Þau efni sem helst
berast í jarðveginn með niðurbroti
lífrænna efna er köfnunarefni (N),
fosfór (P) og brennisteinn (S), ásamt
fleiri efnum sem eru þó í miklu minni
mæli. Með niðurbroti lífrænna efna
í jarðvegi verða þessi næringarefni
aðgengileg plönturótum í gegnum
hringrásir sérhvers efnis.
Frjósemi og heilbrigði jarðvegs:
Lífrænt efni í jarðvegi er nátengt
frjósemi jarðvegs. Jarðvegur með
hátt lífrænt innihald er að öllu jöfnu
frjósamari en steinefnaríkur jarðvegur
en það er vegna þess að lífræni
hlutinn hefur jákvæð áhrif á ýmsa
eiginleika jarðvegs eins og byggingu
hans, vatnsheldni og katjónarýmd.
Greining á lífrænu efni getur því gefið
innsýn í frjósemisstöðu jarðvegs og
hjálpað til við túlkun á áburðarþörfum
hans. Lífrænt innihald jarðvegs er
grundvallarþáttur í heilbrigði jarðvegs
þar sem það styður fjölbreytt örverulíf
eins og t.d. bakteríur, sveppi og
frumdýr. Jarðvegslífverur stuðla að
heilbrigðri næringarefnahringrása,
stuðlar að minni sjúkdómsálagi og
halda uppi þeirri heildarvirkni sem
fer fram í vistkerfi jarðvegsins.
Kolefnisbinding: Verulegur hluti
af lífrænu efni er kolefni sem spilar
meginhlutverk í kolefnishringrásinni
enda er jarðvegur þriðja stærsta
kolefnisgeymsla heims á eftir bergi
og höfum. Greining á lífrænum hluta
jarðvegs er nálgun á kolefnishlutfalli
í jarðveginum og getur nýst sem tól
til að meta hæfileika jarðvegs til að
binda meira kolefni, sem er mikilvæg
loftslagsaðgerð.
Hvernig getur mæling á glæðitapi
hjálpað bændum í jarðrækt?
Kornrækt
Í núverandi áburðarleiðbein-
ingum hjá RML fyrir korn er
gerður greinarmunur á köfnunar-
efnisskömmtum eftir jarðvegsgerð.
Það er vegna þess að rotnun lífræns
efnis og losun köfnunarefnis og
annarra næringarefna, er t.d. töluverð
í mýrarjarðvegi en mjög lítil í rýru
landi. Mýrartún, eða frjósamasta
landið, ætti því að fá minnsta
köfnunarefnisskammtinn en rýrt land
ætti að fá stærsta. Magn lífræns efnis
er mjög mismunandi í þessum tveimur
jarðvegstegundum og jafnvel innan
þessara jarðvegsgerða og þá einkum
ef um framræst land er að ræða og ekki
endilega hægt að setja framræst land
allt undir sama hattinn þegar kemur
að áburðarleiðbeiningum á korn. Sumt
framræst land telst ekki endilega til
mýrlendis, það hefur ekki nægilega
hátt hlutfall kolefnis í jarðvegi til að
flokkast sem slíkt. Hingað til hefur
því verið reynt að nálgast heppilegasta
áburðarskammtinn miðað við
Sigurður Max
Jónsson.
Þórey Gylfadóttir.
Mæling á glæðitapi
– Viðbót við jarðvegsefnagreiningar
SKÓGRÆKT
Ekki eru til margar tilraunir sem skoða samband áburðarsvörunar við mismunandi skammta köfnunarefnis á mismunandi
jarðvegsgerðum en árið 2009 var þetta samband skoðað út frá gögnum sem fengust úr áburðarsvörunartilraunum
sem voru gerðar í Hörgárdal. Þær sýndu að frjósamasti jarðvegurinn, mýrartún, gáfu mestu heildar
uppskeruna en hlutfallslega minnstu áburðarsvörunina en áburðarsvörun jókst með minnkandi magni köfnunarefnis
í jarðvegi.
Deglitré á Mógilsá, gróðursett 1994,
í góðum vexti.
Mynd 1. Sterkt samband er á milli hlutfalls lífræns efnis í jarðvegi og annars vegar hlutfalli kolefnis í jarðvegi og hins
vegar köfnunarefnis (Sigurður Max Jónsson, 2022). Jarðvegsflokkunin í myndum byggist á flokkun sem birtist t.d. í
grein Ólafs Arnalds og Hlyns Óskarssonar (2009).