Bændablaðið - 20.07.2023, Side 58

Bændablaðið - 20.07.2023, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Seinnipartinn í júní var hin fræga og margrómaða landbúnaðarsýning Royal Highland Show haldin rétt utan við Edinborg eins og venja er. Þessi sýning er nokkuð frábrugðin hefðbundnum landbúnaðarsýn- ingum, þar sem Skotar leggja mikla áherslu á að sameina sýninguna við árlegt uppgjör í ótal keppnisgreinum. Úr verður eins konar blanda af landbúnaðarsýningu og því sem við á Íslandi þekkjum líklega best sem landsmót. Einkar góð blanda og áhugaverð. Sýninguna sóttu heim 217 þúsund manns og þar af þónokkrir Íslendingar, m.a. hópur nýnema frá Hvanneyri sem var í útskriftarferð í Skotlandi á sama tíma. Á sýningunni, sem stóð yfir í fjóra daga, bar margt fyrir augu eins og vera ber. Sýningu sem þessari er líklega einna best gerð skil með myndum og skýringartextum og þó hér sé einungis gripið niður í örfá atriði, gefa myndirnar og textarnir nokkuð góða mynd af því sem fyrir augu bar á þessari skemmtilegu sýningu. Fjölbreytt úrval tækja Á sýningunni voru rúmlega 800 sýnendur að kynna vörur sínar og þjónustu og mátti í raun sjá þarna alla tækni og tæki sem bændur í hefðbundnum búskap gætu þurft á að halda, allt frá handverkfærum og upp í stærstu vinnutæki. Á svona sýningum er alltaf eitthvað sem stendur upp úr og vekur meiri athygli greinarhöfundar en annað, eins og Mitsubishi dráttarvélin sem hér má sjá. Það eru til fleiri tegundir dráttarvéla í heiminum en margir halda! Gömul tæki - en ný! Á sýningum sem þessum er yfirleitt verið að skarta nýjum tækjum og tólum og árlega koma fram einhverjar nýjungar sem vekja áhuga sýningargesta. Það eru þó enn framleidd sígild tæki, sem hafa verið framleidd í áratugi og gott dæmi um það var þessi keðjudreifari frá skoska fyrirtækinu Marshall. Þarlendum bændum stendur til boða svona dreifari, sem hefur verið framleiddur nánast í sömu útfærslu í 40 ár, á rétt rúma milljón íslenskra króna! Stærsta sláttuvélasamstæða í heimi Á sýningunni var sýnd stærsta sláttuvélasamstæða í heimi en um var að ræða svokallaða tvöfalda fiðrildauppsetningu frá fyrirtækinu SIP, þ.e. dráttarvélin er með fram- sláttuvél og svo tvær sláttuvélar á hvora hönd! Hver vél er með rúmlega þriggja metra vinnslubreidd og með skörun þeirra er heildar sláttubreiddin hvorki meira né minna en 14,55 metrar. Þessi samstæða þarf hraustlega dráttarvél eða að lágmarki 350 hestafla vél. Eins og sjá má af myndinni, þá er vélasamstæðan svo stór að greinar- höfundur gat einungis tekið mynd af tæplega helmingi hennar! Handavinnukeppni Á sýningunni í ár voru til sýnis rúmlega 150 verðlaunagripir Skotlands- meistaramóts í handverki, en þegar kemur að keppnisgreinum á því sviði eru hreint ótrúlega fjölbreyttir möguleikar til þátttöku. Veitt voru brons-, silfur- og gullverðlaun í hverjum flokki og voru flokkarnir eiginlega hver öðrum ótrúlegri. Þannig höfðu keppendur m.a. sent inn ullarvettlinga af alls konar gerðum og stærðum sem voru dæmdir af fagfólki, þarna voru útskornar tréskálar, heklaðir dúkar, jólaleikföng, útsaumur og margt fleira mætti nefna. Þá voru keppnisflokkar fyrir árið 2024 einnig kynntir til sögunnar en alls verður hægt að taka þátt í 61 keppnisgrein í handverki í 11 mismunandi flokkum það ár! Þeir voru athyglisverðir handgerðu fjár- og göngustafirnir, en alls höfðu verið sendir inn stafir í 16 mismunandi og eiginlega ótrúlega sérhæfðum flokkum. Þannig var til dæmis gerður munur á fjárstöfum með handfangi úr slípuðu kindahorni og útskornu kindahorni svo dæmi sé tekið og sjá má á meðfylgjandi mynd. Heimsmeistaramótið í rúningi Á sýningunni í ár var haldið heims- meistaramótið í rúningi og tóku alls 350 þátt í keppninni og voru þátttakendurnir frá alls 30 löndum. Þá var ekki síður áhugavert að fylgjast með keppni í ullarfrágangi. Þar komu saman öflugir keppendur sem sáu um að ganga frá ullarreifum frá tveimur rúningsmönnum og snerist keppnin um að ganga rétt frá ullinni, flokka tvíklippur og óhreina ull frá og halda gólfinu við rúningsmanninn hreinu. Þetta var svo gert á tíma og var einstakt að vera í salnum þar sem viðburðinum var lýst beint af íþróttafréttamanni sem tókst að gera keppnina enn meira spennandi og skemmtilega. Fjölbreytt búfjárkyn Á Royal Highland Show koma bændur einnig með gripi sína til sýningar og keppa þarna eigendur hesta, geita, kinda og nautgripa um vegleg verðlaun á Skotlandsmeistaramóti búfjár. Auk verðlauna skiptir titillinn líklega Skoska landbúnaðarsýningin engri lík Snorri Sigurðsson snorri.sigurdsson@outlook.com Á FAGLEGUM NÓTUM Mitsubishi framleiðir ýmislegt annað en bíla eins og sjá má. Mynd /Snorri Marshall keðjudreifarinn sem enn er hægt að kaupa í Skotlandi. Mynd /Snorri Hluti af stærstu sláttuvélasamstæðu heims. Mynd /Snorri Mikill fjöldi ólíkra kúakynja var sýndur á Royal Highland Show. Mynd /Snorri Á sýningunni voru m.a. kynbótagripir af skosku tegundinni Highland Cattle eins og hér má sjá. Mynd /RHSa Á sýningunni var einnig keppt í margs konar hestaíþróttum. Mynd /RHS

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.