Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Vantar þig geymslu fyrir tækin,
búnaðinn eða birgðirnar?
Við eigum úrval af notuðum kæligámum og
þurrgámum, fyrirliggjandi á hagstæðu verði.
Skoðaðu úrvalið!
samskip.is | gamar@samskip.is
Betri notaðir bílar
TOYOTA
PROACE VERSO LANGUR
LIVE ELECTRIC 75KW
- Nýskráður 7/2023
- Akstur 50 km.
- Rafmagn
- Sjálfskipting
- Næsta skoðun 2027
- Ábyrgð umboðs gildir til
18.7.2030 eða 200.000 km.
- Raðnúmer 543799
Betra verð
7.990.000 kr.
Ásett verð kr. 9.490.000
Seljandi skoðar skipti á ódýrara
Kauptún
Toyota Kauptúni Kauptúni 6 570-5070 www.toyotakauptuni.is
Vesturland:
Dýrbítar farnir að
gera vart við sig
FRÉTTIR
Formaður Bjarmalands, félags
refa- og minkaveiðimanna, segir
ljóst að nú á haustdögum séu
dýrbítar farnir að gera vart við
sig heima á bæjum á ákveðnum
svæðum á Vesturlandi.
„Það er endurtekin saga að
sveitarfélög sem ætla að spara við
veiðar, annaðhvort að hætta þeim eða
ráða óvana einstaklinga til veiðanna,
enda uppi með síendurtekin vandamál
vegna dýrbíta,“ segir formaðurinn
Garðar Páll Jónsson.
Vandamálið er þar sem engin
skipulögð grenjavinnsla er
Hann bendir á að nýleg dæmi af
lömbum sem hafa verið drepin af
dýrbítum séu frá svæðum þar sem
ekki sé skipulögð grenjavinnsla eða
í skötulíki.
„Það merkilega er að þeir sem eru
að missa fé þarna núna eru þeir sömu
og misstu fé á sama tíma síðasta ár.
Um það var talað í fjölmiðlum og
ekki tókst að vinna á varginum fyrr
en langt var liðið á vetur og þá heima
við fjárhús.
Þetta er það sem framtíðin býður
okkur upp á ef að skipulagðar veiðar
á ref verða lagðar niður, eftir því sem
dýrum fjölgar á viðkomandi svæði
eykst hættan á því að þau fari að
drepa sauðfé. Og annað, þetta er ekki
eina kindin, sem hér er mynd af, þær
voru fleiri, mikið fleiri,“ segir Garðar.
Stoppa ekki fyrr en
þeir eru drepnir
Garðar segir að ef dýrbítar ná að
skjóta rótum, hvar sem það er
á landinu, stoppa þeir ekki fyrr
en þeir eru drepnir. „Þeir kenna
afkvæmum sínum listina að nálgast
sauðfé, króa það af, þreyta og drepa.
Þær aðfarir eru ekki fallegar og
dauðastríð bráðarinnar getur verið
langt. Hvolparnir eru nokkurn tíma
að fullkomna listina og á þeim
æfingatíma finnast bitin lömb og illa
farin en lifandi, að lokum fullkomna
þeir listina og flytja sig á annað svæði
þar sem þeir halda uppteknum hætti.
Heyrst hefur á andstæðingum
sauðfjár að bændur ættu þá bara að
hafa fé í heimahaga til að losna við
þennan ófögnuð en það er ekki nóg,
tófan sækir heima að húsum og getur
drepið ótrúlega nálægt bústöðum
manna og dýra.
Eins sýnir þetta okkur að þó okkur
þyki vænt um refinn þá verðum við
að halda stofnstærð niðri, um allt
land. Og ríkið ásamt sveitarfélögum
verður að hætta að draga lappirnar í
þessum málaflokki og hysja upp um
sig brækurnar, vandamálið hverfur
ekki þó að því sé ekki sinnt, bændur
eru að missa verðmæti hvort sem
það er í formi æðardúns eða sauðfjár
og það er ekki hægt að loka
augunum fyrir ábyrgð stjórnvalda,“
segir Garðar.
Samstarf við æðarbændur
Að sögn Garðars var á vordögum tekið
upp samstarf við Æðarræktarfélag
Íslands um vöktun á vörpum
æðarbænda. „Viðtökur voru góðar
og félagsmenn Bjarmalands komu að
vöktun æðarvarps víða um land. Greitt
var fyrir þessar vaktir samkvæmt
samkomulagi en Bjarmaland er
með viðmiðunarverð fyrir vaktir eða
útköll.
Reynslan af þessu virðist vera
góð og vonandi höldum við áfram
að vori. Tjón af ágangi refs eða annars
vargs í varpi getur verið mikið og
tilfinnanlegt og það er mikilvægt að
stoppa hann sem fyrst.“ /smh
Illa bitið lamb.
Nýleg dæmi af lömbum sem hafa verið drepin af dýrbítum eru frá svæðum
þar sem ekki er skipulögð grenjavinnsla. Mynd / JP. Unsplash