Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 BL hóf nýlega sölu á rafbílnum Renault Megane E-Tech. Þetta er meðalstór fjölskyldubíll sem keppir helst á móti Hyundai Kona og Volkswagen ID.3. Bifreiðin er með vandaða innréttingu og góða aksturseiginleika en verðið er í hærri kantinum. Þessi Megane er hannaður frá grunni sem rafmagnsbíll og er forsmekkurinn af því sem koma skal í framleiðslu Renault á umhverfisvænum bílum. Hér er tekin til kostanna bíll í Techno útgáfu, sem er næstdýrasta týpan, og með 60 kílóvattsstunda rafhlöðu. Fyrri kynslóð bílsins er framleidd samhliða þessum og því hægt að kaupa Megane með brunahreyfli. Þegar bíllinn er skoðaður að utan sést að þetta er einn sá fallegasti á markaðinum. Enginn vafi leikur á að um Renault er að ræða, enda ber hann sterkan ættarsvip og er merki framleiðandans stórt og áberandi. Hönnunin er líklega ein af þeim sem mun eldast vel. Innrétting ódýr en væn yfirlitum Fríðleikinn heldur áfram þegar inn er komið. Hagsýni hefur ráðið vali í efnisvali innréttingar þó allt sé vel skrúfað saman og úr sterku plasti sem getur staðist tímans tönn. Mælaborðið er klætt voðum að ofan, sem er ódýr og skemmtileg leið til að gefa innréttingunni fágað yfirborð og hylja hart plastið fyrir neðan. Framsætin eru prýðilega þægileg, með flestum helstu stillimöguleikum, eins og mjóbaksstuðningi og hæð sessu. Hæstu ökumennirnir munu sakna þess að geta ekki fært sætið nokkrum sentímetrum aftar og er rýmið í kringum fótstigin það þröngt að stórir skór geta flækst. Nokkuð þröngt er um aftursætisfarþega og er líklegt að þrýst sé að öllum útlimum þeirra sem ekki eru börn. Skottið er prýðilega rúmgott, en býr þó yfir þeim galla að gólfið er mun neðar en karmur skotthlerans, sem gerir meðhöndlun þungs farangurs erfiðari en ella. Stór og notendavænn skjár Fullkomið lyklalaust aðgengi er að bílnum. Fer hann því sjálfkrafa úr lás þegar hann skynjar að lykillinn nálgast og læsir sér svo aftur þegar gengið er í burtu. Nauðsynlegt er þó að ýta á „start“ hnappa til að ræsa bílinn, sem bílaframleiðendur eins og Volkswagen og Smart hafa sýnt að er óþarfa þrep í rafmagnsbílum. Þegar bíllinn er kominn í gang er margmiðlunarskjárinn fljótur að ræsa sig og næst bluetooth tenging við símann á augnabliki. Þökk sé þráðlausum Android Auto búnaðnum byrja að spilast lög af Spotify, á sama stað og frá var skilið, eftir andartak. Skjárinn er skýr og auðveldur í notkun. Í mælaborðinu eru takkar fyrir helstu skipanir á miðstöð. Ökumaðurinn er jafnframt með takka á stöng aftan við stýrið til að stjórna hljómtækjunum, á meðan farþeginn þarf að hækka og lækka með snertitakka við hlið margmiðlunarskjásins. En komum aftur að stöngunum við stýrið, því þær eru fjölmargar. Ein vinstra megin fyrir stefnuljós og ökuljós, á meðan hægra megin eru þær þrjár – ein fyrir gíra, önnur fyrir rúðuþurrkur og þriðja fyrir hljóðkerfið. Eftir skamma notkun rata hendurnar í gegnum þennan stangaskóg og tilvik þar sem kveikt er á rúðuþurrkum í staðinn fyrir að setja í gír verða í lágmarki. Ríflegt afl mótors Þegar kemur að akstri er Megane léttur og lipur, eins og gengur og gerist með flesta nýja rafmagnsbíla. Mótorinn skilar 220 hestöflum í framhjólin, sem dugar ekki til að bráka hálsliðina þegar fóturinn fer í botn, en kemur bílnum áreynslulaust á umferðarhraða. Nokkur vætutíð var þegar bíllinn var prufaður og bar á því að framhjólin spóluðu þegar tekið var af stað á rauðum ljósum, ef ekki var stigið varlega á fótstigið. Akstursupplifunin spillist nokkuð vegna þykkra gluggaboga allan hringinn, sem leiða til stórra blindra punkta. Sérstaklega er rétt að nefna B-bogann (þann sem er milli hliðarrúðanna), en þegar ökumannssætið er í öftustu stöðu skyggir hann meira og minna á hliðarútsýnið. C-bogarnir eru jafnframt hnausþykkir og afturrúðan örþunn sem leiðir til afar skerts útsýnis aftur fyrir bílinn. Lítil akstursaðstoð Blessunarlega eru fjarlægðar- skynjarar að aftan, þó þá vanti að framan. Tónninn sem gefur upp fjarlægðina að fyrirstöðu er skemmtilega djúpur og hljómar eins og einhver sé að slá á nótu á gömlu Yamaha orgeli. Bakkmyndavélar eru staðalbúnaður í öllum Megane E-Tech, en hún sýnir nokkuð litla mynd. Enn fremur er hún óvarin fyrir óhreinindum og þarf litla drullu eða vatnsdropa til að þekja myndina. Sá búnaður sem undirritaður saknar helst er skynvæddur hraða- stillir. Þeir sem vilja fullkomna aksturs- aðstoð, eins og er staðalbúnaður í mörgum bílum í þessum verðflokki, þurfa að leggja út fyrir 250 þúsund króna aukahlutapakka. Þó kemur bíllinn með cruise control af gömlu gerðinni, en séu einhverjir aðrir keyrandi á götunni er notkun þess afar skert. Það er alltaf einhver fyrir framan mann sem heldur ekki jöfnum hraða. Sú akstursaðstoð sem er staðalbúnaður grípur ekki í nema þegar í harðbakkann slær og virðist vera frekar til að gæta öryggis í stað þess að létta álagið á ökumanninn. Uppgefin drægni er 450 kílómetrar. Ekki gafst færi til að sannreyna það, en eins og alltaf má reikna með nokkuð lægri tölu, sérstaklega þegar kalt er í veðri. Hráslagalegir haustdagar voru þegar þessi prufuakstur stóð yfir og tæmdist býsna hratt af rafhlöðunni. Lokaorð Helstu mál Renault Megane E-Tech í millímetrum eru: Lengd, 4.200; breidd, 2.055; hæð, 1.505. Samkvæmt verðlista er ódýrasta týpan af Megane á 5.490.000 krónur, en sá er með minni rafhlöðunni. Á meðan kostar sá sem var prufaður hér, Techno útgáfan með 60 kílóvattsstunda rafhlöðu, 6.990.000 krónur. Öll verð eru með vsk. Heilt á litið er Renault Megane E-Teck Techno hinn ágætasti bíll. Hann er fríður sýnum og vel skrúfaður saman. Það sem skemmir helst er verðið, sem er of hátt í samanburði við samkeppnina og er hægt að fá betur útbúna rafmagnsbíla á lægra verði. Skemmst er að nefna grunnútgáfu Tesla Model 3 eða Smart #1. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Prufuakstur á Renault Megane E-Tech Techno Það fer ekki á milli mála að hér er um Renault að ræða, enda ber Megane E-Tech sterkan ættarsvip. Þessi bíll er vandaður og með mikinn karakter, en hátt verð miðað við staðalbúnað spillir helst fyrir. Myndir / ÁL Innréttingin er öll mjög þétt. Hagsýni hefur ráðið efnisvali, en tauklæðning yfir mælaborði gefur fágað yfirbragð. Megane er fríður frá öllum hliðum og má ætla að hönnunin eldist vel. Prýðilegt pláss er í skottinu. Gólfið er neðarlega sem getur gert erfitt að meðhöndla þungan farm. Aftursæti eru ekki nema fyrir börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.