Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
BL hóf nýlega sölu á rafbílnum
Renault Megane E-Tech. Þetta
er meðalstór fjölskyldubíll sem
keppir helst á móti Hyundai Kona
og Volkswagen ID.3.
Bifreiðin er með vandaða
innréttingu og góða aksturseiginleika
en verðið er í hærri kantinum.
Þessi Megane er hannaður
frá grunni sem rafmagnsbíll og
er forsmekkurinn af því sem
koma skal í framleiðslu Renault
á umhverfisvænum bílum. Hér
er tekin til kostanna bíll í Techno
útgáfu, sem er næstdýrasta týpan,
og með 60 kílóvattsstunda rafhlöðu.
Fyrri kynslóð bílsins er framleidd
samhliða þessum og því hægt að
kaupa Megane með brunahreyfli.
Þegar bíllinn er skoðaður að utan
sést að þetta er einn sá fallegasti á
markaðinum. Enginn vafi leikur á
að um Renault er að ræða, enda ber
hann sterkan ættarsvip og er merki
framleiðandans stórt og áberandi.
Hönnunin er líklega ein af þeim sem
mun eldast vel.
Innrétting ódýr en væn yfirlitum
Fríðleikinn heldur áfram þegar
inn er komið. Hagsýni hefur ráðið
vali í efnisvali innréttingar þó allt
sé vel skrúfað saman og úr sterku
plasti sem getur staðist tímans tönn.
Mælaborðið er klætt voðum að ofan,
sem er ódýr og skemmtileg leið til
að gefa innréttingunni fágað yfirborð
og hylja hart plastið fyrir neðan.
Framsætin eru prýðilega þægileg,
með flestum helstu stillimöguleikum,
eins og mjóbaksstuðningi og hæð
sessu. Hæstu ökumennirnir munu
sakna þess að geta ekki fært sætið
nokkrum sentímetrum aftar og er
rýmið í kringum fótstigin það þröngt
að stórir skór geta flækst. Nokkuð
þröngt er um aftursætisfarþega
og er líklegt að þrýst sé að öllum
útlimum þeirra sem ekki eru börn.
Skottið er prýðilega rúmgott, en býr
þó yfir þeim galla að gólfið er mun
neðar en karmur skotthlerans, sem
gerir meðhöndlun þungs farangurs
erfiðari en ella.
Stór og notendavænn skjár
Fullkomið lyklalaust aðgengi er að
bílnum. Fer hann því sjálfkrafa úr
lás þegar hann skynjar að lykillinn
nálgast og læsir sér svo aftur þegar
gengið er í burtu. Nauðsynlegt er þó
að ýta á „start“ hnappa til að ræsa
bílinn, sem bílaframleiðendur eins
og Volkswagen og Smart hafa sýnt
að er óþarfa þrep í rafmagnsbílum.
Þegar bíllinn er kominn í gang
er margmiðlunarskjárinn fljótur
að ræsa sig og næst bluetooth
tenging við símann á augnabliki.
Þökk sé þráðlausum Android Auto
búnaðnum byrja að spilast lög af
Spotify, á sama stað og frá var skilið,
eftir andartak. Skjárinn er skýr og
auðveldur í notkun.
Í mælaborðinu eru takkar
fyrir helstu skipanir á miðstöð.
Ökumaðurinn er jafnframt með
takka á stöng aftan við stýrið
til að stjórna hljómtækjunum, á
meðan farþeginn þarf að hækka
og lækka með snertitakka við hlið
margmiðlunarskjásins.
En komum aftur að stöngunum
við stýrið, því þær eru fjölmargar.
Ein vinstra megin fyrir stefnuljós
og ökuljós, á meðan hægra megin
eru þær þrjár – ein fyrir gíra, önnur
fyrir rúðuþurrkur og þriðja fyrir
hljóðkerfið. Eftir skamma notkun
rata hendurnar í gegnum þennan
stangaskóg og tilvik þar sem kveikt
er á rúðuþurrkum í staðinn fyrir að
setja í gír verða í lágmarki.
Ríflegt afl mótors
Þegar kemur að akstri er Megane
léttur og lipur, eins og gengur og
gerist með flesta nýja rafmagnsbíla.
Mótorinn skilar 220 hestöflum í
framhjólin, sem dugar ekki til að
bráka hálsliðina þegar fóturinn fer í
botn, en kemur bílnum áreynslulaust
á umferðarhraða. Nokkur vætutíð
var þegar bíllinn var prufaður og
bar á því að framhjólin spóluðu
þegar tekið var af stað á rauðum
ljósum, ef ekki var stigið varlega á
fótstigið. Akstursupplifunin spillist
nokkuð vegna þykkra gluggaboga
allan hringinn, sem leiða til stórra
blindra punkta. Sérstaklega er rétt
að nefna B-bogann (þann sem
er milli hliðarrúðanna), en þegar
ökumannssætið er í öftustu stöðu
skyggir hann meira og minna
á hliðarútsýnið. C-bogarnir eru
jafnframt hnausþykkir og afturrúðan
örþunn sem leiðir til afar skerts
útsýnis aftur fyrir bílinn.
Lítil akstursaðstoð
Blessunarlega eru fjarlægðar-
skynjarar að aftan, þó þá vanti að
framan. Tónninn sem gefur upp
fjarlægðina að fyrirstöðu er
skemmtilega djúpur og hljómar eins
og einhver sé að slá á nótu á gömlu
Yamaha orgeli. Bakkmyndavélar
eru staðalbúnaður í öllum Megane
E-Tech, en hún sýnir nokkuð litla
mynd. Enn fremur er hún óvarin
fyrir óhreinindum og þarf litla drullu
eða vatnsdropa til að þekja myndina.
Sá búnaður sem undirritaður
saknar helst er skynvæddur hraða-
stillir. Þeir sem vilja fullkomna aksturs-
aðstoð, eins og er staðalbúnaður í
mörgum bílum í þessum verðflokki,
þurfa að leggja út fyrir 250 þúsund
króna aukahlutapakka. Þó kemur
bíllinn með cruise control af gömlu
gerðinni, en séu einhverjir aðrir
keyrandi á götunni er notkun þess
afar skert. Það er alltaf einhver
fyrir framan mann sem heldur ekki
jöfnum hraða. Sú akstursaðstoð sem
er staðalbúnaður grípur ekki í nema
þegar í harðbakkann slær og virðist
vera frekar til að gæta öryggis í stað
þess að létta álagið á ökumanninn.
Uppgefin drægni er 450
kílómetrar. Ekki gafst færi til að
sannreyna það, en eins og alltaf
má reikna með nokkuð lægri tölu,
sérstaklega þegar kalt er í veðri.
Hráslagalegir haustdagar voru
þegar þessi prufuakstur stóð yfir og
tæmdist býsna hratt af rafhlöðunni.
Lokaorð
Helstu mál Renault Megane E-Tech
í millímetrum eru: Lengd, 4.200;
breidd, 2.055; hæð, 1.505. Samkvæmt
verðlista er ódýrasta týpan af Megane
á 5.490.000 krónur, en sá er með minni
rafhlöðunni. Á meðan kostar sá sem
var prufaður hér, Techno útgáfan með
60 kílóvattsstunda rafhlöðu, 6.990.000
krónur. Öll verð eru með vsk.
Heilt á litið er Renault Megane
E-Teck Techno hinn ágætasti bíll.
Hann er fríður sýnum og vel skrúfaður
saman. Það sem skemmir helst er
verðið, sem er of hátt í samanburði við
samkeppnina og er hægt að fá betur
útbúna rafmagnsbíla á lægra verði.
Skemmst er að nefna grunnútgáfu
Tesla Model 3 eða Smart #1.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Renault Megane E-Tech Techno
Það fer ekki á milli mála að hér er um Renault að ræða, enda ber Megane E-Tech sterkan ættarsvip. Þessi bíll er vandaður og með mikinn karakter, en hátt
verð miðað við staðalbúnað spillir helst fyrir. Myndir / ÁL
Innréttingin er öll mjög þétt. Hagsýni hefur ráðið efnisvali, en tauklæðning
yfir mælaborði gefur fágað yfirbragð.
Megane er fríður frá öllum hliðum og má ætla að hönnunin eldist vel.
Prýðilegt pláss er í skottinu. Gólfið er neðarlega sem getur gert erfitt að
meðhöndla þungan farm.
Aftursæti eru ekki nema fyrir börn.