Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Eiginleikar sen dæmdir eru á
kynbótasýningum eru dæmigerðir
magneiginleikar, sem einnig eru
kallaðir „mældir eiginleikar“.
Kynbótadómur hvers eiginleika
dómstigans er þannig mæling á
samanlögðum áhrifum erfða og
umhverfis á viðkomandi eiginleika.
Það er ómögulegt að greina með
fullri vissu hlutdeild áhrifa erfða
og umhverfisþátta á dómseinkunn
hvers einstaks grips. Hins vegar
kunna kynbótafræðingar ráð til að
reikna meðaltals hlutdeild erfða og
umhverfis í stórum stofni (erfðahópi)
með réttar ætternisfærslur og
kynbótamatið (BLUP) metur áhrif
erfðaþáttarins fyrir sérhvert hross
fyrir hvern eiginleika.
Bæði erfðirnar (kynbótagildið)
og umhverfisáhrifin, og þar með
samanlögð áhrif beggja þátta (þ.e.
mælingin=dómseinkunn) eru í
eðli sínu meðaltöl fjölmargra þátta
og það er náttúrulögmál að slík
meðaltöl fylgja normaldreifingu.
Normaldreifing skýrist af einungis
tveimur stærðum: µ sem er meðaltal
(miðja samfelldrar og samhverfar
dreifingar mælinga) og σ sem
táknar staðalfrávik dreifingarinnar.
Í normaldreifðum gögnum væntum
við 68,3% mælinga á bilinu µ-σ til
µ+σ; 95,5% mælinga á bilinu µ-2σ
til µ+2σ; 99,7% á bilinu µ-3σ til
µ+3σ og einungis tæplega 0,3% á
endimörkum þar fyrir utan. Lárétti ás
kúrfunar táknar kvarða mælinganna
og lóðrétti ásinn endurspeglar fjölda
mælinga í skurðarpunkti ásanna.
Sjá mynd 1.
Kynbótadómar
Tölfræðilegt yfirlit um hæstu
aldursleiðréttu dóma þeirra
kynbótahrossa sem komu til
sýninga á Íslandi árin 2010 – 2022
er sýnt í Töflu 1. Alls eru það 7910
dæmd hross í fullnaðardómi og
þetta er hluti þeirra gagna sem var
grundvöllur reiknaðs kynbótamats
haustið 2022. Kynbótadómar eru
huglægt mat fagmenntaðra dómara
á gæðum hrossanna og taka til 8
sköpulagseiginleika og 9 eiginleika
í reiðhestshæfileikum.
Dómskalinn hleypur á heilum
og hálfum á bilinu 5 til 10 og sem
viðmið hafa dómarar töluna 7,5
sem væntanlegt meðaltal stofnsins
á hverjum tíma. Af töflu 1 má þó
lesa að meðaltal eiginleikanna fyrir
dæmdu hrossin víkur mismikið frá
7,5 frávikið endurspeglar forval
í gögnunum, en það er mest fyrir
háls, herðar og bóga, samræmi,
tölt, fegurð í reið og samstarfsvilja.
Lágt meðaltal einkunna fyrir skeið
skýrist af stærstu leiti af því að
tæp 30% hrossanna eru dæmd sem
klárhross og fá 5,0 í skeiðeinkunn.
Af einstökum eiginleikum er
minnstur breytileiki (staðalfrávik) í
dómum á háls, herðum og bógum (σ
= 0,38). Sá sköpulagseiginleiki sem
hefur mesta dreifni er prúðleiki (á
fax og tagl) (σ = 0,75). Sá eiginleiki
sem hefur langlægsta meðaltalið (µ
= 6,89) og mestu dreifnina (σ =
1,44) er skeið. Þegar dómseinkunn
5,0 er sleppt hækkar meðaltal
skeiðeinkunna í 7,67 og staðalfrávik
lækkar í 0,92. Vegin aðaleinkunn
sköpulags hefur meðaltal 8,05 og
staðalfrávik 0,25, Vegin aðaleinkunn
hæfileika hefur meðaltal 7,91 og
staðalfrávik 0,38. Aðaleinkunnin
sem vegur alla eiginleikana með
vægisstuðlum hefur meðaltal 7,96
og staðalfrávik 0,30.
Gröfin í myndum 2 – 3 sýna
myndrænt tíðni einstakra einkunna
fyrir eiginleika sköpulags og
hæfileika. Mynd 2 sýnir að 8,0 er
algengust allra einkunna fyrir alla
sköpulagseiginleika nema fyrir
réttleika fóta og prúðleika sem
hafa hæstu tíðni einkunna 7,5. Þar
virðist áhrifa forvals gæta minnst.
Augljóst virðist að áhrifa forvals
gætir mest í dreifingu einkunna fyrir
háls herðar og bóga og samræmi
sem kemur fram í nokkuð skekktri
normaldreifingu þeirra eiginleika.
Af mynd 3 má lesa að algengasta
einkunn fyrir tölt og samstarfsvilja
er 8,5 og fyrir skeið er algengasta
einkunnin 5,0. Rúmlega 45%
hrossanna sem fá einkunn 5,0
fyrir skeið eru með arfgerð CA
eða CC í gangráði (erfðasæti
skeiðgens, DMRT3) og hafa því
ekki lífeðlisfræðilega möguleika
til að sýna vekurð að einhverju
gagni. Hross með arfgerð AA í
gangráði ættu að geta sýnt skeið
en samt sem áður virðist rúmur
helmingur (55%) þeirra hrossa
sem fá 5,0 í skeiðeinkunn bera
arfgerð AA. Ástæður þess að þau
eru sýnd sem klárhross geta verið
ýmsar. Algengasta einkunn annarra
reiðhestshæfileika eru 8,0.
Myndir 2 og 3 sýna að allir
sköpulagseiginleikarnir og
reiðhestshæfileikarnir, að frátaldri
einkunninni 5,0 fyrir skeið, fylgja
allvel undirliggjandi normaldreifingu
en kvarði mælinganna er grófur og
í stað samfelldrar dreifingar sjáum
við afrúnaðar mælingar sem deilast
upp í 11 afmarkaða flokka. Dreifing
flestra eiginleikanna er þó nokkuð
skekkt með hala sem teygir sig niður
á við vegna forvals hrossa sem koma
til kynbótadóms. Mælingar vantar
fyrir lökustu hross stofnsins sem
myndi þá fylla í normaldreifinguna.
Dreifing veginna einkunna
sköpulags, hæfileika og
heildaraðaleinkunnar er sýnd
í mynd 4 þar sem einkunnir á
bilinu 6,0 til 9,5 eru kvarðaðar
með einum aukastaf (36 stöplar).
Dreifing aðaleinkunnar sköpulags er
ágætlega samhverf, en aðaleinkunn
hæfileika er aðeins skekkt og hefur
heldur lengri hala niður á við. Þeirri
skekkingu normaldreifingarinnar
valda lágar skeiðeinkunnir hrossa
sem sýnd eru sem klárhross.
Dreifing heildaraðaleinkunna
geldur þessa einnig í nokkrum
mæli en er þó ekki verulega
skekkt. Meðaltal aðaleinkunnar
hrossa sem voru dæmd á Íslandi
árin 2010 – 2022 eru µ =7,97 stig
og staðalfrávik dreifingarinnar er
σ = 0,30 stig. Ef aðaleinkunnin
fylgir normaldreifingu fullkomlega
væntum við okkur að 68,3% dæmdra
hrossa hafi aðaleinkunn á bilinu 7,67
til 8,27; 95,5% liggi á bilinu 7,37 til
8,57 og 99,7% á bilinu 7,07 til 8,87
samkvæmt mynd 1.
Í reynd eru í gögnunum 69,4%
aðaleinkunna á bilinu 7,67 til
8,27; 95,27% á bilinu 7,37 til 8,57
og 99,5% á bilinu 7,07 til 8,87.
Frávikin í kynbótadómum frá
væntanlegri tíðni normaldreifingar
eru því óveruleg og gögnin henta
vel sem grundvöllur útreikninga
kynbótamats.
Kynbótamat
Í mynd 5 eru sýnd gröf sem
lýsa dreifingu kynbótamats
aðaleinkunnar hrossa fæddra á
Íslandi með 5 ára millibili árin
2010, 2015 og 2020 og hafa
lágmarksöryggi (RTI) kynbótamats
30% . Meðaltal 8307 hrossa í árgangi
2010 er 92,35 stig; meðaltal 5947
hrossa í árgangi 2015 er 100,17 stig
og meðaltal 5276 hrossa í árgangi
2020 er 104,45 stig.
Mismunurinn á meðaltölum
kynbótamats aðaleinkunnar milli
árganga 2010 og 2020 nemur
12,1 stigum sem endurspeglar
erfðaframför sem orðið hefur í
stofninum á síðastliðnum áratug.
Markmið alls kynbótastarfsins
eru erfðafræðilegar framfarir í
verðmætum eiginleikum stofnsins.
Árangur markvissrar ræktunar felur
í sér að sérhver árgangur ber að
meðaltali heldur betra erfðamengi en
fyrri árgangar. Hraði erfðaframfara í
stofni er algjörlega háður eftirtöldum
þáttum:
1) Erfðabreytileika (σA )
2) Öryggi í vali undaneldishrossa
(þ.e. fylgni milli dóms og
kynbótagildis (RTI ), sem er háð
arfgengi eiginleikanna, magni
og eðli upplýsinga í gögnum og
gæði aðferða sem notaðar eru til
útreikninga kynbótamats).
3) Úrvalsstyrkleika (i)
4) Lengd ættliðabils (L)
5) Skyldleikaræktarhnignun (d)
Ef við gefum okkur eftirfarandi
raunhæfar forsendur fyrir íslenska
hrossastofninn:
● Arfgengi aðaleinkunnar h2 =
0.36. Þá er erfðabreytileikinn σA =
√(h2 σ2) = √(0.36 x 0.32) = 0.18
● Meðaltals öryggi í vali stóðhesta
RTI = 80%
● Meðaltals öryggi í vali
undaneldishryssa RTI = 60%
● Vegin hlutdeild valdra stóðhesta
= 10%. Þá verður úrvalsstyrkleiki
stóðhesta (is = 1.755).
● Hlutdeild valdra hryssa = 60%.
Þá verður úrvalsstyrkleiki hryssa (ih
= 0.644).
● Ættliðabil faðir – afkvæmi (Ls
) = 8 ár.
● Ættliðabil móðir – afkvæmi (Lh
) = 12 ár.
LÍF&STARF
Erfðaframför í íslenska
hrossastofninum
– Hvernig er dreifing einkunna á kynbótasýningum og í kynbótamati?
Ræktunarmarkmið íslenska hestsins er víðfeðmt og eiginleikarnir sem
ræktendur leitast við að bæta eru fjölmargir. Til einföldunar má skipta
þeim í tvo meginflokka. Annars vegar „séða eiginleika“, sem ráðast alfarið
af erfðum stakra erfðavísa (dæmi: erfðir hrossalita og gangráðs) og eru
ekki háðir neinum umhverfisáhrifum, og hins vegar „magneiginleika“
sem lúta áhrifum fjölmargra erfðavísa og umhverfisþátta.
Þorvaldur Árnason og Elsa Albertsdóttir.
Eiginleiki Meðaltal, µ Staðalfrávik, σ Lágmarksgildi Hámarksgildi
Höfuð 7,82 0,51 6,0 10,0
Háls,h,b* 8,24 0,38 7,0 9,5
Bak,og lend 8,06 0,53 6,0 9,5
Samræmi 8,15 0,45 6,5 9,5
Fótagerð 7,94 0,50 6,5 10,0
Réttleiki 7,64 0,49 6,0 9,5
Hófar 8,09 0,48 6,0 10,0
Prúðleiki 7,60 0,75 5,5 10,0
Tölt 8,25 0,53 5,5 10,0
Brokk 7,96 0,61 5,0 10,0
Skeið 6,89 1,44 5,0 10,0
Stökk 8,05 0,50 5,0 10,0
Fegurð í reið 8,17 0,48 6,0 9,5
Samstarfsvilji 8,39 0,44 6,5 10,0
Fet 7,68 0,69 5,0 10,0
Hægt tölt 7,97 0,54 5,0 10,0
Hægt stökk 7,75 0,61 5,0 10,0
Skeið > 5 7,67 0,92 5,5 10,0
Sköpulag 8,05 0,25 7,13 9,09
Kostir 7,91 0,38 6,00 9,38
Aðaleinkunn 7,96 0,30 6,51 9,03
*Háls, herðar og bógar
Tafla 1. Tölfræðilegt yfirlit um kynbótadóma 7910 hrossa (af báðum kynjum) sem voru dæmd á Íslandi árin 2010–2022.
Land:Ár Fjöldi Meðaltal, μ Feður, μs Mæður, μh
IS: 2010 8514 91,8 100,0 83,7
IS: 2015 6087 99,7 107,9 91,4
IS: 2020 5585 103,0 111,2 94,9
DE: 2010 2784 85,6 90,6 80,8
DE: 2015 2338 90,3 95,6 85,2
DE: 2020 2171 95,1 100,6 89,7
DK: 2010 2243 88,5 95,0 82,0
DK: 2015 1290 95,5 101,1 90,0
DK: 2020 1539 99,7 105,0 94,5
SE: 2010 1354 89,3 94,7 84,1
SE: 2015 764 95,1 100,6 90,2
SE: 2020 798 99,4 104,9 94,0
Tafla 2. Meðaltöl kynbótamats aðaleinkunnar allra hrossa í árgöngum 2010, 2015 og 2020 með báða foreldra skráða
í gögnum og meðaltöl kynbótamats foreldranna. Meðaltölin eru reiknuð sérstaklega innan fæðingarlands í 4 helstu
ræktunarlöndum íslenska hestsins (Ísland, Þýskaland, Danmörk og Svíþjóð).
Mynd 1. Normaldreifingin, þar sem µ = meðaltal og σ = staðalfrávik.
Mynd 2.
Mynd 3.