Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 Hollenski landbúnaðarbankinn Rabobank tekur saman reglulega margvíslegan fróðleik um þróun landbúnaðarins í heiminum og m.a. gefur út árlegt yfirlit yfir stöðu stærstu mjólkurvinnslu- fyrirtækja heims. Undanfarin ár hafa ekki beint orðið miklar breytingar á listanum og væri nær lagi að tala um hliðrun á stöðu fyrirtækja, þar sem sum hafa haft sætaskipti á milli ára. Nú ber aftur á móti svo við að töluvert miklar breytingar hafa orðið á listanum, þegar staða þessara fyrirtækja árið 2021 er borin saman við árið 2022. Mikil veltuaukning Heildarvelta 20 stærstu fyrirtækjanna í heiminum, sem vinna úr mjólk, jókst um 7,3% árið 2022 miðað við fyrra ár, þegar veltan er reiknuð í bandaríkjadollurum en sé miðað við uppgjör í evrum jókst velta þessara sömu fyrirtækja um heil 21%. Skýringin felst auðvitað í sterkari bandaríkjadollar miðað við evru en önnur skýring á aukinni veltu almennt séð felst fyrst og fremst í hækkuðu verði afurða á markaði þegar flest þessara fyrirtækja hækkuðu verð til að mæta hærri verðbólgu. Athygli vekur að óvenju hátt hlutfall fyrirtækja settu veltumet árið 2022 og varð hálfgerð uppstokkun á heimsmarkaðinum þegar horft er til afurðafyrirtækja, þ.e. stöðu þeirra miðað við heildarveltu. Einungis fimm fyrirtæki héldu röð sinni á listanum og það er harla óvenjulegt enda um gríðarlega stór fyrirtæki að ræða. Þau 10 stærstu Lactalis Franski risinn heldur áfram að stækka og ber orðið höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki á þessum markaði með heildarveltu upp á 3.903 milljarða íslenskra króna! Vöxtur fyrirtækisins skýrist m.a. af uppkaupum og samruna annarra fyrirtækja við Lactalis á árinu en einnig af aukinni sölu og hærra afurðaverðs. Af þekktum fyrirtækjum sem Lactalis keypti upp árið 2022 má nefna Jalna Dairy Foods frá Ástralíu, ferskvörudeild hins þýska BMI og franska fyrirtækið Verdannet, sem er sérhæft í ostagerð. Þá hafa fregnir borist af því að Lactalis sé að reyna að kaupa núna brasilíska fyrirtækið DPA, sem er í dag í eigu Nestlé og Fonterra en bæði eiga í ákveðnum vanda þessi misserin og eru að leita að leiðum út úr vanda sínum. Dairy farmers of America Banda- ríska samvinnufélag þarlendra bænda gerði einstaklega vel árið 2022 og setti nýtt veltumet og skaust þar með upp fyrir bæði Danone og Nestlé! Einstakur árangur þessa merka félags sem náði árangrinum án þess að kaupa upp önnur fyrirtæki eða félög. Veltuaukninguna má því fyrst og fremst rekja til hærra afurðaverðs og aukinnar sölu. Nestlé Í áraraðir var Nestlé ósnertan- legt í efsta sæti þessa lista Rabobank en nú er öldin önnur og hefur það nú fallið niður í það þriðja. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum verið að draga saman seglin á þessum markaði og selja frá sér eignir og framleiðslueiningar. Nú hefur þó verið gefin út spá um að veltuaukning sé fram undan á árinu 2023, en óvíst er hvaðan sú aukning muni koma. Danone Franska fyrirtækið Danone fellur niður um sæti á listanum en ekki vegna þess að illa gekk heldur vegna þess að DFA stökk upp í annað sætið. Fyrirtækið er umsvifamikið á heimsmarkaðinum og árið 2022 gekk það frá kaupum á vörumerkinu Dumex í Kína, en það var áður í sameiginlegri eigu Danone og Mengniu. Dumex er eitt þekktasta vörumerkið innan mjólkurdufts fyrir börn. Fyrirtækið var einnig á árinu í hagræðingaraðgerðum sem skiluðu góðum árangri en hvort það sé nóg fyrir afkomuna árið 2023 skal ósagt látið en um mitt þetta ár tóku rússnesk yfirvöld Danone í Rússlandi eignarnámi. Þessi armur fyrirtækisins var sá fimmti stærsti innan Danone svo líklegt er að um mikið högg sé að ræða fyrir fyrirtækið. Yili Kínverska fyrirtækið Yili gekk ágætlega á heimamarkaði árið 2022 og jók söluna um rúm 5% en vegna falls hins kínverska yuan gagnvart bandaríkjadollar mælist vöxturinn ekki nema um 0,8% frá árinu 2021. Yili hélt áfram á árinu 2022 að styrkja stöðu sína í Asíu með því að kaupa upp fyrirtæki í mjólkurvinnslu í álmunni. Það sem er þó áhugaverðast við þessi uppkaup er að fyrirtækið gerir það einungis til að styrkja stöðu sína á kínverska markaðinum, þ.e. kaupir upp fyrirtæki utan landsins steina og flytur svo framleiðsluvörur þess heim til Kína. Þess má geta að fyrirtækið, rétt eins og Mengniu, er að hluta til í opinberri eigu kínverskra yfirvalda. Arla Foods Hástökkvari listans að þessu sinni er samvinnufélagið Arla Foods, sem er með höfuðstöðvar sínar í Danmörku. Félagið jók veltuna um rúm 23% árið 2022 og stökk upp um 3 sæti frá árinu 2021. Skýringin á aukningunni fólst fyrst og fremst í sterkri stöðu félagsins á hinum evrópska markaði og sterkum vörumerkjum sem neytendur hafa haldið tryggð við þrátt fyrir hækkandi verð. Þetta eru merki eins og Lurpak, Castello, Puck og Starbucks, en Arla foods er með einkarétt á framleiðslu og sölu margs konar kaffidrykkja í dósum, sem merkt eru hinni þekktu Starbucks kaffihúsakeðju. FrieslandCampina Hið hollenska samvinnufélag hafði sætaskipti við Arla Foods að þessu sinni en félögin tvö hafa att kappi hvort við annað í fjöldamörg ár enda svipuð að stærð og uppbyggingu. Fyrirtækin bera sig títt saman hvort við annað, þegar horft er til afurðastöðvaverðs og almennrar uppbyggingar. FrieslandCampina lenti í kröppum dansi á sumum mörkuðum sínum og hefur upplifað samdrátt í innvigtun mjólkur frá hollenskum kúabændum sem margir þurfa að draga úr framleiðslu sinni vegna sértækra umhverfiskrafna þarlendra yfirvalda. Til að mæta þessu var stjórn félagsins snögg að bregðast við og seldi frá sér einingar og lokaði vinnslustöðvum og skilaði það sér í því að félagið náði að auka veltu sína þrátt fyrir breytt starfsumhverfi! Mengniu Mengniu, sem er kínverskt, fellur á listanum mest vegna gengis- þróunar á yuan en hélt áfram að vaxa vel á kínverska markaðinum. Alls jukust umsvif Mengniu um rúm 10% árið 2022 en fyrirtækið hefur nú hafið innreið sína inn á osta- og smjörmarkaðinn í Kína, en hingað til hafa kínversku afurðafyrirtækin látið þann markað eiga sig. Hægt og rólega hefur byggst upp stór markaður fyrir þessar vörur, byggt upp af innflutningsfyrirtækjum, og núna er markaðurinn nógu stór til þess að Mengniu hefur innreið á hann. Þá heldur Mengniu áfram að vaxa á kínverska ísmarkaðinum, sem enn er í mikilli sókn. Fonterra Þessi fyrrum risi á afurða- markaðinum, hið nýsjálenska sam- vinnufélag þarlendra kúabænda, hefur átt betri ár og miðað við hin fyrirtækin féll það á listanum um þrjú sæti og heldur þar með áfram að gefa eftir enn eitt árið. Er nú í níunda sæti. Fáir hefðu líklega trúað þessu fyrir örfáum árum síðan! Fonterra veðjaði á sínum tíma heldur hraustlega á kínverska markað- inn og þegar þarlendir bændur náðu vopnum sínum og framleiðslan þar jókst ár frá ári lentu þau fyrirtæki sem voru stórtæk í innflutningi í ákveðnum vanda. Sum voru betur sett en önnur eins og gefur að skilja en Fonterra, sem seldi mikið af afurðum sínum sem hráefni fyrir önnur fyrirtæki, fékk skell sem enn er verið að vinna úr. Saputo Í tíunda sæti listans er kandadíska fyrirtækið Saputo. Fyrirtækið er bara eitt þriggja á topp 10 listanum sem hefur ekki sætaskipti við annað fyrirtæki á milli ára. Saputo, sem hefur verið í miklum uppkaupum á öðrum fyrirtækjum undanfarin ár, notaði árið í að bæta reksturinn og nýta fjölbreytt eignasafn sitt til aukinnar sérhæfingar. Af þeim sökum hélt Saputo mikið til sjó á milli ára. Flest með vörur úr plöntuafurðum Athygli vekur að svo til öll afurða- fyrirtækin 20 eru með framleiðslu á vörum úr plöntuafurðum, þ.e. með vörulínur sem eru fyrir neytendur sem ekki neyta mjólkurvara. Snorri Sigurðsson snorri.sigurdsson@outlook.com Á FAGLEGUM NÓTUM Ótrúlegar sviptingar á lista stærstu mjólkurvinnslufyrirtækjanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.