Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
Íslenskur landbúnaður er óum-
deilt ein af undirstöðuatvinnu
greinunum á Íslandi.
Á sama tíma
og bændum er
ætlað að auka
framleiðslu og
tryggja fæðu-
öryggi þjóðar á
viðsjárverðum
tímum starfa þeir
við mjög krefjandi
starfsskilyrði.
Vinnuumhverfi bænda er því flókið
og afar brýnt að kanna reglulega
líðan og hag stéttarinnar auk þess
að efla forvarnir og bæta þekkingu
á aðstæðum þeirra. Bændur þekkja
ekki styttingu vinnuvikunnar, helgar-
eða sumar frí. Heimilis líf bænda er
sam tvinnað vinnu þeirra með löngum
og óreglu legum vinnu stundum en
skepnum þarf að brynna jafnt á jólum
sem há sumrum. Af leysinga þjónusta
fyrir bændur er afar tak mörkuð
og mikið traust er lagt á nánustu
að stand endur eða næsta nágranna.
Það að hringja sig inn veikan bitnar
á dýrunum og gæti skilgreinst sem
dýraníð.
Líðan íslenskra bænda var síðast
könnuð í rannsókn sem birt var í
Læknablaðinu árið 2009.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar
bentu til þess að líðan bænda væri
á þeim tíma betri en Íslendinga
almennt en þar sem 14 ár eru liðin
síðan líðan bænda var könnuð er
fullt tilefni til að endurmeta stöðuna
í dag.Vísbendingar eru nefnilega um
að andleg vanlíðan, streita og kvíði
sé að aukast meðal bænda hér á landi
og hafa síðustu ár reynst mörgum
bændum erfið. Einkum þarf að horfa
til þeirra sem hafa þurft að skera niður
í bústofni vegna dýrasjúkdóma, þar
sem geðheilsa bænda og dýravelferð
eru nátengd.
Umræða um geðrænan vanda
er nefnilega viðkvæmari en önnur
heilsutengd umræða. Henni fylgir
oft óþörf skömm og almennt er talið
að fólk veigri sér lengur við að leita
hjálpar við þess konar kvillum, meðan
líkamlegir kvillar fá yfirleitt snögga
meðferð. Andleg vandamál er því oft
erfiðari að greina og liggja djúpt falin
lengur en aðrir kvillar.
Með það í huga verður á næstunni
lögð netkönnun fyrir íslenska bændur
til að kanna líðan og seiglu þeirra.
Auk þess verður spurt um áform
bænda til flutninga og fyrirætlanir
um að skipta um atvinnugrein á
næstu árum. Rannsóknin er unnin
af Rannsóknamiðstöð Háskólans á
Akureyri í samvinnu við Bænda-
samtök Íslands og mun vonandi
hjálpa til við að koma umræðunni
upp á yfirborðið.
Seigla íslenskra bænda hefur ekki
verið metin áður en seigla er hæfni
til jákvæðrar aðlögunar í erfiðum
aðstæðum. Þeir sem hafa meiri
seiglu takast betur á við streitu og
mótlæti og eru ólíklegri til að þróa
með sér geðræn vandamál. Þar að
auki verður athugað hvort munur
sé á líðan bænda og líðan annarra
Íslendinga á vinnumarkaði, að teknu
tilliti til lýðfræðilegra þátta (s.s. kyns,
aldurs, menntunar og fjárhagsstöðu).
Loks verður skoðað hvort munur sé
á líðan bænda eftir því hvort þeir hafi
áform um að flytja eða skipta um
atvinnugrein á næstu árum.
Að geta veitt bændum bjargir til
að þekkja merki streitu og andlegrar
vanlíðunar er lýðheilsumál. Mikilvægt
er að hefja vitundarvakningu um þessi
mál meðal bænda og miðla til þeirra
og aðstandenda greiðum leiðum til
sjálfsbjargar. Bændur eru misjafnir
eins og þeir eru margir en fyrsta
skrefið er að átta sig á, þekkja og
viðurkenna vandann.
Bændasamtökin hófu átak
í fræðslumálum til bænda um
andlega heilsu en haustið 2022 var
verkefnið sett af stað. Framleidd
voru fræðslumyndbönd sem byggja á
jafningjafræðslu, þar sem bændur sem
lent hafa í áföllum deila með öðrum
sínum frásögnum og segja frá reynslu
sinni og er aðgengilegt öllum þeim sem
eru hluti af Bændasamtökum Íslands
Bændageð er verkefni sem miðar að
því að hjálpa til við að taka þetta fyrsta
skref. Með jafningjaupplýsingum
og reynslusögum er auðveldara að
spegla sig í aðstæðum annarra og þá
mögulega gera sér fyrr grein fyrir því
í hvaða sporum viðkomandi stendur.
Við viljum halda áfram að
vinna að forvörnum og aðstoða
bændur og aðstandendur þeirra við
að læra hvernig koma megi auga á
vísbendingar um hrakandi andlega
heilsu, því það er mikilvægt að huga
að andlegri heilsu bænda þegar kemur
að fæðuöryggi þjóðar og dýravelferð.
Bændageðið, fyrsta skrefið í átt að
bættri líðan.
Halla Eiríksdóttir stjórnarmaður BÍ,
hjúkrunarfræðingur og
sauðfjárbóndi.
Halla Eiríksdóttir.
Bændageð:
Af hverju þurfum við að ræða
um geðheilbrigði bænda?
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
BETRA AÐ EIGA EN VANTA!
VAKTARAR - TALSTÖÐVAR - HÖFUÐLJÓS - BÆTIEFNI
516-2600
vorukaup@vorukaup.is
• Loft í loft
• Loft í vatn
• Vatn í vatn
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Reykjabúið ehf, 271 Mosfellsbæ
Nánari upplýsingar veitir Jón Magnús,
reykjabuid@kalkunn.is
√ Reykjabúið ehf auglýsir eftir eftir starfsmanni
í almenn störf á fuglabúi.
√ Vinna við eldi á fuglum og hvað eina sem til fellur.
√ Fullt starf.
√ Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja
reynslu í skepnuhirðingu.
√ Bílpróf.
Atvinna í boði
Reykjabúið ehf / Mosfellsbæ
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA