Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 FRÉTTASKÝRING Garðyrkja: Enginn hvati til framleiðsluaukningar Þetta er staðan þó að í núgildandi búvörusamningum frá 2016 sé tiltekið að markmið samkomulagsins sé að við endurskoðun hans árið 2023 hafi framleiðsla á íslensku grænmeti aukist um 25 prósent, miðað við meðalframleiðslu áranna 2017 til 2019, í því miði að auka markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Stuðningur ekki aukinn Seinni endurskoðun búvörusamninga á sum sé að ljúka á þessu ári. Garðyrkjubændur hafa sérstaklega lýst yfir vonleysi um gang viðræðna við samninganefnd stjórnvalda um starfsskilyrði þeirra. Vonir þeirra um framgang í viðræðunum voru svo endanlega blásnar út af borðinu við birtingu fjárlagafrumvarps, nú á upphafsdögum Alþingis, en þá varð ljóst að ekki ætti að auka stuðninginn við þennan hluta íslenskrar matvælaframleiðslu. Ítrekuð vilyrði stjórnvalda um frekari stuðning Á undanförnum misserum hafa ítrekað komið fram vilyrði stjórn­ valda um frekari stuðning við íslenska garðyrkju svo auka megi framleiðslu á íslensku grænmeti og hlutdeild þess á innlendum markaði í átt að fæðuöryggi fyrir Ísland. Í stjórnarsáttmála ríkis stjórnar­ innar er sér staklega til tekið að við endur skoðun bú vörusamninga verði lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi á Íslandi með því að efla innlenda landbúnaðarframleiðslu. Stuðningur hins opinbera verði samhæfður með það að markmiði að styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar í þágu loftslagsmála, umhverfis­ og náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun. „Aukinni framleiðslu á grænmeti verður náð með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og sérstökum stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga,“ segir í stjórnarsáttmálanum frá árinu 2021. Garðyrkja er meðal lofts lags­ vænstu greinum land búnaðar á Íslandi. Þar er augljós skortur á fjölbreytni í ræktun auk þess sem framboð innlendrar framleiðslu hefur verið metið tæplega helmingur þess framboðs af grænmeti sem stendur íslenskum neytendum jafnan til boða og hefur lítið þokast upp á við. Ekki sköpuð skilyrði til vaxtar Sem fyrr segir er í markmiðum núgildandi búvörusamninga, um starfsskilyrði garðyrkjubænda, gert ráð fyrir að nú við endurskoðunina hafi framleiðsla á íslensku grænmeti aukist um 25 prósent miðað við meðalframleiðslu áranna 2017 til 2019, til að auka markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Það hefur ekki náðst eins og sjá má hér í meðfylgjandi töflu yfir framleiðslumagn helstu tegunda í úti­ og ylræktun á Íslandi. Hvorki 2020 né 2021 var framleiðsluaukningu náð. Fram­ leiðslan dróst þá saman frá viðmiðunarárunum. Árið 2020 var framleiðslan tæpu einu prósenti undir meðaltali áranna 2017–19 og árið 2021 var hún um sjö prósentum undir meðaltalinu. Á síðasta ári varð aukning um þrjú prósent á framleiðslu þessara 13 tegunda sem Hagstofa Íslands tekur saman gögn um. Í fjármálaáætlun ríkis stjórnarinnar til ársins 2028, og birt var í apríl á þessu ári, var gert ráð fyrir að skilyrði verði sköpuð til að framleiðsla á útiræktuðu og ylræktuðu grænmeti geti aukist um 25 prósent. Að í útiræktun geti framleiðslan farið úr 11.70 tonnum í 14.60 tonn og í ylræktinni úr 3.485 tonnum í 4.350 tonn. Axel Sæland, formaður deildar garðyrkju bænda hjá Bænda­ samtökum Íslands, segir að því miður virðist sem ríkisstjórnin hafi horfið frá þessum áformum – ekki verði sköpuð skilyrði til slíks vaxtar án frekari fjárhagslegs stuðnings við greinina. „Það kemur fram bæði í stjórnarsáttmála og fjármálaáætlun að það eigi að bæta verulega í garðyrkjuna á næstu árum. Stóra ástæðan var hvað garðyrkja er loftslagsvæn og breyttar neysluvenjur almennings. Þessu átti að ná með því að festa niðurgreiðsluhlutfall á dreifingarkostnaði rafmagns við 95 prósent og með sérstökum stuðningi til útiræktunar. Einnig átti að koma með aðgerðaráætlun til stuðnings lífrænnar framleiðslu til að fá bændur til að færa sig í þá átt sem og fá nýja inn í greinina. Þá var gert ráð fyrir að dreifingarkostnaður raforku yrði sérstaklega skoðaður við endurskoðun á þessu ári,“ segir Axel. Fá engan hljómgrunn hjá ráðuneytinu „Staðan er ekki góð, við fáum engan hljómgrunn innan ráðuneytisins. Hvorki aukið fjármagn né að gera áherslubreytingar á samningnum. Samninganefnd ráðherra er með skýr skilaboð að það standi ekki til að gera neinar breytingar á endurskoðun. Við getum fært fjármagn milli liða innan samnings, annað ekki,“ heldur Axel áfram. „Áherslur okkar eru að gera samninginn á þá vegu að hann sé hvetjandi fyrir framleiðendur og tryggi betur rekstrargrundvöll garðyrkjubænda. Til dæmis með því að festa niðurgreiðslu á dreifingarkostnaði raforku í 95 prósentum í stað þess að þetta sé pottur sem þynnist út, eins og raunin er núna. Sama á við um útiræktunina, við myndum vilja breyta þessum greiðslum til bænda sem miðast við hvern hektara sem þeir rækta. Þær eru letjandi á frekari framleiðslu. Þær koma úr einum potti og lækka um leið og einhver eykur framleiðsluna. Einnig viljum við að stuðningur til lífrænnar ræktunar verði á hærri stuðlum þannig að lífrænir ræktendur séu samkeppnisfærari á markaði. Erfið samkeppni Axel segir að í raun sé af nægu að taka þegar kemur að því að taka til í kerfinu. „Við erum í beinni samkeppni við erlendar garðyrkjustöðvar sem ná fram mikilli hagræðingu þar sem þær eru margfalt stærri en stærstu garðyrkjustöðvar hér á landi og með ódýrara vinnuafl. Íslenskt grænmeti er gæðavara sem er að verða ósamkeppnishæf við innflutt grænmeti vegna þess hversu dýrt það er í framleiðslu.“ Fyrirkomulaginu var breytt árið 2002, þannig að í stað tollverndar voru teknar upp beingreiðslur frá ríkinu. Ræktendur á gúrkum, tómötum og papriku fá þannig beingreiðslur til að eiga möguleika á að keppa í verði við sambærilegar innfluttar vörur, auk þess sem dreifingarkostnaður á raforku er greiddur niður af ríkinu. „Ylræktað grænmeti er í beinni samkeppni við innflutt grænmeti, engir tollar. Svo eru tollatímabil á annan innflutning þar sem tollar koma á þegar uppskerutímabil eru í gangi hér á landi og fram eftir vetri eftir því hve hægt er að geyma grænmetið lengi. Hann segir að í ylrækt sé launakostnaður orðinn langstærsti einstaki kostnaðarliðurinn, um 40 prósent, og raforkukostnaður um 15–20 prósent af rekstrarkostnaði. Áburðarkostnaður sé ekki hár af heildinni í ylrækt en verulegur kostnaður í útirækt,“ segir Axel. Smærri framleiðendum hefur fækkað Axel heldur áfram gagnrýni sinni á stuðningsfyrirkomulagið. „Í okkar kerfi virkar bara lögmálið að því meira sem er framleitt því minni stuðningur, þar sem fjármagnið er pottur sem þynnist út þegar meira er framleitt. Þrátt fyrir þennan stuðning þurfa garðyrkjubændur að fá töluvert hærra verð fyrir sína vöru en það innflutta. Hvatinn til að framleiða meira er ekki til staðar og líklegra að stórir framleiðendur haldi velli þar sem þeir ná einhverri hagræðingu í gegnum stærðina. Þetta hefur leitt af sér að smærri framleiðendum hefur fækkað síðustu ár. Sama má segja um annað ylræktað grænmeti, en þar er potturinn mun Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Garðyrkjubændur í útiræktun grænmetis eru nú í óða önn við að ljúka uppskeru úr görðum sínum. Ef að líkum lætur verður heildaruppskera á landinu svipuð og á undanförnum árum, bæði hvað varðar magn og tegundir. Sú hefur nefnilega verið raunin, uppskerumagn frá 2017 hefur verið á bilinu 13 þúsund tonn og upp í 15.500 tonn þegar skoðaðar eru uppskerutölur helstu ræktunartegunda í úti- og ylrækt. Mikill vöxtur var í rauðkálsræktun á síðasta ári. Mynd / Vallakot Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands.  Mynd/Espiflöt VARAHLUTIR Í KERRUR Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og Bílabúðin Stál og stansar Uppskerumagn helstu ræktunartegunda frá 2017-2022 Ár 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Kartöflur 9.000 6.020 8.200 7.379 6.355 7.179 Rófur 930 540 895 940 560 634 Gulrætur 750 520 900 738 882 981 Tómatar 1.334 1.213 1.183 1.163 1.234 1.461 Gúrkur 1.857 1.927 1.924 1.808 2.067 2.086 Paprika 191 181 202 203 184 168 Blómkál 55 47 77 94 118 89 Hvítkál 276 154 146 256 214 235 Kínakál 50 37 30 81 69 87 Spergilkál 68 45 100 90 93 84 Rauðkál 55 28 39 58 40 64 Salat 370 403 407 450 538 618 Sveppir 580 580 560 611 581 592 Samtals 15.516 11.695 14.663 13.871 12.935 14.278
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.