Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 05.10.2023, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023 Býli? Kirkjubær á Rangárvöllum. Ábúendur? Hjörvar Ágústsson, Hanna Rún Ingibergsdóttir og dóttir okkar, Lilja Rún Hjörvarsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við erum þrjú í heimili, eigum svo kisuna Blesu og hundana Dögg og Kröflu, sem eru ástralskir fjárhundar. Stærð jarðar? 1.500 hektarar. Gerð bús? Hrossaræktarbú. Fjöldi búfjár? Á jörðinni eru um 100 hestar. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Byrjum á að gefa og moka stíur, svo er riðið út þangað til komið er að kvöldgjöf hjá hestum og mönnum, svo frekar einfalt prógramm alla daga. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Frumtamningarnar á haustin eru með því skemmtilegra sem við gerum og ætli það leiðin- legasta sé ekki að fara skyndilega í girðingarvinnu þegar maður má alls ekki vera að því, girðingar slitna nánast alltaf þegar það er annaðhvort mjög vont veður eða við í mikilli tímaþröng. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Vonandi alveg jafngaman að þjálfa hesta og vonandi fjöldi hesta í húsinu frá Kirkjubæ orðinn aðeins stærri en fjöldi hesta frá öðrum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Það er alltaf til smjör og ostur og svo frosnar beyglur með rúsínum í frystinum. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Ætli það sé ekki grillað lambakjöt og meðlæti, mjög vinsæll matur yfir sumarmánuðina. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Öll eftirminnilegustu atvikin eru frá því þegar við vorum að reyna vera fjárbændur, vorum með um 30 fjár. Komumst að því að við erum vonlaus í því. Eigum ótal sögur af okkur að detta almennilega á hildir rétt áður en lagt var af stað í keppnisferðalag og vera stönguð af rollu við það að reyna að hjálpa stífluðu lambi með óvenjulegum aðferðum. Prjónaðar tuskur með fallegu gatamynstri sem myndar tígla. Við mælum með tveimur bómullar- tegundum frá DROPS í tuskur. DROPS Safran sem fæst í 45 litbrigðum og kostar dokkan 440 kr. og DROPS ♥️ You 7 sem fæst í 57 litbrigðum og kostar aðeins 285 kr. DROPS mynstur: e-308 Stærð: 1 tuska er ca 26x26 cm og ca 32 grömm. Garn: DROPS Safran eða DROPS ♥You 7, fæst hjá Handverkskúnst, www.GARN.is Litir á mynd: DROPS Safran - Þokubleikur nr 56, Natur nr 18, Rauður leir nr 59, Ljósbrúnn nr 22. Sambærilegir litir í DROPS ♥ You 7 - Ljósferskja nr 54, Ryð nr 34, Súkkulaði nr 37, Perla nr 32. Prjónar: nr 2,5 eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur í sléttuprjóni verði 10 cm á breidd. Uppskrift: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 67 lykkjur á prjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 50 lykkjur (=5 endurtekningar), A.3 yfir 6 lykkjur og prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna eftir mynsturteikningu svona þar til stykkið mælist ca 25 cm, endið eftir 10. eða 20. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Klippið frá og gangið frá endum. Kirkjubær BÆRINN OKKAR HANNYRÐAHORNIÐ Tíglatuskur Mynstur = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = 3 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri) = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri) = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri) Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með! Hafið samband: sigrunpeturs@bondi.is Við höfum búið í Kirkjubæ í 8 ár, fluttum beint þangað þegar við útskrifuðumst frá Háskólanum á Hólum af hestafræðibraut. Hjörvar er þriðji ættliður Kirkjubæinga en þrð hefur verið stunduð hrossarækt frá árinu 1950. Fyrstu 15 árin voru það bræðurnir Stefán og Eggert Jónssynir sem ræktuðu hross í Kirkjubæ en þá tók við búinu afi Hjörvars, Sigurður Haraldsson. Við vinnum við að rækta og þjálfa hesta og tökum einnig að okkur reiðkennslu. Við erum bæði að þjálfa hesta frá okkur en einnig fyrir aðra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.