Bændablaðið - 05.10.2023, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2023
FRÉTTASKÝRING
Garðyrkja:
Enginn hvati til framleiðsluaukningar
Þetta er staðan þó að í núgildandi
búvörusamningum frá 2016 sé
tiltekið að markmið samkomulagsins
sé að við endurskoðun hans árið
2023 hafi framleiðsla á íslensku
grænmeti aukist um 25 prósent,
miðað við meðalframleiðslu
áranna 2017 til 2019, í því miði að
auka markaðshlutdeild innlendrar
framleiðslu.
Stuðningur ekki aukinn
Seinni endurskoðun búvörusamninga
á sum sé að ljúka á þessu ári.
Garðyrkjubændur hafa sérstaklega
lýst yfir vonleysi um gang viðræðna
við samninganefnd stjórnvalda um
starfsskilyrði þeirra.
Vonir þeirra um framgang í
viðræðunum voru svo endanlega
blásnar út af borðinu við
birtingu fjárlagafrumvarps, nú á
upphafsdögum Alþingis, en þá varð
ljóst að ekki ætti að auka stuðninginn
við þennan hluta íslenskrar
matvælaframleiðslu.
Ítrekuð vilyrði stjórnvalda
um frekari stuðning
Á undanförnum misserum hafa
ítrekað komið fram vilyrði stjórn
valda um frekari stuðning við
íslenska garðyrkju svo auka megi
framleiðslu á íslensku grænmeti og
hlutdeild þess á innlendum markaði
í átt að fæðuöryggi fyrir Ísland.
Í stjórnarsáttmála ríkis stjórnar
innar er sér staklega til tekið að við
endur skoðun bú vörusamninga
verði lögð áhersla á að tryggja
fæðuöryggi á Íslandi með því að efla
innlenda landbúnaðarframleiðslu.
Stuðningur hins opinbera verði
samhæfður með það að markmiði
að styrkja og fjölga stoðum
landbúnaðar á grunni sjálfbærrar
nýtingar í þágu loftslagsmála,
umhverfis og náttúruverndar og
fjölbreytni í ræktun. „Aukinni
framleiðslu á grænmeti verður náð
með föstu niðurgreiðsluhlutfalli
á raforkuverði til ylræktar og
sérstökum stuðningi við útiræktun
í gegnum búvörusamninga,“ segir í
stjórnarsáttmálanum frá árinu 2021.
Garðyrkja er meðal lofts lags
vænstu greinum land búnaðar á
Íslandi. Þar er augljós skortur á
fjölbreytni í ræktun auk þess sem
framboð innlendrar framleiðslu hefur
verið metið tæplega helmingur þess
framboðs af grænmeti sem stendur
íslenskum neytendum jafnan til boða
og hefur lítið þokast upp á við.
Ekki sköpuð skilyrði til vaxtar
Sem fyrr segir er í markmiðum
núgildandi búvörusamninga, um
starfsskilyrði garðyrkjubænda, gert
ráð fyrir að nú við endurskoðunina
hafi framleiðsla á íslensku grænmeti
aukist um 25 prósent miðað við
meðalframleiðslu áranna 2017 til
2019, til að auka markaðshlutdeild
innlendrar framleiðslu. Það hefur ekki
náðst eins og sjá má hér í meðfylgjandi
töflu yfir framleiðslumagn helstu
tegunda í úti og ylræktun á Íslandi.
Hvorki 2020 né 2021 var
framleiðsluaukningu náð. Fram
leiðslan dróst þá saman frá
viðmiðunarárunum. Árið 2020 var
framleiðslan tæpu einu prósenti
undir meðaltali áranna 2017–19 og
árið 2021 var hún um sjö prósentum
undir meðaltalinu. Á síðasta ári varð
aukning um þrjú prósent á framleiðslu
þessara 13 tegunda sem Hagstofa
Íslands tekur saman gögn um. Í
fjármálaáætlun ríkis stjórnarinnar til
ársins 2028, og birt var í apríl á þessu
ári, var gert ráð fyrir að skilyrði verði
sköpuð til að framleiðsla á útiræktuðu
og ylræktuðu grænmeti geti aukist
um 25 prósent. Að í útiræktun geti
framleiðslan farið úr 11.70 tonnum í
14.60 tonn og í ylræktinni úr 3.485
tonnum í 4.350 tonn.
Axel Sæland, formaður deildar
garðyrkju bænda hjá Bænda
samtökum Íslands, segir að því
miður virðist sem ríkisstjórnin hafi
horfið frá þessum áformum – ekki
verði sköpuð skilyrði til slíks vaxtar
án frekari fjárhagslegs stuðnings
við greinina.
„Það kemur fram bæði í
stjórnarsáttmála og fjármálaáætlun
að það eigi að bæta verulega í
garðyrkjuna á næstu árum. Stóra
ástæðan var hvað garðyrkja er
loftslagsvæn og breyttar neysluvenjur
almennings. Þessu átti að ná með
því að festa niðurgreiðsluhlutfall
á dreifingarkostnaði rafmagns
við 95 prósent og með sérstökum
stuðningi til útiræktunar. Einnig átti
að koma með aðgerðaráætlun til
stuðnings lífrænnar framleiðslu til
að fá bændur til að færa sig í þá átt
sem og fá nýja inn í greinina. Þá var
gert ráð fyrir að dreifingarkostnaður
raforku yrði sérstaklega skoðaður við
endurskoðun á þessu ári,“ segir Axel.
Fá engan hljómgrunn hjá
ráðuneytinu
„Staðan er ekki góð, við fáum engan
hljómgrunn innan ráðuneytisins.
Hvorki aukið fjármagn né að gera
áherslubreytingar á samningnum.
Samninganefnd ráðherra er með skýr
skilaboð að það standi ekki til að gera
neinar breytingar á endurskoðun.
Við getum fært fjármagn milli liða
innan samnings, annað ekki,“ heldur
Axel áfram.
„Áherslur okkar eru að gera
samninginn á þá vegu að hann
sé hvetjandi fyrir framleiðendur
og tryggi betur rekstrargrundvöll
garðyrkjubænda. Til dæmis
með því að festa niðurgreiðslu á
dreifingarkostnaði raforku í 95
prósentum í stað þess að þetta sé
pottur sem þynnist út, eins og
raunin er núna. Sama á við um
útiræktunina, við myndum vilja
breyta þessum greiðslum til bænda
sem miðast við hvern hektara sem
þeir rækta. Þær eru letjandi á frekari
framleiðslu. Þær koma úr einum
potti og lækka um leið og einhver
eykur framleiðsluna. Einnig viljum
við að stuðningur til lífrænnar
ræktunar verði á hærri stuðlum
þannig að lífrænir ræktendur séu
samkeppnisfærari á markaði.
Erfið samkeppni
Axel segir að í raun sé af nægu
að taka þegar kemur að því að
taka til í kerfinu. „Við erum í
beinni samkeppni við erlendar
garðyrkjustöðvar sem ná fram
mikilli hagræðingu þar sem þær
eru margfalt stærri en stærstu
garðyrkjustöðvar hér á landi og
með ódýrara vinnuafl. Íslenskt
grænmeti er gæðavara sem er að
verða ósamkeppnishæf við innflutt
grænmeti vegna þess hversu dýrt það
er í framleiðslu.“
Fyrirkomulaginu var breytt árið
2002, þannig að í stað tollverndar
voru teknar upp beingreiðslur
frá ríkinu. Ræktendur á gúrkum,
tómötum og papriku fá þannig
beingreiðslur til að eiga möguleika
á að keppa í verði við sambærilegar
innfluttar vörur, auk þess sem
dreifingarkostnaður á raforku er
greiddur niður af ríkinu.
„Ylræktað grænmeti er í beinni
samkeppni við innflutt grænmeti,
engir tollar. Svo eru tollatímabil á
annan innflutning þar sem tollar
koma á þegar uppskerutímabil eru í
gangi hér á landi og fram eftir vetri
eftir því hve hægt er að geyma
grænmetið lengi.
Hann segir að í ylrækt sé
launakostnaður orðinn langstærsti
einstaki kostnaðarliðurinn, um 40
prósent, og raforkukostnaður um
15–20 prósent af rekstrarkostnaði.
Áburðarkostnaður sé ekki hár af
heildinni í ylrækt en verulegur
kostnaður í útirækt,“ segir Axel.
Smærri framleiðendum
hefur fækkað
Axel heldur áfram gagnrýni sinni á
stuðningsfyrirkomulagið. „Í okkar
kerfi virkar bara lögmálið að því
meira sem er framleitt því minni
stuðningur, þar sem fjármagnið er
pottur sem þynnist út þegar meira
er framleitt.
Þrátt fyrir þennan stuðning þurfa
garðyrkjubændur að fá töluvert
hærra verð fyrir sína vöru en það
innflutta. Hvatinn til að framleiða
meira er ekki til staðar og líklegra að
stórir framleiðendur haldi velli þar
sem þeir ná einhverri hagræðingu í
gegnum stærðina. Þetta hefur leitt af
sér að smærri framleiðendum hefur
fækkað síðustu ár.
Sama má segja um annað ylræktað
grænmeti, en þar er potturinn mun
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Garðyrkjubændur í útiræktun grænmetis eru nú í óða önn við að ljúka
uppskeru úr görðum sínum. Ef að líkum lætur verður heildaruppskera
á landinu svipuð og á undanförnum árum, bæði hvað varðar magn og
tegundir. Sú hefur nefnilega verið raunin, uppskerumagn frá 2017 hefur
verið á bilinu 13 þúsund tonn og upp í 15.500 tonn þegar skoðaðar eru
uppskerutölur helstu ræktunartegunda í úti- og ylrækt.
Mikill vöxtur var í rauðkálsræktun á síðasta ári. Mynd / Vallakot
Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands.
Mynd/Espiflöt
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
Uppskerumagn helstu ræktunartegunda frá 2017-2022
Ár 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Kartöflur 9.000 6.020 8.200 7.379 6.355 7.179
Rófur 930 540 895 940 560 634
Gulrætur 750 520 900 738 882 981
Tómatar 1.334 1.213 1.183 1.163 1.234 1.461
Gúrkur 1.857 1.927 1.924 1.808 2.067 2.086
Paprika 191 181 202 203 184 168
Blómkál 55 47 77 94 118 89
Hvítkál 276 154 146 256 214 235
Kínakál 50 37 30 81 69 87
Spergilkál 68 45 100 90 93 84
Rauðkál 55 28 39 58 40 64
Salat 370 403 407 450 538 618
Sveppir 580 580 560 611 581 592
Samtals 15.516 11.695 14.663 13.871 12.935 14.278