Úrval - 01.06.1964, Side 19
NJÓSNASTRÍÐ STÓRVELDANNA
9
sem ekki er eins og það ætti að
vera: hún kostar of mikið, hefur
of margt fólk i þjónustu sinni
og innan hennar of mikiS um
samkeppni og tvíverknaS. En
vér getum aldrei horfiS aftur til
hinna gömlu, góðu daga fyrir
síSari heimsstyrjöldina, þegar
upplýsingastarfsemi Bandaríkj-
anna var aS miklu leyti í hönd-
um fáeinna þjónustukvenna í
hermálaráSuneytinu. John Mc-
Cone hefur sjálfur bent á ástæð-
una fyrir þvi, aS vér getum ekki
horfiS til baka:
„Sérhver styrjöld á þessari
öld, þar á meðal fyrri heims-
styrjöldin, hefur veriS hafin
sökum ófullnægjandi upplýsinga
og rangs mats og rangra álykt-
ana af þeim upplýsingum, sem
fyrir hendi voru.“
John Kieran segir sögu af klæðskeraverkstæði, sem velgengni
eftirstríðsáranna virtist alveg hafa sniðgengið. Að lokum varð
það gjaldþrota, og búðinni var lokað. Annar fðlaginn var að virða
fyrir sér tóma búðina, áður en þeir yfirgæfu haíia.
„Ég skit þetta bara alls ekki," sagði hann. „Nú förum við á
hausinn, en það er ekki lengra síðan en i gær, að. ég las þau orð
Trumans forseta, að viðskiptalífið hefði aldrei verið fjörugra
en einmitt núna.“
Þá sagði hinn: „Kannske liggur1 staðurinn hans betur við við-
skiptum en okkar.“
Frank Eyes auglýsingastjóra er farið að gruna, að ef til vill
tali hann of mikið um viðskiptamál heima hjá sér. Svo er mál
með vextþ að nýlega fór hann út að ganga með 4 ára gamalli
dóttur sinni heima i Westport I Connecticutfylki. Þau gengu út
í skóga og hann sýndi henni skordýrin, fuglana og jurtirnar og
sagði henni frá dásemdum Móður Náttúru. En allt í einu gellur
við í þeirri litlu. „Heyrðu pabbi, eru köngulærnar og kolkrabb-
arnir framleidd af sama framleiðanda?“
Lítil börn í nýju úthverfi í Ber.gen i Noregi áttu í miklum erfið-
leikum með að rata heim til sín, vegna þess að húsin litu öll eins
út. Á fundi einum í framfarafélagi hverfisins var því ákveðið að
festa myndir af mæðrunum við útidyr húsanna.