Úrval - 01.06.1964, Blaðsíða 141
ÁRÁS JAPANA Á PERLUHÖFN
13
vcpn í hönd, sem grípa skyldi
til, ef ekkert annaö dygði.
Kuroshima hélt á fund Sadat-
oshi Tomioka, yfirmanns fram-
kvæmdadeildar foringjaráösins.
Hann kom beint að efninu.
..Yamamoto aðmiráll hefur skip-
að mér að krefjast tafarlaust
svars ykkar viðvíkjandi Perlu-
hafnarárásinni,“ hóf hann mál
sitt. „Munuð þið samþykkja hana
eða ekki? Nú er orðinn lítill
tími til stefnu. Við verðum að
fá tafarlaust svar.“
Tomioka lét ekki reka á eftir
sér og hóf að bera fram hin
venjulegu mótmæli. Kuroshima
svaraði honum með hinum beztu
gagnrökum Yamamotos, en að
lokum gerði hann sér grein fyr-
ir því, að rak hvorki né gekk.
„Yamamoto aðmíráll krefst
þess, að áætlun hans verði sam-
þykkt,“ sagði hann. „Hann hefur
gefið mér leyfi til þess að lýsa
yfir því, að verði svo ekki gert,
geti hann ekki lengur talizt á-
byrgur fyrir öryggi keisaradæm-
isins. Hann segist þá ekki eiga
annarra kosta völ en að segja af
sér og allt starfslið hans með
honum.“
Tomioka galopnaði augun.
Hann gapti af undrun. Þessi
hótun hafði geysileg áhrif á
hann. En samt sagðist hann að-
eins samþykkja árásina, hvað
hann sjálfan snerti persónulega.
Kuroshima var því sendur til
næsta manns, og enn varpaði
Kuroshima sömu sprengjunni
beint framan í hann. Að lokum
samþykkti foringjaráð flotans
Perluhafnaráætlunina. Þetta var
mikill sigur, en staða Yamamotos
og áhrif í japanska flotanum
voru alveg einstök. Engum með-
limi foringjaráðs flotans né
nokkrum öðrum datt nokkru
sinni í hug að leggja út i stríðið
án þess að Yamamoto stæði
við stýri hins sameinaða flota.
„Það var óhugsandi,“ sagði einn
af aðmírálunum síðar.
NJÓSNASTARFSEMI Á OAHU-
EYJU
Allt frá þeirri stundu var
njósnastarfsemi Japana á Haw-
aiieyjum aukin verulega. Nú
nægðu ekki lengur reglulegar
skýrslur um það, hvaða banda-
risk herskip væru í höfn þá
stundina. Nú urðu yfirmenn
flotans í Tokyo að fá að vita
nákvæmlega, hvar hvert skip
lægi, og einnig var spurt ótal
spurninga um loftvarnir og
lofteftirlit og staðsetningu og
dreifingu flugvéla.
Og flestar þessar upplýsingar
fengust að algerlega löglegum
leiðum, aðeins með þvi einu að
hafa augun opin og nota þau.
Sumir starfsmenn japönsku ræð-
ismannsskrifstofunnar í Honolu-