Úrval - 01.06.1964, Qupperneq 43
MATARÆÐI — LYKILL AÐ GÓÐRI HEILSU
33
fullorðinsaldri. Þó hafa veriS
skráð nokkur tilfelli, sem benda
eindregið til þess, að slíkt hafi
einmitt gerzt. Það er samt furðu-
legt, hve mikið er hægt að gera
til þess að bæta heilsuna, jafn-
vel eftir að hafa byrjað lifs-
skeiðið við algert heilsuleysi.
En forsendur fyrir því, að slíkt
reynist mögulegt, er skilningur
á næringarþörfum líkamans.
Það er ekki til neinn töfra-
sproti, sem veitt geti góða heilsu.
Hana er aðeins hægt að eignast
smám saman, þannig að hún
sé hætt stig af stigi. Er luin kom-
in undir tveim þáttum: 1) brott-
flutningi úrgangs úr líffærakerf-
inu og 2) endurnýjun likams-
vefja með hjálp heilsusamlegs
mataræðis. Vegna hins stöðuga
daglega amsturs eyðast stöðugt
þau ógrynni fruma, sem mynda
likamann. Frumurnar slitna og
endurnýjast síðan með hjálp
nýrra efna, sem líkamanum
berst, eða þær eyðast og nýjar
koma í þeirra stað. Ástand
frumanna og þar með alls lík-
amans er komið undir gæðum
og magni þeirra efna, sem frum-
urnar nola til éndurnýjunar-
starfsins.
Sjá má af þessu, að heilsusam-
legt mataræði er þýðingarmikið,
persónulegt mál hvers og eins.
Enginn, sem óskar þess að öðl-
ast hið bezta í þessu lífi, hefur
efni á því að vera alls fáfróður
um næringarþörf likamans. Þar
að auki getur næring og matar-
æði verið mjög skemmtilegt at-
hugunarefni. Útlit þitt, tilfinn-
ingar og hegðun stjórnast að
miklu leyti af þvi, á hverju þú
nærist eða hvort þú ert van-
nærður. Hver eru þá efni þessa
likama okkar, og hvaða fæðuteg-
unda þörfnumst við til þess að
tryggja heilsusamlegt mataræði?
Sérfræðingur á þessu sviði
hefur útbúið eftirfarandi töflu
yfir efnin í líkama heilbrigðs
manns, sem hefur meðalþyngd:
Eggjahvituefni ...... 16.9%
Fita................. 13.8%
Kolvetni............ 0.8 %
Vatn................. 61.6%
Málmar og steinefni 6.9%
Slík tafla veitir aðeins ör-
litla hugmynd um efnasamsetn-
ingu og þarfir líkamans, og gef-
ur hún alls ekki til kynna, hvers
konar eggjahvítuefni, lcolvetni,
fita eða málmar og steinefni eru
hæfust til þess að endurnýja
líkamsvefi og viðhalda þannig
heilbrigðu líkamsástandi. í
töflu þessari er heldur ekkert
minnzt á hin fyrirferðarlitlu en
þýðingarmiklu efni fæðunnar,
sem nefnd eru bætiefni (vita-
min), þótt vel geti það verið,
að tilvist eða skortur eins eða
fleiri bætiefna eða einhvers
málms eða steinefnis, er í fljótu