Úrval - 01.06.1964, Qupperneq 104
94
ÚRVAL
en samt sem áSur helzt rit-
höndin í aðalatriðum óbreytt.
Þá má og þekkja höfunda að
skrifuðu máli nokkuð af því,
hvernig orðum er raðað i setn-
ingar. Til dæmis má taka til at-
hugunar tvö bréf frá einum og
sama manni, bera þau saman,
hvað stílinn snertir, unz sam-
eiginleg einkenni eru fundin,
varðandi orðaval, setningamynd-
un og ýmis önnur atriði. Þó að
slíkt verði ekki viðurkennt sem
réttarhæf sönnun, getur sú at-
hugun þó auðveldað mönnum
að ákveða, hvort tvö mismun-
andi bréf eða skjöl séu samin
af einum og sama manni.
Hin lögboðnu skriftarkerfi i
ýmsum löndum liafa ekki eins
mikla þýðingu, hvað þetta snert-
ir. Það er ekki nein vísindaleg
niðurstaða að slá því föstu, að
um þýzlca eða „galliska“ skrift
sé að ræða. Það er að vísu rétt-
lætanlegt, þó að sérfræðingur
segi, að umrædd skrift beri þýzk-
an eða þá franskan svip, en hann
mun hika við að kveða fastara
að orði um það eitt.
NAFNLAUS BRÉF
Það kom fram við vitnaleiöslu
i rétti, að höfundurinn að bréfi
nokkru, nafnlausu, væri fransk-
ur, ungur maður af millistétt.
í rauninni var hann enskur,
hafði átt armeniskan föður,
menntazt í Bandaríkjunum og
var kominn yfir fimmtugt, þegar
bréfið var skrifað.
Það má líka rekja nafnlaus
bréf til höfunda sinna, þó að
þeir reyni að breyta rithönd
sinni til þess að dyljast. Þeir
gera þá sem sagt tilraun til að
breyta þvi i skrift sinni, sem
er ósjálfrátt og orðið vanabund-
ið í undirvitundinni. Fer
þá yfirleitt svo, að þessi ósjálf-
ráðu einkenni gægjast fram og
segja til sín engu að síður.
Sendandi nafnlauss bréfs
skrifaði það „blokk“-stöfum og
með vinstri hendinni, en var þó
ekki örvhendur og skrifaði ann-
ars venjulega skrift. Það kom að
sjálfsögðu ákaflega skýrt fram,
að þessi blekkingarbrögð höfðu
verið notuð, en þrátt fyrir þau
tókst að finna nægilega ljós, ó-
sjálfráð einkenni með þessari
annarlegu skrift og eiginlegri
rithönd mannsins, að sönnun
þótti.
RANNSÓKN Á VÉLRITUÐUM
SKJÖLUM
Þó að Henry Mill væri veitt
einkaleyfi til framleiðslu á rit-
vélum þegar árið 1714, tókst
ekki að framleiða nothæfar rit-
vélar að gagni fyrr en árið 1867.
Ritvél þeirra Sholes og Glidden
kom á markaðinn 1874. Nú eru
það nokkrar stórar verksmiðjur,