Úrval - 01.06.1964, Side 115
SKAÐABÆTUR ÞJÓÐVERJA TIL GYÐINGA
105
skipulagningu skrúðgarða.
Er styrjöldinni lauk, fór DaviS
til Palestínu og vann þar við
garðyrkjuiðn sina. Að þvi kom,
að hann varð að framfleyta sjö
manna fjölskyldu, þótt hann
gengi ekki heill til skógar. Á
kvöldin og um helgar, þegar
hann stóð ekki hokinn með
rekuna, varð hann gripinn af
sinu fyrra hugðarefni og settist
við ritstörfin. Við og við seldi
hann fréttablöðum í Evrópu rit-
verk eftir sig.
Árið 1956, er hann var 41
árs, barst honum frá þýzku
stjórninni fyrsti hlutinn af bóta-
greiðslum fyrir eignarnámið, er
nazistar hrifsuðu til sin vínsölu-
fyrirtæki föður hans. Bæturnar
námu 5.000 dollurum.
Hann lagði frá sér garðyrkju-
áhöldin, keypti sér nýja ritvél,
flaug til Evrópu, lagði leið sína
til útvarpsstöðva, tímarita og
dagblaða keypti segulbandstæki
og að auki bifreið fyrir 1200
dollara. Níu mánuðum síðar
vann hann sér meira inn en hann
hafði nokkru sinni gert sem
garðyrkjumaður.
Nú notar hann aðeins reku
um helgar í garðinum við nýja
heimilið sitt. „Ég hef gert tóm-
stundaiðjuna að aðalstarfi
mínu,“ segir hann, „og starf
mitt að tómstundaiðju.“
David Wolff er einn af hundr-
uðum þúsunda Gyðinga, sem
Þýzkaland hefur með lagaboðum
og milliríkjasamkomulagi, verið
að reyna að bæta skaða þann
vegna þjáninga og ástvinamiss-
is, er þeir urðu að þola undir
harðstjórn nazista, og má slíkt
samkomulag teljast einstætt i
veraldarsögunni. Aldrei áður
hefur þjóð, sem beðið hefur ó-
sigur i styrjöld, innt af liöndum
skaðabætur til borgara annars
ríkis, sem var ekki til, er tjón-
inu var valdið.
Innan þriggja eða fjögurra ára
mun Þýzkaland hafa greitt í
peningum eða peningavirði yfir
fimm billjónir dollara, sem bæt-
ur fyrir tjón, er nazistar ollu.
Mestur hluti þessara verðmæta
eru bætur til einstakra Gyðinga
um víða veröld, sem urðu fyrir
þvi tjóni, að eignir þeirra voru
eyðilagðar eða gerðar upptækar,
og einnig bætur til þeirra, er
misstu heilsu sína og atvinnu,
eða urðu að hætta námi eða
störfum vegna ofsókna nazista.
Yfir 100 milljónum dollara verð-
ur varið til að endurreisa guðs-
þjónustu- og samkunduhús Gyð-
inga, sjúkrahús þeirra, bókasöfn,
munaðarleysingjahæli, barna-
skóla og til annars menningar-
starfs þeirra á meðal i 40 lönd-
um. Og 725 milljóna dollara virði
af varningi verður sent til Isra-
elsríkis ár eftir ár til ársins 1956.