Úrval - 01.06.1964, Qupperneq 152
142
ÚRVAL
ist þeim þetta, væri þannig feng-
ið mjög mikilvægt eyðingarvopn.
Fochida var því beðinn um að
byrja samt sem áður að þjálfa
áhafnirnar nú þegar.
Kagoshimaflói var valinn sem
æfingastaður, vegna þess að
hann er líkur Perluhöfn í lag-
inu. Virkt 4000 feta hátt eldfjall
í flóanum átti að tákna Ford-
eyju. Kagoshimaborg átti að
tákna bandarísku flotakvíarnar,
en Yamagataya-deildarverzlunin
átti að tákna aðalhafnarbygging-
una í Perluhöfn.
Einn góðan veðurdag um
haustið safnaði Fuchida saman
áhöfnum tundurskeytaflugvél-
anna í Kagoshima og tilkynnti
þeim eftirfarandi án minnstu
svipbrigða: „Þið eruð nýbúnir
að ljúka undirbúningsþjálfun
ykkar með því að taka þátt í
hugsaðri orustu á úthafinu. Nú
munuð þið verða þjálfaðir í að
varpa tundurskeytum að skipum,
sem liggja við akkeri á grunn-
sævi.“
Fuchida sagði þetta svo hirðu-
leysislega og rólega, að áhafnirn-
ar veittu orðum hans enga sér-
staka athygli. Shigeharu Murata
aðstoðarmanni hans, sem vissi
um Perluhafnaráætlunina, var
skemmt, og hann sagði síðar,
að Fuchida hefði getað orðið
prýðilegur leikari.
Áhafnirnar voru gramar og
undrandi yfir þessum fyrirskip-
unum. Þær álitu það miklu mik-
ilvægara, að þær yrðu þjálfaðar
í árásum á skip á hreyfingu, en
þau var auðvitað miklu erfiðara
að hitta. En markhæfni tundur-
skeytanna var ekki aðaláhyggju-
efni Fuchida. Það var óhjá-
kvæmilegt, að tundurskeytin
hittu hin risavöxnu, bandarisku
skip, er lágu við akkeri í höfn-
inni, það er að segja grunnsæv-
artundurskeytin, sem voru
reyndar ekki til enn.
„Það eru ekki enn tilbúin nein
tundurskeyti til þjálfunarinnar,“
sagði Fuchida flugmönnum sín-
um, „og því munum við æfa án
þeirra og hugsa okkur hara, að
við höfuin þau.“
Fyrirskipanirnar, sem liann
gaf þeim nú, voru furðulegar.
Flugmennirnir áttu að fljúga
upp í 6500 feta hæð, safnast sam-
an fyrir norðan borgina og fljúga
af stað í áttina til flóans. Er þeir
flugu i suðurátt, áttu þeir að
lækka flugið allt niður í 130
fet.
Flugmennirnir urðu agndofa
yfir þessum fréttum. Fuchida
lagði alltaf geysilega áherzlu á
allar öryggisreglur og að þeim
væri hlýtt, en nú skipaði hann
þeim að fljúga rétt yfir borgina
í aðeins 130 feta hæð! Og þeir
áttu eftir að verða enn meira
undrandi. Fuchida sagði þeim