Úrval - 01.07.1968, Qupperneq 61
SKIP BYGGÐ MEÐ LEIFTURHRAÐA ....
59
flytja bíl á færibandi, en hvernig
yrði unnt að ýta skipsskrokk áfram,
sem vó þúsundir tonna? Hvaða
flutningsbandakerfi gæti þolað slík-
an þunga til lengdar? Þegar Svens-
son heyrði mótbárur þessar, sagði
hann bara rólega: „Ég held, að það
verði unnt að finna hina réttu að-
ferð.“ Hinir framkvæmdastjórarnir
gátu ekki dulið aðdáun sína, er þeir
fundu, hversu öruggur hann var.
Þeir samþykktu að veita honum
ársfrest og 400.000 sænskar krónur
til þess að komast að því, hvort hug-
myndir hans væru framkvæmanleg-
ar og hagkvæmar.
Á þessu ári ferðaðist Svensson
með aðstoðarmönnum sínum um
víða veröld. Þeir skoðuðu fjölmarg-
ar skipasmíðastöðvar og kynntu sér
allar nýjustu vélarnar og fram-
leiðsluaðferðirnar. Þeir kynntust
sovézkri aðferð, sem gerði hina erf-
iðu, lóðréttu logsuðu miklu einfald-
ari í frarrikvæmd. Maður, sem sat í
eins konar búri, sem hreyfðist upp
eða niður eftir þörfum, gat lokið
við logsuðustarf á þrem tímum, sem
venjulega tók ellefu tíma. Stálplötur
bogna oft og dældast, þegar þeim er
lyft með hegrum. Hvers vegna ættu
þeir ekki að nota hegra með risa-
vöxnum rafseglum (frá Noregi),
sem grípa plöturnar og lyfta þeim
án þess að skadda þær á nokkurn
hátt?
Þeir rannsökuðu mjög ýtarlega,
hvernig síðustu 100 skipin höfðu
verið smíðuð hjá Götaverken. Síð-
an endurskipulögðu þeir sérhverja
framleiðsluaðferð í öllum smáatrið-
um til þess að útiloka allar óþarfa
hreyfingar. Áður tók það kannske
Nils Svenson átti bugmynd'ina.
verkamann 22,5 sekúndur að finna
eitthvert verkfæri, sem geymt var
í skúffu, en hjá slíkri tímaeyðslu
var hægt að komast, ef verkfærun-
um var komið þannig fyrir, að hann
gat auðveldlega teygt sig eftir þeim.
Yæru þessar 22,5 sekúndur marg-
faldaðar með þeim þúsundum
starfsmanna, sem hjá stöðinni unnu,
og með þeim þúsundum skipta, sem
leita þurfti að verkfærum, voru óð-
ar komnar þúsundir vinnustunda,
sem unnt yrði að spara með hag-
kvæmri endurskipulagningu,
í sumum skipasmíðastöðvum, þar
sem allt er framkvæmt með gamla
laginu, eru stálplöturnar látnar
ryðga, áður en skipið er fullbyggt,
og síðan er þúsundum vinnustunda
eytt í að ryðberja plöturnar, áður
en þær eru málaðar. Svensson og
aðstoðarmenn hans fundu upp að-
ferð til þess að ráða bót á þessu
ófremdarástandi. Sérhver plata er
færð til á færibandi og látin lenda
í sannkölluðu óveffri, þar sem sund-