Úrval - 01.07.1968, Page 64

Úrval - 01.07.1968, Page 64
62 TJRVAL örðugleikum, og næsta skip, sem var 56.000 tonna olíuskip, var smíð- að á 100 dögum. Nuolja er sextánda skipið, sem smíðað er í Arendal. Og það var smíðað á 81 degi og af- greitt með þriggja mánaða styttri afgreiðslutíma en gert hafði verið ráð fyrir! En Svensson er jafnvel ekki ánægður með þetta nýja met. Hann vonar að geta stytt byggingartím- ann í 65 daga og jafnvel ef til vill síðar í 50 daga, sem virðist næstum ótrúlegt. í skoðunarferð minni um Aren- dalstöðina fannst mér stundum sem hún væri auð og yfirgefin, þótt vinnan væri í fullum gangi. Því sagði ég við leiðsögumann minn: „Það var skrambi slæmt, að ég skyldi ekki koma hingað á vinnu- degi.“ En þetta er venjulegur vinnu- dagur,“ svaraði hann. „Hér er allt í fullum gangi,“ Þar var um að ræða einn stærsta sigur Svenssons; þ. e. að svo fáir starfsmenn skuli geta leyst af hendi svo mikla vinnu. í einum vinnusalnum, sem nær yfir 5 ekrur, eru aðeins 50 starfsmenn! Það er sérstaklega hrífandi að sjá, hvernig hráefnin (aðallega stálplötur) eru flutt á sinn rétta stað í framleiðslukerfinu. í stöðinni eru alltaf til nægilegar birgðir af stálplötum í 4 skip. Stálplöturnar eru fluttar á sinn rétta stað eftir leiðum, sem virðast í fyrstu óskap- lega flóknar, en flutningakerfi þetta er í rauninni eins fullkomið og kerfið í járnbrautarskiptistöð. Sérhver stálplata fær sitt sérstaka „vegabréf". með sérstökum lit og tölu, sem beinir því af fullkomnu öryggi á réttan stað á nákvæmlega réttu augnabliki. Einn maður stjórnar þessu geysilega flutninga- kerfi með hjálp lokaðs sjónvarps- kerfis, sem gerir honum fært að fylgjast nákvæmlega með öllu, sem gerist. Þetta er svo furðulega ná- kvæmt, að brezkur gestur í stöð- inni sagðist geta séð fiðrildi sveima í kringum stálplötur, sem voru í næstum mílufjórðungs fjarlægð. Ryðlausar stálplöturnar eru síðan málaðar, skornar og mótaðar eftir þörfum. í byggingarsal einum eru þær logsoðnar saman í risavaxna skipshluta, sem geta verið allt að því 300 tonn hver. Stærstu hegrar heimsins lyfta þessum hlutum upp á tvær langar rennibrautir, sem byrja innan dyra og ná út úr vinnu- sölunum. Hvor rennibraut getur flutt 250.000 tonna skip. Það er ekki um að ræða neina viðhöfn í sambandi við lagningu kjalar, því að það er ekki um neinn kjöl að ræða í raun og veru. Risa- vaxinn afturhluti kemur svífandi í hegra, sem kemur honum fyrir á rennibrautinni, og síðan er næsti hluti þar fyrir framan logsoðinn við afturhlutann, og svo koll af kolli. Þegar sá hluti rennibrautarinnar, sem er innanhúss, er orðinn fullur, er kominn tími til þess að ýta þessu vaxandi skipi út undir bert loft. Svensson og aðstoðarmenn hans reyndu fyrst kúlulegur til þess að unnt reyndist að ýta þessum fer- líkjum út undir bert loft, en kúlu- legur eru eins konar sérgrein Svía. En jafnvel sterkustu og beztu kúlu- legurnar bognuðu undan þessum of- urþunga. Þeir létu samt ekki bug-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.