Úrval - 01.01.1976, Page 30

Úrval - 01.01.1976, Page 30
28 ný hugtök. Sannur vísindamaður er aldrei sannfærður um, að yfirsýn hans yfir stað- reyndir sé endanleg og fullkomin. Nýir og ókannaðir sjóndeildarhringir eru alltaf til staðar. Það er óneitanlega gleðiefni, að ný kynslóð vísindamanna er nú að koma fram, og að margir 1 þeirra hópi hafa hugrekki til að draga opinberlega í efa staðnaðar hugmyndir er sumir hinna þröngsýnni samtíðarmanna þeirra aðhyll- ast. Árið 1951 sagði Erwin Schrödinger, nóbelsverðlaunahafi í eðlisfræði, að óyggj- andi eftirlíking raunveruleikans sé óhugs- andi. Arthur Koestler, sem var jafn mikill áhugamaður um dularsálfræði og eðlis- fræði, hafði eftirfarandi að segja um af- neitun þeirra hluta er ekki samrýmast löngu viðurkenndum sjónarmiðum: ,,Þú getur alltaf þekkt hana af orðunum ,,ekkert annað en”. Manninum er lýst sem „ekkert annað en” flókið líf-efna- fræðilegt kerfi eða „ekkert annað en” talva. Hugmyndin á rætur að rekja til 19. aldar eðlisfræði, sem eðlisfræðingar eru fyrir löngu búnir að leggja til hliðar.” í efnavísindum eins og efnafræði eða eðlisfræði, er prðfun tilgátu tiltölulega auðvelt viðfangsefni. En þegar hin sama „vísindalega aðferð” er notuð við að rannsaka sálræn fyrirbæri, hefur komið í ljós, að rikjandi viðhorf þeirra sem að rannsókninni standa geta haft afgerandi áhrif á fengnar niðurstöður. Grein er birtist 1 ,,New Scientist”, í apríl 1974, undir heitinu ,,Eru sálorku myndir mögulegar?”, fjallaði að nokkru leyti um Kirlian myndatökur. Sumt af ORVAL því sem þar kemur fram er sérstaklega áhugavert fyrir spíritista. í henni segir m.a. ,,....það besta, sem við þá gætum gert, væri að viðhafa jákvætt og styðjandi viðhorf á meðan á fram- kvæmd vel skipulagðrar tilraunar stæði, en geyma okkur alla gagnrýni og efa þar til seinna, er við tækjum staðreyndir til gaumgæfilegrar íhugunar...Þetta er llka ástæðan til þess að flestir þeirra er leggja stund á dularsálfræði geta talist vera í hópi trúhneigðra manna.” Þeim er það nauðsynlegt til að fá fram jákvæðar niðurstöður. Að sjálfsögðu verða þeir einnig að vera gæddir gagnrýnis- hæfileika og heiðarleika tii að nota hann á réttum tíma við mat staðreynda. Höfundur greinarinnar benti einnig á, að hin „vísindalega aðferð” krefjist þess ekki að menn séu kuldalega hlutlægir og gagnrýnir við framkvæmd tilraunar. Það er góðs viti, hversu margir nútíma vís- indahugsuðir eru farnir að gera sér grein fyrir nauðsyn þess, að menn séu opnir og hleypidómalausir við vísindalegar rann- sóknir. Er spíritismi vísindi? Svarið er háð þeirri skilgreiningu á vísindum sem spyrj- andinn viðurkennir. Ég geri mér ljóst, að spíritismi gengur út frá því sem óvéfengj- anlegum sannieika, að við lifum eftir dauðann. En það er vafamál hvort spíritismi geti við núverandi aðstæður talist uppfylla þær ströngu kröfur, sem gera verður til cís- inda. Ef til vill færi betur að spyrja: ,,Mun spíritismi nokkurn tíma verða að vísindum?" Við þessari spurningu kann ég svar: , Já”.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.