Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 29
4. mynd. Hefðbundið dýptarkort af Geir-
þjófsfirði. Valdar dýptarlínur eru merktar
með dýptartölum. − A conventional conto-
ur map brings out the details of bathy-
metry in Geirþjófsfjörður.
5. mynd. Holurnar í Geirþjófsfirði ásamt
dýptartölum. Holur nr. 1 og 2 eru
grynnstar, 4 og 5 metra djúpar. Hola nr. 3
er umtalsvert stærri, um 17 metra djúp og
um 240 metrar í þvermál. Stærst er hola nr.
4, nálega 20 metra djúp og 280 metrar í
þvermál. Hún er raunar samsett úr tveimur
eða þremur holum. Stærst þeirra er nyrst,
en lítil hola syðst. Á milli þeirra er svo hola
með bröttum börmum og er hér talin hafa
myndast við hrun þar sem efni úr henni
hefur flætt til norðurs, niður í stærstu hol-
una. Hola 5 er um það bil 5 metra djúp.
Vestan hennar vottar fyrir smáholu. Hola 6
er sambærileg við holu 3, 15 metra djúp og
um 200 metrar í þvermál. − Zooming in on
the area of the holes gives a better defini-
tion of their morphology. Holes number 1
and 2 are the shallowest, 4 and 5 metres’
deep. Hole number 3 is considerably
larger, about 17 metres in depth and 240
metres wide. The largest is hole 4. This is
a compound structure of two or three ho-
les. The central portion is a hole with steep
sides, suggesting a collapse and a slide of
material to the north. Hole 5 is approxima-
tely 5 metres’ deep. Hole 6 is comparable
to number 3, 15 metres’ deep and about
200 metres wide.
Mörgum finnst auðveldara að átta sig á
sjávardýpi með dýptarlínum, og er slíkt
kort sýnt á 4. mynd.
Holurnar
Á 5. mynd hefur holusvæðið verið
stækkað til að draga fram einkenni
holnanna. Á myndina eru settar dýptar-
tölur til glöggvunar. Einnig eru holunum
gefin númer.
Eins og myndirnar hér að framan
bera með sér eru holurnar í botninum
misstórar. Breiddin er frá nokkrum
metrum upp í 280 metra, og dýpið 1−20
metrar. Myndirnar geta gefið til kynna
að hliðar holnanna séu brattar og háar.
Raunin er sú að hola 3 til dæmis dýpkar
um 14 metra (frá 80 m í 94 m) á 62−127
metra kafla, eftir því hvar mælt er. Halli
hliðanna frá láréttu er þannig 6,3 til 12,7
gráður. Sambærilegar tölur fyrir holu 3
eru 7,1 til 12,3 gráður.
Þegar kort sem gert er með gögnum
Hafrannsóknastofnunar (2. mynd) er
borið saman við kort Köfunarþjón-
ustunnar (3. mynd) vekur athygli að
mismun er að finna á lögun holu 4. Þessi
mismunur er dreginn fram á 6. mynd.
Við samanburðinn virðist ljóst að hrun,
sem rætt er í skýringum við 5. mynd,
hefur orðið eftir mælingu Hafrann-
sóknastofnunar.
Nánar er vikið að þessari breytingu
í umræðukaflanum í lok greinarinnar.
Setþykktarmælingarnar
Setþykktarmælingar eru sambærilegar
við bergmálsdýptarmælingar, en þar er
notuð lægri tíðni og hljóðmerki hefur
meiri orku. Útskrift mælitækjanna er
sambærileg við dýptarsnið úr dýptar-
mæli, en sýnir einnig endurvarp af jarð-
lögum neðan botns. Setþykktarmæl-
ingar voru gerðar á athugunarsvæðinu
í Geirþjófsfirði, og verða nokkur mæli-
snið sýnd hér á eftir. Lega þeirra er sýnd
á 7. mynd.
Sniðin
Myndir 8 til 11 sýna dæmi um endur-
varpssnið af svæðinu. Lega sniðanna
er sýnd á 11. mynd. Þau sýna endurvarp
29