Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 8
8 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
FRÉTTIR / Siðaráð
Siðareglur kennara eru hugsaðar
sem leiðarvísir í flóknu starfi
kennara. Siðferðislegir snertifletir í
starfi kennarans eru fjórir og snúa
að nemendum, samstarfsfólki,
samfélagi og fagmennsku. Þessir
snertifletir skarast en fagmennskan
tengir þá alla og þeir mynda þannig
þríhyrning. Merki KÍ er þríhyrnt og
táknar öll aðildarfélög KÍ. Þríhyrnt
form siðareglna vísar þannig beint
til tákns KÍ.
Siðareglur KÍ ætti ekki að
horfa á sem tvívíðar heldur eru
víddirnar fleiri. Víddirnar tengjast
en fagmennska kennarans, sem
er fyrir miðjum þríhyrningi, er
forsenda og hornsteinn allra
hinna víddanna og styður við þær.
Myndræn framsetning siðareglna
er tilraun til að færa þær nær
félagsfólki og vekja umræðu.
Af hverju fagmennska?
Fagmennska kennarans er þunga-
miðja þríhyrningsins og bein vísun
til almenns hluta aðalnámskráa
leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Efst í þríhyrningnum eru nemend-
ur og menntun þeirra með áherslu
á áhuga, virðingu og umhyggju
kennarans fyrir nemendum þar
sem áhersluþættir kennsluhátta
eru víðsýni og alhliða þroski.
Kennari menntar og stuðlar að
alhliða þroska nemenda, sem vísar
einnig til aðalnámskrár. Neðst í
þríhyrningnum eru siðareglur sem
snúa að samfélagi og samstarfsfólki
kennara. Þannig hverfast þessir
þrír þættir siðareglna, nemendur,
samstarfsfólk og samfélag, um
fagmennsku kennara.
Ásýnd kennara út á við skiptir
máli í heimi þar sem samfélags-
miðlar og veraldarvefur varpa ein-
földu ljósi á tilveru fólks. Kennara
sem stígur fram og inn í þetta ljós
þarf að vera umhugað um heiður
stéttar sinnar, hann þarf að huga
að framkomu sinni á opinberum
vettvangi og vera meðvitaður um
samfélagsábyrgð sína. Samskipti
kennara við samstarfsfólk sitt
skipta einnig miklu máli þar sem
hver og einn ber ábyrgð á eigin
framkomu við samstarfsfólk og
því faglega samstarfi sem fara þarf
fram í öllum skólum.
Ýmsir þættir siðareglna
skarast, eins og sjá má á myndinni.
Til dæmis birtist hugtakið virðing
oftar en einu sinni og sömuleiðis
trúnaður. Ef rýnt er í reglurnar
má sjá að sumar þeirra hverfast
um sama punkt en í annarri vídd.
Þannig tengjast þær og mynda
heild.
Til hvers siðareglur án
viðurlaga?
Siðareglur eru hugsaðar sem
rammi utan um öll störf kennar-
ans, einnig þau sem ná út fyrir
kennslustofuna. Siðareglur má
nýta sem leiðarvísi en ekki
regluverk. Kennarinn er fyrirmynd
í hverju verki og verður að ganga
fram með góðu fordæmi, bæði
sem kennari og leikmaður, í
samskiptum við samferðafólk í
ræðu og riti, í starfi eða leik. Ekkert
er því til fyrirstöðu að stjórnandi
nýti siðareglur þegar fjallað er um
einstök mál og vísi til þeirra, enda
eru þær vörður á faglegri leið hvers
félagsmanns KÍ.
Samræður um siðareglur
Siðareglum er ætlað að skapa
spurningar og samræður. Þær
eru hugsaðar sem leiðarvísir
fyrir hvern kennara á vegi hans til
þroska sem kennari og mann-
eskja. Umræður um siðareglur
eru nauðsynlegar þar sem finna
þarf sameiginlega mælikvarða á
samskipti og fagmennsku kennara.
Verkefni siðaráðs þetta kjör-
tímabil verður að útbúa bakgrunns-
efni sem vekja á alla þá sem starfa í
skólum, að nemendum meðtöldum,
til umhugsunar, samtals og meðvit-
undar. Efnið er hugsað sem sam-
ræðugrundvöllur fyrir kennara sín
á milli, fyrir kennara í samræðum
við nemendur og fyrir nemendur
sín á milli. Í bígerð er að fá kennara
og nemendur tilraunaskóla til
samvinnu við siðaráð um efnistök
og hvernig vinna megi með einstök
hugtök eða reglur í siðareglunum.
Sú vinna verður kynnt síðar.
Fagmennska
Siðareglur eru rammi um öll störf
kennarans
Siðaráð nýtti meginhluta síðasta kjörtímabils til að endurskoða siðareglur kennara sem höfðu staðið
óbreyttar um langt árabil. Endurskoðaðar reglur voru samþykktar á síðasta þingi KÍ. Siðaráð vinnur nú að
kynningarefni um siðareglurnar og kynningaráætlun. Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber skrifar.
Kennari menntar
og stuðlar að
alhliða þroska
nemenda, sem
vísar einnig til
aðalnámskrár.