Skólavarðan - 2023, Side 15
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 15
Kennarahúsið / UMFJÖLLUN
Laufásveg hefði verið reisulegt í
upphafi þá væri það orðið gamalt,
gisið og kalt.
Árið 1962 urðu þau tímamót
að Kennaraskólinn flutti loks í nýtt
húsnæði við Stakkahlíð. Það hús
þekkja allir kennarar enda hefur
Menntavísindasvið verið þar æ
síðan – eða þar til nú. Menntavís-
indasvið flytur sig um set og hefur
starfsemi á gömlu Hótel Sögu.
Þótt Kennaraskólinn
flytti formlega 1962 þá urðu
handavinnudeildir skólans eftir
á Laufásvegi og voru starfræktar
þar næstu áratugina. Freysteinn
skólastjóri og frú urðu líka eftir í
húsinu og bjuggu þar til 1972.
Kennarasambandið tekur við
húsinu
Nokkrum árum síðar, eða árið
1989, gaf íslenska ríkið Kennara-
sambandinu húsið. Tilefnið var
að þá voru 100 ár liðin frá stofnun
fyrsta kennarafélagsins. Hið
íslenska kennarafélag afþakkaði
gjöf ráðherra en Kennarasamband
Íslands hið eldra þáði húsið.
Svavar Gestsson, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra, lýsti gjöf-
inni svona í Morgunblaðinu 1992:
„Kennarahúsið verður ekki einasta
félagsheimili kennara heldur einnig
glæsileg menningarheimild sem
hvergi er betur geymd en einmitt í
höndum kennarasamtakanna.“
Húsið var þó illa farið að utan
og innan þegar Kennarasambandið
tók við því og var því ráðist í miklar
endurbætur á húsinu; skipt um
klæðningu að utan, gluggar voru
lagfærðir auk breytinga innandyra.
Það var svo þremur árum síðar,
árið 1991, að starfsemi kennara-
samtakanna hófst í endurbættu
húsinu.
Formleg opnun skrifstofu og
félagsaðstöðu KÍ í Kennarahúsinu
árið 1992 var fjölsótt og gestir um
sex hundruð, að sögn Eiríks Jóns-
sonar, þáverandi varaformanns
Kennarasambandsins, í viðtali við
Morgunblaðið sama ár.
Komið að kveðjustund
Árin sem Kennarasambandið
dvaldi í fallegu Kennarahúsinu
voru farsæl og húsið á sérstak-
an stað í hjörtum fjölmargra
félagsmanna KÍ. Þegar starfsemi
sambandsins hófst í húsinu voru
félagsmenn um 3.500 en þegar
yfir lauk, árið 2020, voru þeir
nærfellt 11 þúsund. Vinnuaðstaða
þótti ekki lengur viðunandi auk
þess sem húsið stóðst ekki kröfur
um aðgengi. Árið 2020 var þannig
komið að því að flytja höfuðstöðvar
Kennarasambandsins um set í
Borgartúnið, eftir nærri þrjátíu ára
aðsetur í Kennarahúsinu.
Ákvörðun um að skila ríkinu
húsinu var svo tekin á áttunda
þingi Kennarasambandsins 2022,
en húsið var upphaflega gefið
sambandinu með þeim kvöðum
að KÍ hefði yfirráð yfir húsinu en
gæti ekki selt það eða leigt út. Við
skilin fær KÍ til baka fjármuni sem
sambandið lagði í endurbætur í
gegnum árin.
Verðugt hlutverk
Kennarasamband Íslands kveður
nú Kennarahúsið við Laufásveg.
Það er von KÍ að húsinu verði fund-
ið verðugt hlutverk í framtíðinni.
Kennarahúsið fyrir og eftir endurbætur.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, afhendir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra lykla að Kennarahúsinu.
Unnið að viðgerðum á gamla Kennara-
húsinu.
Unnið að viðgerðum á ytra byrði hússins.
Valgeir Gestsson, fyrrverandi skrifstofu-
stjóri KÍ, stiklaði á stóru um merka sögu
hússins.
Árin sem
Kennarasam
bandið dvaldi í
fallegu Kennara
húsinu voru
farsæl og húsið
á sérstakan stað
í hjörtum fjöl
margra félags
manna KÍ.