Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 25

Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 25
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 25 Hringferð / KENNARASAMBANDIÐ það er mjög áhugavert og segir okkur svolítið að skólakerfið þarf aðeins að fara að gefa nemendum meira lýðræðislegt frelsi.“ Forritun orðin föst í sessi Núna er því þannig háttað í Árskóla að forritun er kennd öllum frá fjórða bekk og upp í áttunda bekk. Þess utan er boðið upp á valáfanga í forritun fyrir níundu og tíundu bekkinga. En þannig var það ekki alltaf. „Ég er með svo geggjaða stjórnendur sem eru til í að leyfa þetta af því að við erum tæknivæddur skóli og okkur fannst þetta bara svolítið lógískt skref að stíga. Að kynna þetta fyrir öllum nemendum,“ segir Álfhildur. „En svo er líka þessi mantra sem er svolítið hér innanhúss og kemur kannski til út af því að Ingvi Hrannar var mikið hér innanhúss að við erum að undirbúa þau fyrir sína framtíð en ekki þá framtíð sem er núna okkar fortíð,“ segir Álfhildur, og á þar við Ingva Hrannar Ómarsson menntafrömuð. „Það var rosalegur sigur fyrir mig þegar fyrsta stelpan valdi forritun fyrir nokkrum árum síðan. En núna, eftir að þetta fór svona meira inn í bekkina, þá er algjörlega jöfn skipting á stelpum og strákum sem velja sér forritun, af því að þetta er ekki lengur eitthvað svona „gauratengt“. Nú fá allir að kynnast forritun og fá stíganda í henni, útskýrir hún. „Hún er létt og skemmtileg fyrst en svo verður hún meira krefjandi. Þannig geta þau komist að því hvort þau hafi þarna sína styrkleika eða hvort þeim finnist þetta bara drepleiðinlegt. Og það er bara gott að geta fengið tækifæri til þess að kynnast því.“ Álfhildur tekur fram að mörg hver finni sig vel í forrituninni og séu einstaklega fær. „Án þess að hafa rannsóknir á bak við mig þá er mín tilfinning svolítið að þeir krakkar sem eru jafnvel með námserfiðleika að einhverju leyti, eins og lesblindu, hafa gjarnan þarna eitthvað læsi umfram aðra. Og þau upp- lifa sig bara ógeðslega sterk í þessu sem gerir ekkert smáræði fyrir sjálfsmyndina. Þannig að þau eru oft orðin svona aðstoðarkennararnir mínir í tímunum.“ Forritunin allt um kring Álfhildur segir hollt fyrir nemendur að öðlast skilning á forritun, hvernig hún virkar, skipulaginu, röðinni og reglunni og ryþmanum sem henni fylgir. „Ef þú lítur í kringum þig, ég meina, þvottavélin er forrituð, bílarnir okkar eru forritaðir og hraðbankinn er forritaður. Það byggist rosa margt á þessu,“ segir hún. Jafnvel þó þau starfi ekki endilega sem forritarar í framtíðinni er þetta hagnýt kunnátta. Fann sig ekki fyrir framan tölvuskjáinn En það er saga á bak við það hvernig Álfhildur leiddist út í kennslu í forritun. „Ég er kerfisfræðingur og lærði og starfaði sem forritari á sínum tíma en fann mig ekki í því. Mér fannst það mjög þurrt starf að sitja fyrir framan tölvuskjáinn. Ég er sveitastelpa og þarf svolítið líf og tilbreytingu,“ útskýrir hún. „Þannig ég lét það bara til hliðar og fór í grunnskólakennarann,“ segir hún. „Því ef grunnskólinn er ekki akkúrat staðurinn fyrir líf og tilbreytingu þá veit ég ekki hvað.“ Á endanum náði Álfhildur þó að sameina bæði kennsluna og áhugann á forritun. Hún tekur þó skýrt fram að kennarar þurfi ekki að hafa kerfisfræðilegan grunn að baki til að kenna forritun. „Það er meira bara að taka skrefið og þora að fara af stað. Af því að krakkarnir eru svo ógeðslega flinkir í þessu og þau finna út úr þessu. Þetta er meira bara að gefa þeim frelsið til þess og verkfærin til að læra.“ Best að sjá börnin blómstra Aðspurð um hvað sé skemmtilegast við kennara- starfið segir Álfhildur það vera að enginn dagur sé eins. „Það er náttúrulega ótrúlega skemmtilegt þegar maður er svona pínu ör týpa.“ „En í seinni tíð hefur mér eiginlega þótt skemmtilegast við kennarastarfið að fá að horfa á eftir þessum krökkum út í sína framtíð,“ segir Álfhildur. „Fá að vera í sambandi við þau og frétta af þeim og sjá kannski að einhverjir styrkleikar sem maður var að reyna að efla á skólagöngunni eru að blómstra. Það er eiginlega það besta, að sjá uppskeruna, jafnvel löngu seinna. Það er ótrúlega dýrmætt. Ég segi alltaf að ég sé svo lélegur kennari af því að mér er alveg sama hvaða einkunn þau fá í íslensku og stærðfræði. Ég vil bara efla ákveðna styrkleika sem gefa þeim góða sjálfsmynd og sjálfstraust út í lífið, af því ég held að það sé besta veganesti sem grunnskólinn getur gefið þessum krökkum,“ segir hún. Einstakt andrúmsloft í skólanum Það eru þó ákveðin atriði sem brenna á Álfhildi hvað varðar kennarastarfið og stéttina. „Það er eiginlega tvennt. Það er hækkandi meðalaldur í stéttinni og skortur á nýliðun sem er áhyggjuefni. Það er ofsalegt fagnaðarefni þegar maður fær ungt fólk inn, eins og við fengum núna í haust. Það er einhvern veginn innspýting fyrir okkur hin að fá unga fólkið inn.“ En svo er hitt. „Það er bara menntastefnan yfirleitt. Ég fagnaði mjög þegar samræmdu prófin voru lögð niður því þau voru ekki að mæla það sem okkur er uppálagt að kenna. En við erum samt í ákveðnu tómarúmi núna. Það er talað um námsferla sem eiga að koma. Þeir hafa ekki verið sýnilegir og enginn veit einhvern veginn hvernig og hvar þeir eru staddir. Við erum fagfólk og við erum að gera vel. En ég held að við séum samt aðeins í lausu lofti og við þurfum aðeins að finna stefnuna okkar aftur sameiginlega,“ segir Álfhildur. Að lokum bætir hún við: „Það er náttúrlega bara ekkert sem er eins geggjað og að vera kennari og vera partur af þessu samfélagi sem skólasamfélagið er. Unga fólkið heldur manni á tánum og passar upp á að maður verði ekki bara eitthvað „grumpy“ gamalmenni. Um leið þá vinnur maður með svo frábæru samstarfsfólki, hvort sem það eru kennarar, þroskaþjálfar, skóla- liðar, eða hver sem vinnur í skólanum, sem er einhvern veginn með svona sama blett í hjartanu. Þessa umhyggju fyrir börnum og þessa gleði fyrir starfinu sínu.“ „Ég held að maður finni þetta ekki annars staðar,“ segir Álfhildur. „Ég er sannfærð um það.“ Við erum að undirbúa þau fyrir sína framtíð en ekki þá fram­ tíð sem er núna okkar fortíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.