Skólavarðan - 2023, Síða 31

Skólavarðan - 2023, Síða 31
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 31 Hringferð / KENNARASAMBANDIÐ „Þetta er spennandi verkefni en upphafið má rekja til þess að síðasta vor fengu ellefu leikskól- ar hér í Reykjanesbæ, ásamt bókasafni bæjarins, styrk úr Sprotasjóði til að vinna að verkinu í sameiningu. Markmið verkefnis- ins er að styrkja hugtakaskilning, orðaforða, hlustunarskilning og frásagnarhæfni leikskólabarna. Hugmyndina að verkefninu átti Ólöf Kristín Guðmundsdóttir, kennsluráðgjafi á Menntasviði Reykjanesbæjar, og gegnir hún verkefnastjórn. Þá er Birte Harksen leikskólakennari titluð sérfræðingur í verkefninu, en hún er vel þekkt fyrir ötult starf er kemur að málörvun ungra barna. Í verkefninu eru einmitt notaðar málörvandi aðferðir sem byggja á leik, söng og virkni. „Það góða við þessar aðferðir er að þær eru til þess fallnar að auka samkennd og styrkja félagstengsl. Þannig getum við stuðlað að auknu öryggi hjá börnum; sjálfstraust þeirra eflist og auk þess hæfnin til að tjá sig. Það gefur augaleið að barn sem á auðvelt með að skilja aðra, getur og þorir að tjá sig er líklegra til að líða betur en barn sem hefur þessi atriði ekki á takteinum,“ segir María og bætir við að verkefnið sé ekki síður mikilvægt í ljósi þess að í Reykjanesbæ er um þriðj- ungur leikskólabarna með annað móðurmál en íslensku. Tilfinningaleg farsæld barna „Þess vegna er svo mikilvægt að leggja áherslu á málörvun til að koma í veg fyrir skerta möguleika í framtíðinni eða jafnvel félagslega jaðarsetningu,“ segir María og bendir í framhaldinu á að niður- stöður nýlegra rannsókna bendi til þess að leikskólabörn hafi oft lítinn og einhæfan orðaforða. „Við þessu þarf að bregðast sem fyrst á skólagöngunni þar sem það verður erfiðara um vik eftir því sem á líður. Aðferðirnar sem beitt er í Leikgleði í gegnum söng og sögur gagnast mjög vel. Þeim er ætlað að stuðla að aukinni málfærni og tilfinningalegri farsæld allra barna – óháð því hvort þau séu fjöltyngd eða ekki,“ segir María. Viltu kynna þér verkefnið betur? Það er hægt að gera með því að heimsækja vefsíðu KÍ og fara inn á Skólamálaþing. Þar er upptaka af síðasta þingi og hægt að hlusta á fróðlegt erindi Sigurbjartar Kristjánsdóttur um Leikgleði í gegnum söng og sögur. Mikill áhugi á félagsmálum María Petrína er vel kunnug innan Kennarasambandsins enda hefur hún gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum fyrir sambandið. Má þar nefna formennsku fyrir hönd FSL í skólamálanefnd og í samninganefnd Félags stjórn- enda leikskóla, setu í fram- kvæmdastjórn Skólamálaráðs KÍ og stjórn Rannsóknasjóðs og er þá ekki allt upptalið. „Ég hef lengi haft mikinn áhuga á að taka þátt í starfi KÍ og þeirri göfugu vinnu sem þar fer fram. Innan Kennarasambandsins vinnur hópur fólks af miklum metnaði fyrir hönd stéttarfélags- ins. Ég er stolt af því að tilheyra hópi þar sem sterk liðsheild, vönduð vinnubrögð, gagnsæi og heiðarleiki eru einkennandi hvert sem litið er.“ María á að baki nærfellt þrjátíu ára feril innan leikskólans; allt frá því að vinna við ræstingar, í eldhúsinu, við kennslu og undanfarin sextán ár við stjórnun. „Ég bý yfir dýrmætri reynslu sem ég reyni að miðla KÍ til heilla. Þau sem þekkja til mín vita að ég hef bæði kjark og faglegan metnað til að standa vörð um gildi leiksins og réttindi barna,“ segir María Petrína Berg skólastjóri og bætir við að hún hlakki til framtíðarinn- ar sem muni bera ný verkefni og tækifæri í skauti sér. Lengri útgáfa viðtalsins verður birt á vef KÍ undir merkj- um Skólavörðunnar. Holt í hnotskurn Leikskólinn Holt tók til starfa 1985. Byggt var við skólann og hann stækk- aður um tvær deildir 2003. Lengst af voru fjórar deildir en í haustið 2022 urðu eru þær sex. Börnin í skólanum eru 107. Grunnur skólastarfsins er byggður á hugmyndafræði Reggio Emilia sem felur í sér að virðing er borin fyrir barninu og hugmyndum þess. Könnunaraðferðin er einnig nýtt til þekkingarleitar. Einnig erum við með tónmenntakennara sem kemur til okkar einn dag í viku. Þróunarverkefnið Leikgleði í gegnum sögur og söng hefur vakið verð- skuldaða athygli en alls taka 11 leikskólar og bókasafn Reykjanesbæjar þátt. Fengu tilnefningu til foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2022. „Við viljum sjá börnin með gott sjálfstraust og prúðmannlega framkomu, en líka að þau finni fyrir gleði og kærleika gagnvart náunganum og beri virðingu fyrir umhverfi sínu. Þetta er gott veganesti út í lífið,“ segir María Petrína Berg.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.