Skólavarðan - 2023, Qupperneq 43
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 43
John Dewey / HVER ER MAÐURINN?
Áhrifa bandaríska heimspekingsins
og menntunarfrömuðarins John
Dewey gætir enn víða um heim.
Ósjaldan er á hann minnst í umræðu
og fræðiskrifum um menntun og
nám og er hann einna helst þekktur
fyrir kenningar sínar um framsækna
menntun og að læra með því að
framkvæma. En hver er maðurinn?
Maðurinn á bak við fræðin
John Dewey fæddist í Vermont ríki í
Bandaríkjunum árið 1859. Heimspek-
in átti hug hans allan og hann útskrif-
aðist með doktorspróf í fræðunum
frá Johns Hopkins háskóla árið
1884. Dewey starfaði sem kennari á
hinum ýmsu skólastigum ásamt því
að stunda sálfræðilegar rannsóknir.
Mest vann hann í Michigan, Illinois
og New York, þar sem hann endaði
starfsævina við Columbia háskóla.
Dewey giftist heimspekingnum
og kvenréttindabaráttukonunni Alice
Chipman, sem varð mikill samverka-
maður hans í menntunarmálum.
Saman eignuðust þau
sex börn. John Dewey
lést 93 ára gamall árið
1952. Fjölskyldulíf
hans, fólkið í kringum
hann og hans eigin
reynsla og athuganir
voru hans mesti áhrifa-
valdur og uppspretta
kenninga hans um
menntun og heimspeki.
Nemandinn í forgrunni
Dewey var einn af frumkvöðlum verk-
hyggju, eða bandarísks pragmatisma,
þar sem reynsla og skynjun voru
grundvöllur þekkingarleitar. Hann
vildi að þekkingaröflun eða nám væri
virkt ferli byggt á rannsókn geranda,
eða nemandans.
Nemandinn átti að vera í
forgrunni, en John Dewey taldi að
nemendur ættu auðveldara með að
læra og væru áhugasamari og virkari
þegar menntunin væri sniðin að
þeirra þörfum og áhugamálum. Því
ættu nemendurnir sjálfir að taka
virkan þátt í að móta námsupplifun
sína.
Framsækin menntun veigamikið
framlag til menntamála
Helst lagði Dewey áherslu á gagn-
virkni, reynslu, hagnýta færni og
beitingu þekkingar og gagnrýnnar
hugsunar, það er að segja, á fram-
sækna menntun, og vildi fjarlægjast
hefðbundnar, einhliða kennsluað-
ferðir sem snerust helst um að miðla
staðreyndum.
Reynslan, eða það að læra með
því að framkvæma, var þungamiðjan.
Dewey taldi nemendur líklegri til
að öðlast dýpri og þýðingarmeiri
skilning á viðfangsefnunum og nýta
það sem þeir hefðu lært ef þekkingin
væri hagnýt og í samhengi við
raunverulegt og daglegt
líf nemandans. Þannig
hefði námið áhrif á
vitrænan, félagslegan og
tilfinningalegan þroska
nemenda og færni þeirra
til að laga sig að raun-
verulegum aðstæðum.
Lýðræði var
leiðandi stef í kenning-
um Dewey og þar gegndi menntun
lykilhlutverki, henni var ætlað að
undirbúa nemendur fyrir virka,
ábyrga og upplýsta þátttöku í
lýðræðissamfélagi.
Lét verkin tala
John Dewey skildi eftir sig um-
fangsmikið safn verka og fræðirita.
Heildarútgáfa verka hans er 37 bindi
og þá eru bréf og önnur ritverk eftir
hann ekki talin með en í heild er
hann sagður hafa skrifað um þúsund
athuganir og pælingar.
Dewey lét þó ekki þar við setið
heldur lét hann líka reyna á kenn-
ingarnar sínar. Hann kom hugmynd-
um sínum í framkvæmd með stofnun
Tilraunaskólans, barnaskóla sem
settur var á laggirnar í Chicago 1896.
Aðeins nokkrum árum eftir stofnun
skólans voru nemendur orðnir 140
og kennarar 23. Skólinn og reynsla
Dewey þar hafði veruleg áhrif á
menntaheimspeki hans og tilraunir til
endurbóta til frambúðar.
Áhrifa John Dewey gætir víða
því kenningar hans eru margar
hverjar enn við lýði og eru kennurum
og menntaumbótasinnum um allan
heim hvatning. Dewey er enn þann
dag í dag talinn einn áhrifamesti
menntafrömuður Vesturlanda og
arfleið hans lifir góðu lífi.
06 MYND
Hver er maðurinn?
John Dewey
Frumkvöðull í menntaheimspeki
1859 1952
02 NAFN
01 BLAÐHLUTI
03 AFREK
04 FÆÐINGARÁR 05 DÁNARÁR
Frímerki til heiðurs John
Dewey var gefið út í
Bandaríkjunum árið 1968.
John Dewey við Chicago háskóla árið
1902.