Skólavarðan - 2023, Page 53
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 53
Tónlist / NÁMSEFNI
Jazzhrekkur er nýtt verk frá Leifi Gunnarssyni
kontrabassa leikara sem ætlað er að vekja forvitni barna
um jazztónlist. Tónlistinni fylgir rafræn kennslubók með
textum, lögum og nótum sem í heild mynda um hálftíma
sýningu sem ætluð er elsta stigi leikskólans og yngsta stigi
grunnskólans.
Verkið er byggt á kynjaverum tengdum hrekkja-
vökuhátíð. Öll lögin taka á einhvers konar fyrirbærum
eða ævintýraheimi þeim tengdum. Markmiðið er að vekja
áhuga barna á hljóðheimi og formi jazztónlistar, stílbrigði
sem ekki er endilega í forgrunni hjá ungum krökkum.
Kennslubókin getur nýst til tónlistarkennslu, kennslu
í leikskólum og sem kennsluefni í tónmennt hjá 1. til 4.
bekk, en í bókinni er að finna hugmyndir um hvernig nýta
má efnið til kennslu í leik- og grunnskólum.
Útgáfan er styrkt af Endurmenntunarsjóði Tónlistar-
kennara, Menningarsjóði FÍH og höfundurinn býður efnið
frítt til niðurhals og notkunar, en hann vinnur ötullega
að því að jafna aðgengi að menningu í sínum störfum og
tónleikahaldi.
Bækur
Jazzhrekkur eykur
forvitni um jazztónlist
Hægt er að finna plötuna á
Spotify undir heitinu Jazzhrekk-
ur eða með því að skanna inn
kóðann hér fyrir ofan.
Hlekkur í QR-kóða á
bókina sjálfa.