Skólavarðan - 2023, Síða 55
HAUST 2023 SKÓLAVARÐAN 55
SAMFÉLAGS- OG NÁTTÚRUGREINAR | YNGSTA STIG
Halló heimur
Grúskfélagið er mætt
á ný og til þjónustu
reiðubúið! Við grúskum
í leyndardómum
samfélags og náttúru
í Halló heimur 3,
kíkjum á himingeima,
gægjumst í undirheima
og skoðum margt
þar á milli. Og jú,
auðvitað eru fjölbreyttu
verkefnin, föndrið og
fjörlegu umræðurnar
á sínum stað. Mínerva
og aðrir kennarar geta
líka mátað námsefnið við hæfniviðmið og heimsmark-
mið. Svo má ekki gleyma kennsluleiðbeiningunum með
myndabanka og ítarefni á vef mms.is
Námsefni / MENNTAMÁLASTOFNUN
ENSKA | YNGSTA STIG OG MIÐSTIG
Yes we can
Yes we can er heildstætt
námsefni í ensku fyrir yngsta
og miðstig. Alls eru bækurnar í
flokknum sex talsins. Efnistök eru
fyrst og fremst úr hversdagslífi
nemenda, áhersla er á samfelldan
texta sem höfðar til nemenda og
fjölbreytt verkefni sem byggja á
textunum. Hlustun og málnotkun
eru í fyrirrúmi en áhersla á lestur
og ritun eykst markvisst eftir því
sem líður á námið.
Námsmat er hluti af náms-
efninu og áhersla er lögð á
þátttöku nemenda í mati á eigin
námsstöðu og aukinni meðvit-
und um eigin námsaðferðir og
vinnulag. Efnið samanstendur
af: Nemendabók, verkefnabók,
rafbókum, hljóðbók, hlustunarefni,
veggspjaldi, spilum, rafrænu efni
með gagnvirkum æfingum og
kennsluleiðbeiningum á vef.
ÍSLENSKA | YNGSTA STIG
Ísbjörn
Ísbjörn er lestrarbók í flokknum Milli himins og jarð
ar. Í bókinni eru fróðleikstextar um ísbirni og mikið
lagt upp úr ljósmyndum og teikningum sem styðja
við textann og vekja áhuga og forvitni fyrir efninu.
Neðst á hverri síðu eru spurningar sem eru til þess
ætlaðar að staldra við og ræða það sem lesið var
um. Spurningar í ísbjarnarhrammi leiða lesandann á
næstu síðu þar sem svarið er að finna. Aftast í bókinni eru nokkur verkefni.
ÍSLENSKA | MIÐSTIG
Varúð, hér býr umskiptingur
Fjórða varúðarbókin
er komin út. Sögurnar
í þessum lestrarflokki
eru skrifaðar í léttum
stíl og með það í huga
að flestir ættu að ráða
við textann. Bækurnar
henta einkum þeim
nemendum sem hafa
átt í örðugleikum með
lestur lengri texta.
Hægt er að nýta
bækurnar á ýmsan
máta t.d. til sam-
lesturs, yndislesturs
og einstaklingsvinnu.
Efnið samanstendur
af nemendabók,
rafbók og verkefnum
á vef.
NÁTTÚRUGREINAR | MIÐSTIG
Náttúran okkar
Í námsefninu Náttúran okkar
læra nemendur um margvísleg
umhverfisvandamál og hvað
hægt er að gera til að finna
lausnir á þeim. Fjallað er um
stór umhverfisvandamál eins og
tap á lífbreytileika (líffræðilegri
fjölbreytni), loftslagsmál og
landeyðingu og hvernig hægt
er að nota vistheimt til að leysa
þessi vandamál. Vistheimt eða
endurheimt vistkerfa er ferli
sem hjálpar náttúrunni að lækna
sig sjálfa þegar vistkerfi hefur
hnignað/skemmst.
Námsefninu er ætlað að
efla umhverfisvitund nemenda,
gagnrýna hugsun og gefa þeim
kost á að fjalla um hugtök eins
og ágengar framandi lífverur,
gróður- og jarðvegseyðingu, land-
hnignun, landlæsi, lífbreytileika,
loftslagshamfarir, náttúruvernd,
vistheimt, þjónustu vistkerfa og
örfoka land. Námsefnið sam-
anstendur af rafbók, verkefnavef
og kennsluleiðbeiningum.
SAMFÉLAGS- OG NÁTTÚRUGREINAR | YNGSTA STIG
Stærðfræðispæjarar 4
Fjórða og jafnframt síðasta spæjarabókin er nýkomin út,
Stærðfræðispæjarar 4. Um er að ræða ítarefni í stærð-
fræði fyrir nemendur á yngsta stigi en það getur einnig
nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi.
Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni
á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðal-
námskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði og form, reikning-
ur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi. Í kennsluleiðbein-
ingum er að finna útfærslur sem segja til um hvernig
flétta má inn í kennsluna áherslum aðalnámskrár um
þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk
lykilhæfni.
Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin
spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum
á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær
spila stórt hlutverk í notkun námsefnisins.