Skólavarðan - 2023, Blaðsíða 64
64 SKÓLAVARÐAN HAUST 2023
SKÓLAVARÐAN / Skólavarðan mælir með
Skólavarðan mælir með
Huggulegheit og þægindi í jólaös
Skólavarðan tínir til nokkra hluti sem geta vonandi auðveldað skipulagið í aðdraganda jóla og
aukið á notalegar stundir heimavið.
Lo-fi myndbönd á YouTube
Internetið
Skólavarðan mælir með að hafa lo-fi, eða
„low fidelity“, tónlistarmyndbönd í gangi
í myrkrinu, eins og þegar verið er að elda,
koma deginum af stað, fá gesti í heimsókn
og þess háttar. Ófullkomnir lo-fi tónarnir,
settir yfir einfaldar teiknimyndir, hafa
róandi og góð áhrif og setja vissa stemmn-
ingu í loftið. Hægt er að benda á rásirnar
The Jazz Hop Café og Lofi Girl.
Minn hlátur er sorg: Ævisaga
Ástu Sigurðardóttur, eftir
Friðriku Benónýsdóttur
Bók
Frábær bók um
konu sem var á
undan sinni samtíð
og neyddist til að
ryðja brautina.
Allt í senn falleg,
hugljúf, fyndin og
átakanleg saga sem
ekki er hægt að
mæla nógu mikið
með fyrir hvern
sem er
Cameo
Jólagjafir
Nú fer að koma að stærstu gjafahátíð ársins.
Fyrir þau sem hafa umhverfissjónarmið
að leiðarljósi við jólagjafakaupin er vel
hægt að mæla með Cameo. Á vefsíðunni
er hægt að kaupa myndbandskveðjur
fyrir vini og vandamenn frá uppáhalds
stjörnunum; frægum leikurum, tónlistar-
mönnum, grínistum, íþróttamönnum og
raunveruleikastjörnum. Boy George, Ice T,
Lindsay Lohan, Kevin úr Office eða Dennis
Rodman gætu sent þínum ástvini sér-
hannaða kveðju um jólin.
Glögg
Notalegheit
Skólavarðan mælir með glöggi yfir myrkasta
veturinn. Aðkeypt eða heimagert heitt
vín (áfengt eða óáfengt) með möndlum, rús-
ínum, kanil og fleira kryddi. Hlýtt í hjartað
með hverjum krydduðum sopa.
Heima
App
Heima appið auðveldar fjölskyldunni
skipulag og heimilisstörfin og gerir þau
skemmtilegri með því að breyta þeim í
leik. Hver og einn fjölskyldumeðlimur fær
stig fyrir að ljúka verkum eins og að setja í
uppþvottavélina, fara út með ruslið, versla
inn og þar fram eftir götunum og í lok viku
er hægt að sjá hver er stigahæstur. Appið
dreifir líka hugrænni byrði heimilisverk-
anna en allir meðlimir geta bætt verkum og
markmiðum á listann eftir þörfum.
Sporcle
Leikir
Meðlimir Skólavörðunnar eyða löngum
stundum utan vinnu í að leysa orðagátur og
spurningakannanir á vefsíðunni Sporcle.
com. Þar er að finna ógrynni af prófum og
stuttum könnunum þar sem spurt er út í
hvaðeina sem notanda getur dottið í hug;
afþreyingarefni, sögu, landafræði, pólitík og
svo má lengi telja, á mismunandi hátt. Eins
konar Trivial Pursuit á netinu sem vel er
hægt að drepa tímann með og læra eitthvað
nýtt í leiðinni.