Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 8
Molar
Fr
ét
ta
m
ol
ar
Frí rafræn námskeið í boði
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur samið
við fræðslufyrirtækið Akademías um aðgang að
rafrænum fyrirtækjaskóla þess fyrir félagsfólk sem
hefur nú aðgang að tugum rafrænna námskeiða,
sér að kostnaðarlausu. Um eru að ræða fjölbreytt
námskeið um allt frá heilsu til fjármála.
Með þessu vill Fíh koma til móts við þarfir félagsfólks
um fræðslu á eigin forsendum á þeim tíma sem
hentar því best.
Námskeiðin má nálgast í gegnum Orlofsvefinn,
undir gjafabréf og Akademías. Nánari leiðbeiningar
má finna á Orlofsvefnum og inni á Mínum síðum á
heimasíðu félagsins, hjukrun.is.
Breyting á úthlutunarreglum Styrktarsjóðs Fíh
Síðustu ár hefur orðið gríðarleg aukning á langvarandi veikindum hjúkrunarfræðinga. Það staðfesta
tölur frá Styrktarsjóði félagsins en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hafa greiðslur úr sjóðnum
vegna sjúkradagpeninga fjórfaldast á síðustu sex árum.
Aukning á greiðslum sjúkradagpeninga hefur haft mjög mikil áhrif á fjárhagsstöðu Styrktarsjóðs og
nú er svo komið að eigið fé hans er neikvætt um tugi milljóna króna. Vegna þeirrar stöðu og þess að
horfur gera ráð fyrir áframhaldandi halla hafa verið gerðar breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins
á þá leið að sjúkradagpeningar verða greiddir að hámarki í fjóra mánuði í stað sex mánaða áður.
Breytingin tekur gildi frá og með 1. mars 2024 og á við um umsóknir sem berast frá þeim tíma.
Fjárhæðir styrkja sjóðsins eru óbreyttar frá fyrra ári.
Þetta er sambærileg þróun og hefur verið hjá öðrum stéttarfélögum en þar hefur veikindatíðni
vegna langvarandi veikinda aukist verulega, sérstaklega hjá starfsfólki hins opinbera. Erfitt er að
segja til um hvað valdi aukinni aðsókn í sjóðinn en ástæðurnar án efa margþættar. Má til að mynda
nefna skort á hjúkrunarfræðingum til starfa en það hefur skapað áralangt aukið álag á þá sem fyrir
eru í vinnu, nýafstaðinn heimsfaraldur og mikil krafa um yfirvinnu.
Þróun sjúkradagpeninga Styrktarsjóðs Fíh 2017-2023, mánaðarlegar greiðslur.